Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 Í LANDSRÉTTINUM (THE HIGH COURT OF JUSTICE) CR-2019-006383 FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLUM Í ENGLANDI OGWALES (BUSINESS AND PROPERTY COURTS OF ENGLAND ANDWALES) FYRIRTÆKJADÓMSTÓL (ChD) MÁL SEM VARÐA STARR INTERNATIONAL (EUROPE) LIMITED - og - MÁL SEM VARÐA STARR EUROPE INSURANCE LIMITED - og - MÁL SEM VARÐA HLUTA VII Í LÖGUM 2000 UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OGMARKAÐSSETNINGU (THE FINANCIAL SERVICES ANDMARKETS ACT 2000) Hér með tilkynnist að þann 27. júlí 2020 var lögð fram umsókn samkvæmt kafla 107 í lögum 2000 um ármálaþjónustu og markaðssetningu (the Financial Services and Markets Act 2000) (Lögin) í Landsréttinum (the High Court of Justice), fyrirtækja- og eignadómstól Englands ogWales (Business and Property Courts of England andWales), fyrirtækjadómstól (ChD) í London hjá Starr International (Europe) Limited (Framseljandi) og Starr Europe Insurance Limited (Framsalsþegi), varðandi: (1) samkvæmt kafla 111 í lögunum (Act) sem leyfa áætlun (Áætlunin) sem kveður á um framsal til framsalsþega á allri almennri vátryggingastarfsemi sinni sem tengist (að hluta eða öllu leyti) áhættu eða áhættu sem staðsett er á Evrópska efnahagssvæðinu (EEA) og allri almennri endurtryggingarstarfsemi hans sem snýr að áhættu eða áhættu í Þýskalandi; og (2) að setja viðbótarákvæði í tengslum við áætlunina samkvæmt liðum 112 og 112A í lögunum. Afrit af skýrslunni um skilmála áætlunarinnar sem unnin var í samræmi við 109. lið laganna af óháðum sérfræðingi (Áætlunarskýrslan), yfirlýsing þar sem fram koma skilmálar áætlunarinnar og yfirlit yfir Áætlunarskýrsluna og hægt er að fá áætlunarskjalið endurgjaldslaust með því að hafa samband við framseljanda og framsalsþega með símanúmerum eða heimilisföngum sem gefin eru upp hér að neðan. Þessi skjöl og önnur tengd skjöl, þ.m.t. sýnishorn afrita af samskiptum við vátryggingartaka, eru einnig fáanleg á http://www.starrcompanies.co.uk/PartVII-Transfer. Þessi vefsíða verður uppfærð fyrir allar lykilbreytingar á fyrirhuguðu framsali. Öllum spurningum eða áhyggjur sem tengjast fyrirhugaðri áætlun skal beina til framseljanda og framsalsþegameð tölvupósti til PartVIIenquiries@starrcompanies.com, í síma +44 8081290243 (7:00 til 22:00 á mánudegi til föstudags, frá 8:00 til 22:00 á laugardögum og frá 9 til 19:00 á sunnudögum (í báðum tilvikum í London tíma)), eða senda bréf til Part VII Enquiries, Starr Companies UK, 4th Floor, 30 Fenchurch Avenue, London EC3M 5AD, United Kingdom. Ef þú ertmeð tryggingu hjá framseljanda og/eða framsalsþega, vinsamlegast notaðu númer tryggingarinnar í öllum samskiptum. Það er að finna í tryggingargögnum þínum eða tengdum samskiptagögnum. Þessi umsókn verður tekin fyrir viðHigh Court of Justice of England andWales, 7 Rolls Buildings, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, United Kingdom on 12. nóvember 2020. Sérhver einstaklingur sem heldur að hann eða hún verði fyrir umtalsverðum áhrifum af framkvæmd áætlunarinnar eða vill andmæla henni, getur mætt til skýrslutöku og látið skoðanir sínar í ljós, annað hvort í eigin persónu eða gegnum fulltrúa. Óskað er eftir því að allir sem hyggjast vera viðstaddir upplýsi framseljandann og framsalsþegann (með því að nota tengiliðaupplýsingarnar sem settar eru fram hér að ofan) eins fljótt og auðið er og helst fyrir 5. nóvember 2020 til að leggja fram efni andmæla sinna. Þetta gerir framseljanda og framsalsþega kleift að láta vita af öllum breytingum varðandi fyrirtökuna og, ef unnt er, að bregðast við öllum áhyggjum sem koma fram fyrir fyrirtökuna. Í ljósi gildandi leiðbeininga stjórnvalda varðandi Covid-19, vinsamlegast hafðu í huga að hugsanlegt er að fyrirtakan fari fram gegnum símafundarþjónustu. Óskað er eftir því að ef þú ætlar að mæta á fyrirtökuna (hvort sem er persónulega eða í gegnum fulltrúa þinn), að þú upplýsir framseljanda og framsalsþega (með því að nota tengiliðaupplýsingarnar sem settar eru fram hér að ofan) eins fljótt og auðið er og helst fyrir 5. nóvember 2020. Þetta gerir framseljanda og framsalsþega kleift að láta í té allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru við fyrirtökuna ef hún fer fram gegnum arbúnað. Sérhver einstaklingur sem andmælir eða telur sig verða fyrir umtalsverðum áhrifum vegna áætlunarinnar, en ætlar ekki aðmæta við fyrirtökuna, getur komið sjónarmiðium sínumvarðandi áætlunina á framfærimeð því að tilkynna framseljanda og framsalsþega skriflegameð heimilisfanginu hér að ofan eðameð því að hringja í símanúmerin sem gefin eru upp hér að ofan, í báðum tilvikum eins fljótt og auðið er og helst fyrir 5. nóvember 2020. Allir fulltrúar fá aðgang að Landsréttinum (the High Court) við fyrirtökuna. Framseljanda og framsalsþegi munu tilkynna breska ármálaeftirlitinu (UK’s Financial Conduct Authority) og varúðarregluyfirvaldinu (Prudential Regulation Authority) um öll andmæli sem fram koma fyrir fyrirtöku, óháð því hvort sá sem andmælir hyggst mæta til skýrslutöku. 14. ágúst 2020 Norton Rose Fulbright LLP, 3 More London Riverside, London, SE1 2AQ, United Kingdom Lögmenn sem starfa fyrir Starr International (Europe) Limited og Starr Europe Insurance Limited Tilv: DJXW/1001086004 14. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.87 Sterlingspund 178.45 Kanadadalur 103.01 Dönsk króna 21.63 Norsk króna 15.273 Sænsk króna 15.697 Svissn. franki 149.76 Japanskt jen 1.2808 SDR 192.64 Evra 161.07 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.7886 Hrávöruverð Gull 1931.7 ($/únsa) Ál 1749.5 ($/tonn) LME Hráolía 44.62 ($/fatið) Brent ● Vergur gjaldeyrisforði Seðlabanka Ís- lands nam 964,9 milljörðum króna í lok júlí og hafði lækkað um 44,3 millj- arða frá júnímánuði. Bendir Seðlabank- inn á að útgreiðslur gjaldeyriseigna bankans og ríkissjóðs séu áætlaðar 1,7 milljarðar næstu 12 mánuði en að áætl- anir í lok júní hafi gert ráð fyrir 48,1 milljarði. Mismunurinn liggur í greiðslu skuldabréfs sem tekið var í júlí 2014 og kom til greiðslu í júlí 2020. Gjaldeyrisforðinn lækk- aði um 44,3 milljarða BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ýmsir ráku upp stór augu þegar tilkynnt var um það eftir lokun markaða á miðvikudag að olíufélag- ið Skeljungur hefði keypt fjórð- ungshlut í veitingastaðnum Gló og handverksbak- aríinu Brauði & co. Árni Pétur Jónsson, for- stjóri Skeljungs, segir hins vegar að kaupin séu í takt við þróun sem nú eigi sér stað víðast hvar í Evrópu. „Við horfum sérstaklega til Bretlands og einnig þess sem er að gerast í Skandi- navíu. Þar eru fyrirtæki eins og okkar að umbreyta hinum hefð- bundnu gömlu bensínstöðvum.“ Bendir hann á að lóðir þær sem bensínstöðvar standi á eigi það yfirleitt sammerkt að vera illa nýttar en einstaklega vel staðsett- ar. „Við höfum áhuga á að gera þessar stöðvar að meira spennandi áningarstað en þær eru nú. Þar viljum við horfa til aukins fersk- leika og heilbrigðis og þá var mjög spennandi að efna til samstarfs við Gló og Brauð & co. Við erum að þróa okkar áherslur í átt að vörum eins og þeim sem þessi fyrirtæki bjóða upp á. Með því að setja þess- ar vörur inn á okkar stöðvar teljum við að fólk vilji frekar stoppa þar.“ Þá hefur stefnan verið sett á frekari vöruþróun sem sniðin verði að þörfum viðskiptavina Skeljungs. „Brauð & co. er t.d. ekki aðeins með gott brauðmeti heldur einnig mjög gott salat af ýmsum toga. Þá hefur Gló verið að þróa vörulínu sem kölluð er Gló to go, safa og salöt af ýmsu tagi í handhægum einingum. Þetta getur hentað mjög vel fyrir stöðvarnar okkar og við munum þróa það áfram með fyrir- tækjunum.“ Árni Pétur segir að jafnvel kunni að vera að fyrirtækið muni ganga skrefinu lengra og hreinilega taka heilu stöðvarnar undir starfsemi þessara fyrirtækja. „Það gæti vel gerst að við tækj- um einhverja Kvikk-stöð og breytt- um henni þanig að þar værum við ekki með almenna vöru í sölu held- ur t.d. bara vörur frá Brauði & Co. Það kemur þó í ljós hvernig það verður og við erum núna að leggja það niður fyrir okkur hvernig þetta getur lítið út og hvaða staðir henta fyrir hvaða vöru.“ Hann segir að þjónustan sem fyrirtækið geti hugsað sér að veita á stöðvum sín- um sé margþætt. Það birtist nú þegar í því að það hafi hafið sam- starf við Póstinn með uppsetningu svokallaðra póstboxa. Einnig sé nú komið á samstarf um bílaapótek sem Lyfsalinn heldur utan um á Vesturlandsvegi. Apótek í stað hamborgara „Sú breyting, þ.e. að hefja sam- starfið við Lyfsalann, undirstrikar að við leggjum aukna áherslu á heilbrigði. Við erum að skipta út hamborgarastað fyrir apótek.“ Árni Pétur segir að Skeljungur muni nú tilnefna fólk í stjórnir fyr- irtækjanna en ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um hvort frekari fjárfesting í þeim muni eiga sér stað. Þá er kaupverðið trúnaðarmál en seljandi hlutarins er Eyja fjár- festingafélag sem er í eigu hjónanna Birgis Þ. Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur. Árni Pétur segir að Skeljungur muni ekki láta hér við sitja. Fleira sé á teikniborðinu. „Á þessum tímapunkti get ég ekki sagt meira en við erum bæði að skoða tækifæri í samstarfi og því að fjárfesta í fyrirtækjum. Ég vona að við getum upplýst um frekari þróun í þessum efnum í næsta uppgjöri.“ Áherslan á frísk- leika og heilbrigði Morgunblaðið/Eggert Vinsældir Brauð & co. var stofnað árið 2013 og hefur á fáum árum orðið eitt allra vinsælasta bakarí á landinu og er nú með útsölustaði á sjö stöðum.  Skeljungur kaupir fjórðungshlut í Brauði & Co. og Gló Árni Pétur Jónsson Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ríflega 5.000 fólksbílum er nú ekið um götur Íslands þar sem eini orku- gjafinn er rafmagn. Hefur þróunin í þeim efnum verið mjög hröð og sést það hvað best á því að í árslok 2015 voru farartækin sem þannig voru búin aðeins 238 talsins. Flotinn vex hratt og á fyrstu sjö mánuðum þessa árs var flutt til landsins 1.161 bifreið sem aðeins er knúin áfram með rafmagni. Lengi vel var Nissan Leaf vinsælasti bíllinn í flokki hreinna rafbíla en jafnt og þétt hafa fleiri framleiðendur sótt í sig veðrið og nú heyrir það næstum til undan- tekninga ef bílasmiðir bjóða ekki upp á einhverjar útfærslur bíla sinna sem annaðhvort ganga að öllu leyti eða að hluta á rafmagni. Líkt og taflan hér að ofan sýnir glögg- lega hefur enginn framleiðandi tærnar þar sem bandaríski rafbíla- framleiðandinn hefur hælana þegar kemur að sölutölum ársins 2020 hér á landi. Á fyrstu sjö mánuðum árs- ins hafa 453 bílar af tegundinni Tesla 3 verið fluttir til landsins og er það 39% af heildarinnflutningi raf- bíla til landsins. Að nokkru marki skýrist hinn mikli fjöldi af því að til landsins bárust snemma á árinu stórar sendingar þessarar tegundar eftir að kaupendur höfðu beðið tals- vert lengi eftir því að Tesla næði að anna gríðarlegri spurn eftir þessari nýjung úr smiðju sinni. Verðið var sömuleiðis mjög skaplegt þótt veik- ing krónunnar hafi haft áhrif á verð- miðann líkt og hjá flestum ef ekki öllum bílasölum sem hér starfa. Enn er þó hægt að kaupa bíla af þessari tegund í landinu á vel innan við 6 milljónir. Mun færri eintök voru flutt inn af Tesla X- og S-bifreiðum eða 8 af fyrrnefndu undirgerðinni og 5 af þeirri síðarnefndu. Þeir eru enda mun dýrari og kosta frá tæpum 11 milljónum og upp í ríflega 16 millj- ónir. Athygli vekur að fyrsti bíllinn af gerðinni Porsche Taycan Turbo S hefur verið skráður hér á landi. Um er að ræða gríðarlega öflugan sport- bíl sem skilað 761 hestafli og er að- eins 2,8 sekúndur í hundraðið. Verð- miðinn er heldur ekki af lakari gerðinni. Bílabúð Benna gefur ekki upp hvað slíkur bíll kostar en áætla má að verðið sé ekki undir 30 millj- ónum. Sala á rafbílum fyrstu sjö mánuði ársins Tegund Fjöldi Hlutdeild Tesla Model 3 453 39,0% Audi E-Tron 50 119 10,2% Hyundai Kona 95 8,2% Volkswagen Golf 68 5,9% KIA Niro 64 5,5% KIA Soul 39 3,4% Nissan Leaf 35 3,0% Mercedes-Benz Eqc 33 2,8% Opel Ampera-E 30 2,6% Renault Zoe 28 2,4% Audi E-Tron 55 23 2,0% Peugeot 208 23 2,0% Jaguar I-Pace 19 1,6% Audi E-Tron 17 1,5% Nissan Leaf 62kwh 17 1,5% MG Mg Zs Ev 16 1,4% Tegund Fjöldi Hlutdeild Hyundai Ioniq 14 1,2% Volkswagen Up! 13 1,1% Mini Cooper Se 12 1,0% Nissan Leaf 40kwh 12 1,0% Tesla Model X 8 0,7% Mercedes-Benz Eqc 400 4matic 7 0,6% Tesla Model S 5 0,4% BMW i3s 4 0,3% Nissan E-Nv200 3 0,3% Audi E-Tron Sportback 50 1 0,1% Peugeot 2008 1 0,1% Porsche Taycan Turbo S 1 0,1% Porsche Taycan 4s 1 0,1% Samtals 1.161 Heimild: Bílgreinasambandið Tesla með algjöra yfirburði á árinu  Einn Porsche Taycan Turbo S seldur Hagnaður fasteignafélagsins Regins eftir skatta nam 95 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Dróst hann verulega saman frá fyrra ári þegar félagið hagnaðist um ríflega 2,1 milljarð á fyrri árshelmingi. Rekstr- arhagnaður fyrir matsbreytingu dróst saman um 200 milljónir og nam 3.040 milljónum. Matsbreytingar fjárfestingaeigna voru neikvæðar sem nam 62 milljónum en á fyrri árs- helmingi 2019 voru þær jákvæðar um 2.189 milljónir. Leigutekjur námu rúmum 4,4 milljörðum á fyrstu sex mánuðum þessa árs og lækkuðu um 2,1% frá sama tíma í fyrra þegar þær námu rífleag 4,5 milljörðum. Rekstrar- kostnaður jókst talsvert og nam 1.696 milljónum en var ríflega 100 milljónum lægri yfir sama tímabil 2019. Munaði þar mestu um rekstr- arkostnað fjárfestingareigna sem fór úr 979 milljónum í 1.096 milljónir. Tap varð á rekstri félagsins á öðr- um ársfjórðungi og nam það 209 milljónum, samanborið við ríflega 1 milljarðs hagnað á öðrum fjórðungi síðasta árs. Segir félagið að tapaðar tekjur af völdum kórónuveirunnar á fjórðungnum hafi numið 282 milljón- um og frestaðar tekjur 180 milljón- um. Fjárfestingareignir Regins voru metnar á 143,7 milljarða í lok júni, og höfðu aukist um tæplega 3 milljarða frá áramótum. Skuldir félagsins námu 102,8 milljörðum en höfðu numið 98,6 milljörðum við áramót. Reginn hagnast um 95 milljónir  209 milljóna tap á öðrum fjórðungi Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.