Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 21
að vélrita skrif hans. Það var ekki alltaf auðvelt að lesa skriftina, en ekki síður að skilja flókinn og fræðilegan textann. Wolfgang var líka óspar á nýyrðasmíði ef svo verkaðist. En hann hafði ótrúlegt vald á íslensku í tali og riti og gat marg- ur lært mikið af honum. Wolfgang var alla tíð mikill lærifaðir minn en hann var ekki síður náinn vinur. Á Kaupmanna- hafnarárum mínum skrapp ég nokkrum sinnum í heimsókn til Berlínar til Wolfgangs og Moniku þegar tvíburarnir voru litlir. Átt- um við margar ánægjustundir. Það hefur verið mikil gæfa að hafa fengið að njóta úr viskubrunni Wolfgangs og samvista við hann og fjölskylduna í gegnum árin. Fyrir það vil ég þakka frá dýpstu hjartarótum og votta fjölskyld- unni innilega samúð mína. Megi minningin um mikinn fræðimann og góðan dreng lifa. Guðný Helgadóttir. Ég hitti vin minn Wolfgang Edelstein í síðasta skipti fyrir um það bil einu ári. Við áttum líflegar umræður í hópi góðra vina. Wolf- gang sem var þá orðinn níræður var eins og alltaf hrókur alls fagn- aðar. Skemmtilegur og hlýr, skarpur og athugull. Talið barst að sígildum kenningum í uppeldis- og skólamálum og þýðingu þeirra fyrir málefni líðandi stundar. Hér var Wolfgang á heimavelli. Hann hafði varið heilli mannsævi í að tengja fræðikenningar og hagnýtt starf í uppeldis- og skólamálum í samhengi nýrra þjóðfélagsað- stæðna. Eins og svo oft áður sner- ist umræðan brátt um Habermas og Kohlberg, merka fræðimenn og samstarfsmenn Wolfgangs, en einnig um þá Jean Piaget og John Dewey. Fræðimaðurinn aldraði fór á kostum er hann útlistaði fyr- ir okkur hinum að hugmyndir þessara manna væru langt frá því að vera úreltar. Enda væri aug- ljóst að ekkert er mikilvægara en siðgæðisuppeldi og efling lýðræð- is. Eins væri hitt að grundvallar- hugmyndir merkra fræðimanna halda gildi sínu oft betur en rann- sóknarniðurstöður sem tengdar eru tilteknum og oft breytilegum aðstæðum. Ég spurði Wolfgang af hverjum þessara fræðimanna hann hefði lært mest. Hann svar- aði að bragði: „Ég held að ég hafi nú lært mest af bræðrunum á Stóru-Giljá. Þeir hikaðu ekki við að ráðast í ný og krefjandi verk- efni. Þeir trúðu því að með útsjón- arsemi, hugkvæmni og þraut- seigju mætti sigrast á flestum erfiðleikum.“ Þeir höfðu til dæmis ekki neina reynslu eða sérþekk- ingu á húsbyggingum, en létu það ekki aftra sér frá því að byggja nýtt og reisulegt hús. Þeir leystu einfaldlega vandamálin sem upp komu jafnóðum. Þegar þeir strönduðu sögðu þeir: „Við sofum á þessu þangað til á morgun.“ Wolfgang Edelstein var á sinn hátt mesti Íslendingurinn af okk- ur öllum. Wolfgang átti langan og glæsi- legan starfsferil. Hann var virtur fræðimaður og sérfræðingur á sviði uppeldis- og skólamála. Rannsóknir hans voru fyrst og fremst á sviði félagsmótunar og þroskasálfræði. Einn helsti sam- starfsmaður Wolfgangs í þessum rannsóknum var eiginkona hans, dr. Monika Keller, en samstarf þeirra var til mikillar fyrirmynd- ar. Framlag Wolfgangs til skóla- mála á Íslandi verður seint ofmet- ið. Það mun verða fræðimönnum umfjöllunarefni um ókomna tíð. Hann var óþreytandi við að efla kennara, styrkja fagvitund þeirra og hvetja þá til þess að afla sér menntunar við bestu skóla heims. Við Jóna kveðjum Wolfgang með söknuði og þakklæti fyrir all- ar góðu stundirnar sem við áttum með honum og Moniku. Ég færi Moniku, Benna og Önnu Lilju okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þórólfur Þórlindsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 ✝ Gerður KristínKristinsdóttir fæddist 3. maí 1941 í Merki við Ham- arsfjörð. Hún lést 5. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Kristinn Jó- hannsson og Guðný Sigurborg Sigurð- ardóttir. Gerður giftist Kristjáni Birni Sigurðssyni 1962. Þau bjuggu á Eskifirði á árunum 1962-1974. Á Ísafirði bjuggu þau til ársins 1982 þegar þau fluttust að Ármúla við Kaldalón í Ísafjarðardjúpi þar sem þau bjuggu til ársins 1986, þegar Kristján lést af slysförum. Gerður bjó vestur á fjörðum til ársins 1987 þegar hún flutti til Hafnarfjarðar, en sinnti þó ferðaþjónustu að Ármúla á sumrin til ársins 1991. Gerður bjó í Hafnarfirði allt til dánardægurs. Börn hennar og Kristjáns eru: Sig- urður, f. 1962, Sig- urborg, f. 1963, Ásta, f. 1964, d. 1965, Heiðar Birn- ir, f. 1969, Víking- ur, f. 1972, Hlynur, f. 1974, og Júlía Hrönn, f. 1976. Barnabörn Gerð- ar eru sextán að tölu og lang- ömmubörn hennar eru tvö. Út- förin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. ágúst 2020, klukkan 15. Í ljósi aðstæðna gilda fjöldatakmark- anir við athöfnina, en henni verður streymt fyrir vini. https://www.facebook.com/ gerdurkr Elsku mamma. Það er erfitt að átta sig á þeirri staðreynd að þú ert ekki lengur hjá okkur. Við höfum frá því þú fórst, hvert og eitt, upp- lifað reglulega hugsunina um að hafa samband við þig, heyra í þér, láta þig vita af okkur, segja þér fréttir, fá fréttir af þér. Kíkja í kaffibolla. Þannig verður það eflaust um tíma. Smám saman sest hún, til- hugsunin um að þú ert ekki lengur hér. Þú ert minning. Gerður merkir vernd, og þú barst nafn sem lýsir þér vel. Þú helgaðir líf þitt okkur, fjölskyld- um okkar og afkomendum. Þú gerðir ávallt þitt til að vernda okkur, varst alltaf til taks, tilbú- in að aðstoða og hjálpa af þinni einstöku góðmennsku og ást. Á erfiðum tímum var gott að sitja með þér og ræða af yfirvegun og æðruleysi um hlutina. Að sitja í þögn með þér gaf manni meira að segja styrk. Þú vissir hvað það er að vera til staðar. Ánægjustundir áttum við margar og góðar. Þér fannst best þegar við vorum sem flest saman komin, með ömmubörnin stór og smá og hláturinn og gleðina sem því fylgdi. Þá varstu ríkust. Sjálf hafðir þú reynt ýmislegt um ævina og upplifað bæði mikla gleði og djúpa sorg. Með leiðarvísi frá þér héldum við út í lífið. Heiðarleiki og æðruleysi, góðmennska og hlýja. Þessa eig- inleika færðir þú okkur í vega- nesti, ásamt vissu þinni um að við myndum gera okkar besta. Við erum systkinahópur sem missti föður snemma á lífsleið- inni, og frá þeim degi stóðst þú enn fastar og varst bjargið okk- ar. Þú varst miðjan í hringnum og það er ekki síst nærveru þinni að þakka hve samrýmd og náin fjölskylda við höfum alltaf verið. Það er ómetanlegt á sorg- arstund sem þessari að við höf- um hvert annað til að halla okk- ur að. Saman tökumst við nú á við þennan mikla missi. Þú munt alla tíð lifa í hugum okkar og hjörtum. Þú lifir í okkur. Megi góðmennska þín og hlýja finna sinn farveg í okkur. Hvíldu í friði, elsku mamma. Sigurður, Sigurborg, Heiðar Birnir, Víkingur, Hlynur, Júlía Hrönn. Í dag kveð ég tengdamóður mína og minnist margra góðra stunda sem við höfum átt og læt ég hér fylgja nokkur minninga- brot. Gerður hafði hlýlegt viðmót og var það hennar einkenni. Hún hafði endalausa þolinmæði fyrir barnabörnunum, leikjum þeirra og þeim gaf hún alltaf þann tíma sem þurfti. Strák- arnir mínir fengu að njóta þess. Margsinnis kom Gerður norður og dvaldi hjá okkur til lengri eða skemmri tíma, þar var hún okk- ur bæði til aðstoðar og ekki síð- ur til skemmtunar. Rétt áður en við Siggi fluttum norður þá fórum við eina helgi til þess að fá afhenta lykla að Munkanum og byrja fram- kvæmdir. Kristján var þá tveggja ára, duglegur og röskur strákur og Gerður kom með okkur til þess að hafa ofan af fyrir honum. Þessa helgi áttu því Gerður og Kristján fyrir sig og voru á labbi um bæinn, skoð- uðu leikvelli eða annað sem fyrir augu bar. Eitthvað hafa þau komið við og fengið sér hress- ingu því eftir helgina var Krist- ján farinn að kalla ömmu sína Ömmu ís öðrum til aðgreiningar. Þetta viðurnefni hélst við Gerði hjá okkur í Munkanum. Gerður kom stundum með okkur í ferðalög og útilegurnar okkar voru skemmtilegar. Ferð- in um Vestfirði árið 2005 stend- ur upp úr. Þar þræddum við suðurfirðina og áfram til Ísa- fjarðar, allt yfir á Snæfjalla- strönd. Þar voru þau Siggi á heimavelli og gaman var að upp- lifa og heyra af því sem þau höfðu að segja. Spjallað var við bónda í heyflekk, fenginn kaffi- sopi hjá gömlum nágranna og húsvitjað hjá Ásu vinkonu Gerð- ar, sem var höfðingi heim að sækja. Í fyrrasumar fór Gerður með okkur í tjaldvagninum aust- ur á land. Á fjörðunum var farið í heimsóknir til vina og ættingja, söfn skoðuð og saman nutum við lífsins. Þegar við komum í heimsókn- ir til Gerðar í Hafnarfjörðinn vorum við ekki búin að stoppa lengi þegar strákarnir okkar voru búnir að fá ömmu sína með sér niður í geymslu til að ná í dótakassana og stofugólfinu var breytt í byggingarsvæði. Gerði þótti ekkert tiltökumál þótt ekki væri hægt að stíga niður fæti vegna bygginga. Í dótakössum hennar var að finna gersemar sem þeir töldu ekki vera að finna annars staðar og sögðu vinum sínum fjálglega frá þeim. Má þá fyrst nefna Playmo-kúre- kakrá með öllu tilheyrandi. Það var mikil gleðistund þegar Þor- mar gat boðið Munda vini sínum með sér til ömmu og sýnt hon- um krána, eftirvæntingin hafði verið mikil. Sennilega eru þess- ar krár ekki framleiddar sem leikföng í nútímanum. Á náttborðinu mínu eru tvær bækur sem ég fékk í láni hjá Gerði rétt um daginn, en það var viðtekin venja mér að fá hjá henni lesefni þegar ég kom í heimsókn. Hún hafði nefnilega mjög næmt auga fyrir því hvaða bækur mér myndi líka og stund- um hafði hún tekið þær til handa mér ef hún vissi að ég væri að koma. Þessar tvær bæk- ur náum við ekki að ræða eins og við gerðum jafnan en ég mun hugsa til hennar og jafnvel ræða við hana í huganum. Ég þakka tengdamóður minni fyrir allar þessar minningar og stundir sem við áttum saman. Ég vil sérstaklega þakka henni stundirnar sem hún átti með drengjunum mínum, þær eru ómetanlegar. Sigþóra. Elsku Gerður. Það var frekar aum og ráð- villt 15 ára stúlka sem stóð á tröppunum hjá þér haustið 1993 með ferðatösku sér við hlið, komin til dvalar hjá þér fyrstu tvö ár menntaskólagöngunnar. Mér fannst ég ekki þekkja þig mjög mikið, enda var landfræði- lega ansi langt á milli okkar fyrstu ár minnar æsku. Þegar þarna var komið sögu hafði lífið lagt ýmislegt á þínar fíngerðu herðar. Þú hafðir misst Kristján þinn sjö árum fyrr frá sex börn- um, þar af fjórum óuppkomnum, og flutt í Hafnarfjörð með yngri börnin þín. Þrátt fyrir það – eða kannski einmitt þess vegna – bjó mikil styrkur og yfirvegun í þínu fari. Þú hafðir um stórt heimili að hugsa á þessum tíma því það bjó margt ungt fólk und- ir þínum verndarvæng, bæði þín eigin börn og svo heimalningar eins og ég sem voru að fara í skóla langt að heiman og fengu inni hjá þér. Auk þess voru tvö lítil barnabörn oft í pössun og auðvitað vannstu úti meðfram þessu öllu saman! Sem fullorðin manneskja geri ég mér betur grein fyrir hvað þessu hefur fylgt gríðarlega mikil vinna og álag, en aldrei heyrði ég þig kvarta yfir þreytu. Einu stund- irnar sem ég man eftir að þú hafir tekið þér fyrir þig sjálfa – svona fyrir utan gönguferðir til og frá vinnu í Kópavogi – fóru í bókalestur. Ég átti sjálf ekki alltaf auðvelt með að fóta mig á þessum árum, en man enn hvað það var notalegt andrúmsloft í kringum þig og hvað þú náðir að skapa mikla festu og öryggi fyr- ir okkur öll sem hjá þér dvöld- um. Ég hef sjaldan kynnst jafn- sterkri og stóískri manneskju og þér og ég veit að þú varst mikill burðarstólpi í lífi barnanna þinna og traust vinkona systra þinna. Þó að við hittumst ekki oft í seinni tíð er afskaplega erf- itt að kveðja þig. Mér þótti svo undurvænt um þig, elsku frænka; takk fyrir allt. Þín systurdóttir, Anna Heiður. Elsku systir. Ekki grunaði mig þegar ég kom til þín í sumar að það yrði síðasta skiptið sem við hittumst. Þetta var góð stund, spjallað bæði um gamla og nýja tíma, minnið hjá þér alveg óbrigðult en líkaminn orðinn lúinn. Bækur voru í seilingarfjarlægð, enda hafðir þú yndi af lestri góðra bóka. Mínar fyrstu minningar um þig snúast einmitt um bæk- ur, en þá varstu svo niðursokkin í lestur að það var ekki nokkur leið að ná sambandi við þig! Aðrar minningar frá bernskunni sem koma upp í hugann eru af ykkur systrum mínum þegar þið rudduð eldhúsgólfið og dönsuð- uð með miklum tilþrifum bæði gömlu og „nýju“ dansana. Þá var gaman og mikið hlegið. Árin liðu og þú fórst að búa með Kristjáni, fyrst á Eskifirði, svo á Ísafirði og því næst inni í Djúpi. Við skrifuðumst stundum á og ég man hvað það var skemmtilegt að fá bréf frá þér, þú varst svo góður penni. Sím- tölin okkar á milli voru líka ófá. Ég vil þakka þér yndislegar móttökur og samverustundir (eins og alltaf) þegar við heim- sóttum ykkur vestur. Þá var far- ið með allan krakkaskarann í sund í Reykjanesi, sem var nú ekki leiðinlegt. Aldrei féll þér verk úr hendi og ótrúlegt hvað þú afkastaðir miklu. Þú hafðir gaman af allri handavinnu og prjónaðir og saumaðir á börnin bæði stór og smá. Tíminn er fljótur að líða, mér finnst ekki langt síðan en sennilega er að verða komið vel á annan áratug síðan við systurnar þrjár feng- um okkur góðan göngutúr inn Hálsa, virtum fyrir okkur æsku- stöðvarnar og rifjuðum upp ým- islegt frá liðinni tíð. Þegar heim var komið var spjallað og hlegið yfir kaffibolla, þú hafðir góðan húmor og sást oft spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Þú hafðir alltaf svo góða nærveru, elsku systir. Að lokum vil ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu. Elsku Júlía, Hlynur, Víkingur, Heiðar, Bogga, Siggi og fjölskyldur, missir ykkar er mikill. Guð veri með ykkur. Hvíl í friði, elsku Gerður. Þín litla systir, Svandís. Elsku systir, mikið sakna ég þín. Við ætluðum að eiga marg- ar góðar stundir saman. Þú hef- ur alltaf verið í mínum huga frá því við vorum litlar stelpur, þú árinu eldri og vitrari. Við vorum leikfélagar og áttum ímyndaða vini sem við höfum oft rifjað upp og getað hlegið að. Við byggðum hús úr steinum og mosa, bein og leggir voru dýrin okkar, gerðir voru vegir og bræður okkar smíðuðu bíla handa okkur. Margt annað var gert eins og á veturna bjuggu bræður okkar til skíði úr tunn- ustöfum og þegar snjóaði þá renndum við okkur á túninu heima í Merki. Við gengum dag- lega saman í skóla á Djúpavogi sem var um þrjá kílómetra frá Merki alla okkar barnaskóla- göngu og mikið var nú gott að hafa þig alltaf mér við hlið. Þeg- ar þú varst aðeins 9 ára gömul fórst þú að Núpi um sumartíma til að passa lítinn dreng og það er okkar fyrsti viðskilnaður en næsta sumar fórst þú að Stafa- felli í Lóni og næstu þrjú sumur þar á eftir dvaldir þú í Ártúni í Nesjum að passa börn. Svo koma fullorðinsárin og þá var langur vegur okkar á milli en alltaf hélst sterkt samband og eins hjá okkar börnum. Seinni árin, þegar við vorum báðar búnar að missa okkar menn og búsettar í Hafnarfirði, hittumst við nær daglega eða síðustu rúmlega 30 árin. Elsku Gerður mín, ég á eftir að sakna ferðanna á Ölduslóð til þín í café latte, skrafa og hlæja, tala um bækur og allt milli him- ins og jarðar. Við vorum vinir, systur og sálufélagar. Þín Sibba systir, Sigurbjörg Kristinsdóttir. Þá eik í stormi hrynur háa. Hamra því beltin skýra frá. En þegar fjólan fellur bláa, fallið það enginn heyra má. En ilmur horfinn innir fyrst, urtabyggðin hvers hefur misst. (Bjarni Thorarensen) Fyrir tæpri viku áttum við Gerður stund saman. Ég hitti Boggu og Júlíu dætur hennar og tíminn leið örskotshratt við glatt spjall um eitt og annað. Við kvöddumst, ég sagði að ég liti aftur inn þegar ég kæmi næst suður og svo væri nú blessaður síminn. Einu símtali náðum við en það verður ekkert næst. Alltaf er maður jafn óviðbúinn dauðanum þó hann sé það eina sem er öruggt í þess- um heimi. Þegar Gerður og Kristján fluttu í Ármúla með hópinn sinn þá vakti það óblandna gleði nágranna. Skarðið var stórt eftir þá bræð- ur Sigurð og Kristján Hann- essyni og þeirra fólk og gleði- efni að sjá aftur ljós í glugga. Á Laugalandi og í Ármúla voru börn á sama aldri sem urðu vin- ir og skólafélagar og þau hjónin tóku strax þátt í félagslífi sveit- arinnar og urðu þar leiðandi. Á þessum árum töldum við Gerð- ur ekki eftir okkur að fara eina til tvær bæjarleiðir fótgangandi. Um Jónsmessuleytið var stefnt til fjalla með barnahóp. Að Kaldárvatni á Ármúlafjalli, að jökli í Kaldalóni, út að Möngu- fossi á Snæfjallaströnd eða fram í Hraundal. Að sitja með nesti og kakó í hitabrúsa við sólarupprás skapaði minningar sem gleymdust ekki. En það var bundinn snöggur og óvæntur endi á Ármúladvöl. Kristján fórst í flugslysinu í Ljósufjöllum og allt gjörbreytt- ist á einu andartaki. Oft er það svo að þegar leiðir skiljast þá rofna þau bönd er áður knýttu saman en þannig fór ekki með okkur Gerði. Vin- átta og væntumþykja óx með hverju ári og nú seinast höfðum við símasamband með fárra daga millibili. Alltaf var eitt- hvað sem hægt var að tala um; bækur, ljóð, lausavísur eða blóm sem brosti við sól þann daginn. Hún var svo góður áheyrandi og að ræða við þann sem gjörþekkir það sama og maður sjálfur er alveg einstakt og gefandi. Gerði Kristinsdóttur er best lýst með þeim ummælum að hún var miklum mannkostum búin. Það gustaði ekki af henni né lét hún á sér bera frekar en fjólan sem ég vitna til í upp- hafsorðum en hún var klettur- inn og skjólið sem fólkið hennar leitaði til þegar á móti blés. Hógvær og svo hlý og elskuleg, trygg og traust til seinasta dags. Stundum er eins og ein- hverju sé ætlað að verða. Ann- an ágúst hittust þau öll systk- inin hjá mömmu sinni og áttu þar góða stund. Þau hafa mikið misst en þau eiga líka góðar minningar um yndislega móður og ömmu. Ég og mitt fólk vottum ölllum að- standendum Gerðar innilega samúð. Ég ætla að vona að í sumarlandinu fáum við Gerður að sitja saman hátt uppi í Laugalandsfjalli þar sem er svo bratt að maður verður að halda sér í grastoppana með annarri hendi og tína aðalbláberin með hinni. Svo horfum við niður dal- inn, sjáum Selána bugðast um sléttlendið og Ármúlahúsin í fjarska. Við bíðum þess að ein- hver komi til að halda á berja- fötunum okkar. Nei, það þarf ekki. Nú erum við svo léttar að við svífum heim á leið. Það er ekk- ert lengur sem hamlar. Guð geymi þig, Gerður mín. Þín vinkona, Ása Ketilsdóttir. Gerður Kristín Kristinsdóttir Útför HEIÐVEIGAR PÉTURSDÓTTUR fer fram þriðjudaginn 18. ágúst klukkan 13 í Fossvogskirkju. Þorgerður Þorleifsdóttir Þorleifur Eiríksson Sigríður Jakobsdóttir Pétur Sigtryggsson Sigtryggur Pétursson Sigurður Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.