Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 32
SÆKTU APPIÐ á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Með Hreyfils appinu er fljótlegt og einfalt að panta leigubíl. Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð þegar bíllinn er mættur á staðinn. Þú getur fylgst með hvar bíllinn er staddur hverju sinni. Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis getur þú valið viðskiptareikning og opnað aðgang. Hreyfils-appið er ókeypis. Kvikmyndahátíðin í Toronto verður haldin 10.-20. septem- ber en vegna kórónuveiruf- arsóttarinnar mun hún í fyrsta sinn fara fram að stórum hluta á netinu. Lítið verður um frum- sýningar með rauðum dreglum og munu blaðamannafundir og ýmsir viðburðir fara fram á netinu. Um 50 þekktir kvik- myndaleikstjórar og -leikarar munu láta ljós sitt skína á net- inu í stað þess að sitja blaða- mannafundi og pallborðs- umræður, þeirra á meðal Viggo Mortensen, Taika Waititi, Nicole Kidman, Martin Scorsese, Alfonso Cuarón, Isa- belle Huppert, Claire Denis og Denis Villeneuve. Eru þau kölluð sendiherrar hátíðarinnar í frétt á vef kvikmynda- tímaritsins The Hollywood Reporter. Greint hefur verið frá því hvaða kvikmyndir verði sýndar og þeirra á meðal er fyrsta kvikmynd Reginu King sem leikstjóra, One Night in Miami. Lítið um rauða dregla í Toronto ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 217. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Verðmætasti knattspyrnuleikur ársins á Englandi verð- ur spilaður á Wembley-leikvanginum í London klukkan 18:45 í kvöld er Lundúnaliðin Brentford og Fulham leiða saman hesta sína í úrslitaleik í umspili B-deildarinnar. Verðlaunin fyrir sigurliðið er lykill að draumalandinu, ensku úrvalsdeildinni. Er úrslitaleikur umspilsins oft kallaður verðmætasti staki knattspyrnuleikur í heimi. Fréttaskýringu um liðin og það sem er í húfi er að finna í Morgunblaðinu í dag. Nokkrir Íslendingar hafa leikið fyrir þessi lið í gegnum árin. »27 Geysilega miklir hagsmunir undir á Wembley-leikvanginum í kvöld ÍÞRÓTTIR MENNING „Þetta var aðeins minna stress heldur en að vera á stóra sviðinu á þjóðhátíð,“ segir Ingólfur Þór- arinsson, oft kenndur við Veður- guðina, um brekkusönginn sem fram fór á sunnudagskvöld. Tók hann þá lagið í brekkunni í beinni útsendingu Sjónvarps Símans, mbl.is og K100, að vísu ekki úr Eyjum heldur úr Hlégarði í Mos- fellsbæ. Falleg kveðja frá Vest- mannaeyjum setti svip sinn á brekkusönginn að hans sögn. Nokkuð færri voru í brekkunni í ár en alla jafna, en þrátt fyrir breytt- ar aðstæður var þjóðhátíðarandinn allsráðandi, þar sem Ingó tók helstu þjóðargersemarnar með gítarspili ásamt Einari Erni Jóns- syni meðleikara. Hann kveðst í samtali við Morgunblaðið afar ánægður með brekkusönginn og hvernig til tókst: „Staðurinn var sjarmerandi, við fengum gott verður og sviðið var flott. Mér fannst gott að hafa píanóleikara með mér í brekku- söngnum, sem hefur vanalega ekki verið.“ Ný lög sem áður höfðu ekki leik- ið jafnstórt hlutverk fengu þannig að njóta sín á sunnudag. „Þegar ég er með stóra brekku- sönginn í Eyjum þá eru alltaf ákveðin lög sem manni finnst skemmtilegast að taka, í takt við andann frá brekkunni. En nú fannst mér skemmtilegast að flytja lögin sem voru með píanóleik.“ Tóku brekkusönginn Spilað Ingó Veðurguð tók nokkrar þjóðargersemar á mánudagskvöldið, eins og venjan er um verslunarmannahelgi.  Ingó Veðurguð stýrði brekkusöngnum í Mosfellsbæ í ár Ljósmyndir/Mummi Lú Brekkan Þeir sem á horfðu og hlustuðu í brekkunni voru nokkuð færri nú en alla jafna, af skiljanlegum ástæðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.