Morgunblaðið - 14.08.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020
Heimir Hallgrímsson og landsliðs-
fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson
máttu sætta sig við tap í Katar í gær.
Al-Arabi heimsótti Al-Sailiya sem hafði
betur 1:0 og náði að slíta sig þremur
stigum frá Al-Arabi í deildinni. Þar er
Íslendingaliðið í 6. sæti með 25 stig
eftir 21 leik en Al-Sailiya er nú með 28
stig eftir 21 leik.
Kristófer Páll Viðarsson knatt-
spyrnumaður frá Fáskrúðsfirði hefur
snúið aftur til Keflavíkur frá uppeldis-
félaginu Leikni F. þar sem hann hefur
verið að láni undanfarnar vikur. Krist-
ófer skoraði grimmt fyrir Leikni á ár-
unum 2014 til 2016 og gerði tíu mörk
fyrir liðið þegar það hélt sér óvænt í 1.
deildinni 2016. Hann hefur síðan leikið
með Fylki, Selfossi og síðast Keflavík
en missti alveg af síðasta tímabili
vegna meiðsla. Keflavík seldi kant-
manninn Adam Ægi Pálsson til Vík-
inga úr Reykjavík í vikunni og verður
Kristófer væntanlega ætlað að fylla
skarð hans.
Belgíski varnarmaðurinn Jan Ver-
tonghen fer í læknisskoðun hjá portú-
galska liðinu Benfica og ef allt gengur
að óskum mun hann skrifa undir
þriggja ára samning hjá félaginu. Ver-
tonghen er 33 ára gamall en hann yfir-
gaf Tottenham á frjálsri sölu fyrir
nokkrum vikum eftir að hafa spilað í
ensku úrvalsdeildinni í átta ár. Hann
spilaði yfir 300 leiki fyrir Lundúna-
liðið. Benfica var í öðru sæti portú-
gölsku deildarinnar á síðasta keppn-
istímabili og tekur þátt í undankeppni
Meistaradeildar Evrópu.
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks
hefur samið við bandaríska leikstjórn-
andann Jessie Loera um að leika með
liðinu á Íslandsmóti kvenna í körfu-
knattleik næsta vetur. Félagið greindi
frá þessu á heimasíðu sinni í gær.
Loera er 23 ára gömul og kemur til
Kópavogsliðsins frá háskóla í Wash-
ington í Bandaríkjunum, Þar skoraði
hún að meðaltali 7,5 stig og tók 4,8
stoðsendingar í leik en hún þykir góð
þriggja stiga skytta.
Manchester City hefur gert 57 millj-
ón punda tilboð í Kalidou Koulibaly,
varnarmann ítalska knattspyrnu-
félagsins Napoli, en enska götublaðið
The Sun segir frá þessu. Senegalinn
yrði þá annar miðvörðurinn sem City
kaupir í sumar á eftir Nathan Aké sem
kom frá Bournemouth. Koulibaly er
samningsbundinn Napoli til sumarsins
2023 en ítalska félagið er tilbúið að
selja Senegalann gott tilboð. The Sun
segir að 57 milljónir munu ekki duga
til en að forráðamenn City líti á þetta
sem fyrsta boð af nokkrum. Ásamt
Aké er City búið að kaupa kantmann-
inn Ferran Torres frá Valencia en Man-
chester-liðið er í sókn á félagsskipta-
markaðnum eftir að hafa misst
Englandsmeistaratitilinn til Liverpool.
Eitt
ogannað
SKOTLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ísak Snær Þorvaldsson, 19 ára
Mosfellingur, gekk á dögunum til
liðs við skoska knattspyrnufélagið
St. Mirren að láni frá Norwich á
Englandi. Ísak samdi við Norwich
árið 2017 og hefur leikið með ung-
lingaliðum félagsins. Er þetta í
annað skipti sem Ísak er lánaður
frá Norwich en hann lék með
Fleetwood í ensku C-deildinni eftir
áramót.
„Þetta er búið að vera á borðinu
síðan í janúar, þá hafði St. Mirren
fyrst áhuga á mér, en þá endaði ég
á því að fara til Fleetwood. Þeir
sýndu mér svo aftur áhuga fyrir
þetta tímabil og ég ákvað að slá til.
Ég vissi í rauninni ekki mikið um
liðið og skosku úrvalsdeildina en
það var einn leikmaður úr Norwich
hjá St. Mirren á síðustu leiktíð og
hann talaði vel um klúbbinn, fékk
mikinn spilatíma og gaf þessu góð
meðmæli,“ sagði Ísak í samtali við
Morgunblaðið. Hann er hrifinn af
St. Mirren til þessa. „Þetta er mjög
flott, þetta er ekki stærsta æf-
ingasvæði í heimi en þetta gerir
sitt. Völlurinn er mjög flottur,
borgin er flott og þetta lítur mjög
vel út. Leikmannahópurinn er góð-
ur líka.“
Ísak ætlar sér að komast í byrj-
unarlið St. Mirren og heilla í leið-
inni forráðamenn Norwich, en
enska liðið féll úr úrvalsdeildinni á
síðasta tímabili og niður í B-
deildina. „Norwich hefur mögu-
leikann á að kalla mig til baka í jan-
úar og markmiðið mitt er að fá að
spila núna og sanna fyrir Norwich
að ég sé nógu góður í Champions-
hip-deildina [ensku B-deildina].“
Heppinn að hafa fjölskylduna
Var Ísak aðeins sextán ára gam-
all þegar hann fór til Norwich frá
Aftureldingu. Hann viðurkennir að
það hafi verið erfitt fyrst um sinn
að yfirgefa heimahagana í Mos-
fellsbæ, en það hafi hjálpað til að
hafa fjölskyldu og íslenska vini með
í för. „Þetta var erfitt fyrstu 1-2 ár-
in en ég var mjög heppinn að vera
með fjölskylduna, hún flutti út með
mér og það hjálpaði mjög mikið.
Svo komu Ágúst Hlynsson og Atli
Barkarson, það hjálpaði líka mjög
mikið,“ sagði Ísak en bæði Ágúst
og Atli leika nú með Víkingi
Reykjavík.
Ísak fór að láni til Fleetwood í
janúar, en lék aðeins tvo leiki í C-
deildinni, þar sem deildinni var að
lokum aflýst vegna kórónuveir-
unnar. Hinn skrautlegi Joey Barton
er knattspyrnustjóri Fleetwood en
hann var gríðarlega harður í horn
að taka sem leikmaður á sínum
tíma og lét oft skapið hlaupa með
sig í gönur. Íslenski unglingalands-
liðsmaðurinn ber Barton söguna
vel.
Lenti ekki í Joey Barton
„Það var mjög skemmtilegt að
spila fyrir Barton og hann er klár.
Hann veit mikið um fótbolta og er
mjög góður þjálfari, en hann á það
til að missa skapið. Það sást í ein-
um leik, en hann er mjög góður
þjálfari,“ sagði Ísak og viðurkennir
að Barton hafi látið menn heyra
það, ef þeir áttu það skilið. „Ég var
heppinn að ég lenti ekki í honum
sjálfur, en ég sá þegar hann hraun-
aði yfir aðra leikmenn.“
Fleetwood var í fimmta sæti C-
deildarinnar þegar tímabilinu var
aflýst og fór því í umspil um sæti í
B-deildinni þar sem liðið tapaði að
lokum fyrir Wycombe Wanderers í
undanúrslitum. Ísak tók ekki þátt í
umspilsleikjunum í júlí, þar sem
kórónuveiran var skæð í Fleetwood
og fjölskyldumeðlimir í áhættuhópi.
„Veiran var verri í Fleetwood og í
Norður-Englandi og pabbi minn er
með hjartavandamál og bróðir minn
með undirliggjandi sjúkdóma.
Ákvað ég því að taka ekki þá
áhættu að fara aftur til Fleetwood,“
sagði Ísak.
Skoska úrvalsdeildin fór af stað í
byrjun mánaðar og er St. Mirren
með einn sigur og eitt tap eftir tvo
leiki. Átti liðið að leika við stórlið
Celtic á miðvikudaginn en leiknum
var frestað þar sem Boli Bolingoli,
leikmaður Celtic, skellti sér til
Spánar án þess að láta nokkurn
mann vita. Lék hann við Kilm-
arnock stuttu síðar og æfði með
liðsfélögum sínum, en hann var
ekki skimaður fyrir kórónuveirunni
á leið sinni til og frá Spáni og bauð
því hættunni heim.
Þá greindust tveir leikmenn
Aberdeen með veiruna á dögunum
eftir að þeir skelltu sér út á lífið
eftir leik við Rangers í fyrstu um-
ferðinni. Eru skosk stjórnvöld allt
annað en sátt við kæruleysislega
hegðun leikmanna og Nicola Stur-
geon, forsætisráðherra Skotlands,
varaði leikmenn við afleiðingum
þess að fara ekki eftir settum
reglum. „Menn geta litið svo á að
þeir hafi fengið gula spjaldið. Verði
hegðunin ekki til hins betra munum
við ekki eiga annan kost en að gefa
rauða spjaldið,“ sagði hún.
Ísak segir leikmenn geta lítið
annað gert en að halda sig heima,
æfa og spila. „Leiknum á móti Cel-
tic var frestað og svo var eitthvert
vesen hjá St. Mirren með próf sem
voru ófullnægjandi en svo varð ekk-
ert meira úr því, svo við vorum
mjög heppnir. Við fáum að vera
saman á æfingu og það er eitthvað
fólk sem er pirrað yfir því en við
erum heima hjá okkur á daginn og
gerum í rauninni ekki mikið meira
en að vera bara heima og á æf-
ingasvæðinu.“
Gaman að fara í tæklingar
Ísak lék aldrei með meist-
araflokki Aftureldingar og því ef-
laust ekki margir Íslendingar sem
hafa séð hann spila á síðustu árum.
Ísak lýsir sjálfum sér sem kraft-
miklum leikmanni, en hann leikur á
miðjunni. „Mér finnst gaman að
berjast, að fara í tæklingar og láta
finna fyrir mér. Ég er með mikinn
sprengikraft og gef alltaf 110 pró-
sent í allt. Það er ein ástæða þess
að ég vildi fara í skoska boltann,
sem er mjög harður,“ sagði hann.
Jim Goodwin, knattspyrnustjóri
St. Mirren, lýsti Ísak sem skrið-
dreka í viðtali á dögunum. Ísak er
stór og stæðulegur og hann hafði
gaman að ummælum Írans. „Ég hef
alltaf verið í stærri kantinum og
það var skemmtilegt að vera kall-
aður skriðdreki,“ sagði Ísak og hló.
„Þetta er mjög almennilegur stjóri
og hann veit hvað hann syngur.
Hann vill leyfa ungum leikmönnum
að spila og liðið er ungt, þrátt fyrir
að það séu reynsluboltar inn á
milli,“ sagði Ísak, en hann á ættir
að rekja til Bandaríkjanna auk Ís-
lands. Hefur Ísak leikið með yngri
landsliðum Íslands og hann ætlar
sér að spila með A-landsliðinu.
„Markmiðið er alltaf að komast í A-
landsliðið og gera mitt besta þar,“
sagði Ísak Snær við Morgunblaðið.
Gef alltaf 110 prósent í
allt sem ég geri á vellinum
Ísak Snær lánaður til St. Mirren frá Norwich Spilaði fyrir Joey Barton
Ljósmynd/St.Mirren
Skotland Ísak Snær verður hjá St. Mirren í Skotlandi næstu mánuðina að láni frá Norwich á Englandi.
Handknattleiksmaðurinn Þráinn
Orri Jónsson hefur gengið til liðs
við Hauka og mun hann spila með
liðinu á Íslandsmótinu í vetur.
Haukar sögðu frá tíðindunum á
samfélagsmiðlum sínum.
Þráinn er línumaður sem var síð-
ast hjá danska úrvalsdeildarfélag-
inu Bjerringbro-Silkeborg. Hann
fór frá Gróttu árið 2017 og í raðir
Elverum í Noregi.
Gamla kempan Vignir Svav-
arsson lagði skóna á hilluna eftir
síðustu leiktíð og mun Þráinn því
væntanlega leysa hann af hólmi.
Þráinn Orri snýr
heim til Íslands
Morgunblaðið/Ófeigur
Línumaður Þráinn Orri Jónsson er
orðinn leikmaður Hauka.
Handknattleiksmaðurinn Örn Ingi
Bjarkason mun leika með Vík-
ingum úr Reykjavík í B-deildinni
næsta vetur.
Félagið gaf þetta út í frétta-
tilkynningu í gær.
Örn Ingi ætti að vera Víkingum
talsverður liðsstyrkur, enda fyrr-
verandi atvinnumaður sem lék um
nokkurra ára skeið með Hammarby
í Svíþjóð en hann spilaði áður með
Aftureldingu og varð einnig Ís-
landsmeistari með FH árið 2011.
Hann hefur nú ákveðið að snúa
heim frá Svíþjóð.
Víkingar nældu
í Örn Inga
Morgunblaðið/Eva Björk
Reyndur Örn Ingi Bjarkason ætti
að styrkja lið Víkings verulega.