Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 Skráning er hafin schballett.is • 861 4120Skipholt • Kópavogur • Grafarvogur Ballett frá 2ja ára Jazzballett Ballett-fitness Silfursvanir 65 ára+ Mat-pílates og 20-30 ára advanced Pétur Magnússon Alexander Kristjánsson Tíu íbúar og fjórir starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mos- fellsbæ, sem er í eigu Eirar, eru í sóttkví eftir að starfsmaður í umönn- un greindist með kórónuveiruna. Starfsmaðurinn mætti til vinnu og var þar í tvo og hálfan tíma þangað til hann fékk upplýsingar um að ná- inn ættingi hefði greinst með stað- fest smit. Í kjölfarið fór starfsmað- urinn úr vinnu og í sýnatöku og reyndist jákvæður fyrir veirunni. Hann sinnti aðeins örfáum íbúum á deildinni en á henni búa tíu manns. Deildin hefur nú verið einangrun. Aðrar deildir Hamra munu vera lok- aðar í tvær vikur vegna atviksins, en meiri ráðstafanir voru gerðar vegna þeirra íbúa sem starfsmaðurinn ann- aðist. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir gerði á upplýsingafundi al- mannavarna í gær að umtalsefni orð sín um að landsmenn þyrftu að „lifa með veirunni“ um einhvern tíma, næstu mánuði eða jafnvel lengur. Einhverjir hefðu túlkað það svo að það þýddi að veirunni yrði einfald- lega leyft að ganga á milli fólks en svo sé alls ekki. „Að lifa með veirunni þýðir að lifa með sýkingum af hennar völdum en einnig að lifa með þeim ráðstöfunum sem við þurfum að grípa til,“ sagði Þórólfur. Ekki lengur í öndunarvél Sex innanlandssmit greindust í fyrradag; tvö í Vestmannaeyjum og hin á höfuðborgarsvæðinu. Beðið er eftir niðurstöðum raðgreiningar á smitunum, en talið er að um sé að ræða sama hópsmit og rætt hefur verið um áður. Alls hafa 127 einstaklingar greinst með kórónuveiruna á landinu frá 15. júní síðastliðnum, 120 þeirra smita eru tengd hópsýkingu. Virk smit í samfélaginu eru 114 og eru 720 í sóttkví. Maðurinn sem hefur verið í önd- unarvél á gjörgæslu Landspítalans síðustu daga er laus úr öndunarvél og kominn af gjörgæslu. Dvelur hann núna á almennri deild og er sá eini sem dvelur á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Á landamærum voru tæplega 2.500 skimaðir fyrir veirunni en eng- in smit greindust í þeim sýnum. 41 einstaklingur hefur greinst með virkt smit á landamærum, flestir þeirra eru búsettir hérlendis. Þórólfur sagði að mikið að sýnum hafi borist til veirufræðideildar frá fólki með einkenni, en aðeins 0,9% af þeim voru smituð af COVID-19. Lík- lega er um að ræða annars konar pestar- og öndunarfærasýkingar í flestum tilvikum, að sögn Þórólfs. Alma Möller landlæknir ítrekaði atriði tengd grímunotkun á fund- inum. Í auglýsingu heilbrigðisráðherra sem tekur gildi í dag segir að á sam- komum, öllum vinnustöðvum og í allri annarri starfsemi skuli tryggja að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga sem ekki deila heimili. Í starfsemi sem eðli síns vegna krefst meiri nálægðar er kveðið á um að nota skuli grímu. Ekki er mælt með almennri notk- un grímu á almannafæri. „Gríma kemur aldrei í stað almennra sýk- ingavarna sem skal alltaf viðhafa,“ sagði Alma. „Hún kemur alls ekki í stað tveggja metra reglunnar, til dæmis í verslunum og á skemmti- stöðum.“ Flytjast í húsnæði ÍE Karl Kristinsson, prófessor og yfirlæknir sýkla- og veirufræðideild- ar Landspítala, var sérstakur gestur á upplýsingafundinum, en í máli hans kom fram að hluti sýkla- og veiru- fræðideildar Landspítalans muni flytjast tímabundið í húsnæði Ís- lenskrar erfðagreiningar (ÍE) í Vatnsmýri. Við það mun afkastageta aukast til muna. Hægt verði að greina um 5 þúsund sýni á hverjum degi. Reiknað er með að flutning- urinn verði í byrjun næstu viku, gangi allt að óskum. Nokkur umræða hefur sprottið upp um aðbúnað á sýkla- og veiru- fræðideildinni, en Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði á dögunum að deildin hefði verið vanbúin til að tak- ast á við veiruna strax í janúar og að ekkert hefði verið gert til að efla getu hennar. „Vegna umræðu undanfarið um tækjamál deildarinnar má segja að tækjamálin hefðu mátt vera í betra lagi,“ sagði Karl á fundinum. Hann benti á að Landspítalanum væri skammtað fé til tækjakaupa og mest- ur hluti þess fjár hefði undanfarið farið í endurnýjun gamalla tækja í stað frekari uppbyggingar. „Það má segja að deildin hafi verið í startholunum frá uppafi þessa far- aldurs. Við vorum búin að setja upp aðferðina til að greina SARS- kórónuveiruna mjög fljótt eða 31. janúar og gera síðan fjölmörg próf áður en fyrsta tilfellið greindist 28. febrúar.“ Hjúkrunarstarfsmaður smitaður  Fjórtán í sóttkví vegna smits á hjúkrunarheimilinu Hömrum  Sóttvarnalæknir kallar eftir stöðugleika í aðgerðum stjórnvalda  Hluti sýkla- og veirufræðideildar mun flytjast í húsnæði ÍE Ljósmynd/Almannavarnir Upplýsingafundur Þríeykið og Karl Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. 21 2 1 2 1 2 11 1 1 1 1 1 1 1 1 100 1 1 1 12 2 4 3 2 2 2 3 6 6 2 1 5 2 5 1 6 9 2 10 1 3 1 2 2 2 1 3 3 32 2 5 4 2 1 2 1 1 3 1 36 6 1 8 1 7 1 11 2 1 4 Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní til 12. ágúst 720 einstaklingar eru í sóttkví 1.978 staðfest smit 116 er með virkt smit Heimild: covid.is Innanlands Landamæraskimun: Virk smit Með mótefni Beðið eftir mótefnamælingu Nýgengi smita innanlands: 23,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 1 einstaklingur er á sjúkrahúsi, enginn á gjörgæslu júní júlí ágúst 9 11 2 2 3 2 1 16 171.443 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 90.659 sýni 13 2 2 3 1 3 2 2 5 1 44 Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir lilja@mbl.is Gunnar Scheving Thorsteinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, og félagi hans fengu greiddar 550.000 krónur hvor í miskabætur frá ríkinu fyrir ólög- mæta handtöku, húsleit og aðrar þvingunaraðgerðir sem þeir máttu þola árið 2015 þegar þeir voru hand- teknir í svonefndu LÖKE-máli. Embætti ríkislögmanns synjaði í júní beiðni Morgunblaðsins um upp- lýsingar um fjárhæð miskabótanna, en ákvörðunin var síðan endurskoð- uð og hefur Morgunblaðið nú fengið upplýsingar um að þann 8. júní var af hálfu embættisins gengið frá sam- komulagi við Gunnar og félaga hans um greiðslu miskabóta að fjárhæð 550.000 til hvors um sig vegna þeirra þvingunarráðstafana sem þeir máttu þola í tengslum við rannsókn LÖKE- málsins. Í samkomulaginu felst ekki afstaða embættis ríkislögmanns til lögmætis aðgerðanna. Um er að ræða bætur vegna hand- töku og vistunar í fangageymslu, húsleitar og haldlagningar tölva. Grundvöllur bótaréttar Gunnars og félaga hans var hlutlæg bótaregla 246. greinar laga um meðferð saka- mála, en í ákvæðinu er gert ráð fyrir að maður sem borinn hefur verið sökum í sakamáli eigi rétt til bóta fyrir tilteknar þvingunaraðgerðir ef mál hans hefur verið fellt niður eða hann verið sýknaður. Gunnar og tveir aðrir, starfsmað- ur símafyrirtækis annars vegar og lögmaður hins vegar, voru hand- teknir árið 2015 vegna gruns um að Gunnar hefði flett upp nöfnum kvenna í innra kerfi lögreglunnar á árunum 2007 til 2013 og deilt upplýs- ingum með hinum. Síðar var alfarið fallið frá þeirri ákæru. Hálf milljón á mann í bætur í Löke-máli  Miskabætur vegna ólögmætrar hand- töku, húsleitar og fleiri þvingunaraðgerða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lögreglan Hvor fékk 550.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.