Morgunblaðið - 14.08.2020, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Francesco Donadello, náinn sam-
starfsmaður tónskáldsins og selló-
leikarans Hildar Guðnadóttur, mun
brátt starfa með upptökuteymi Sin-
foniaNord-verkefnisins og Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands í menning-
arhúsinu Hofi, en hljómsveitar-
stjórinn Bjarni Frímann mun
stjórna hljómsveitinni.
Verkefnið sem um ræðir eru upp-
tökur á tónlist eftir tónskáldið Stein-
grím Þórhallsson og þýska píanó-
leikarann og tónskáldið Dirk Maass-
en fyrir næstu plötu Maassen, Intro-
spective, sem Sony Classical gefur
út snemma á næsta ári. Platan mun
fjalla um mannkynið og leit þess að
kjarna lífsins og er hún sögð undir
áhrifum frá útgöngubanni vegna
Covid-19.
Á plötunni leikur, auk Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands, íslenska
hljómsveitin Hugar og franski sóló-
víóluleikarinn Esther Abrahmi.
Francesco Donadello er upptöku-
stjóri og hafa þeir Maassen unnið
saman áður, að plötunni Ocean.
Steingrímur og Maassen hafa einnig
þekkst í tíu ár.
Donadello hefur komið víða við í
heimi kvikmyndatónlistar, m.a.
hljóðblandað tónlist Hildar við sjón-
varpsþættina Chernobyl, unnið með
ítalska tónskáldinu Ennio Morri-
cone, Jóhanni Jóhannssyni, Thom
Yorke, söngvara Radiohead, banda-
ríska tónskáldinu Dustin O‘Halloran
og breska tónlistarmanninum David
Sylvian. Einnig er nefnt í tilkynn-
ingu að Donadello hafi komið að tón-
list við kvikmyndirnar Prisoners og
Sicario.
„Með komunni í Hof bætist Dona-
dello í hóp fjölda þekktra einstak-
linga úr heimi alþjóðlegrar kvik-
myndatónlistar sem kjósa að starfa
með SinfoniaNord en verkefnið hef-
ur verið starfandi frá árinu 2015 og
hefur vaxið fiskur um hrygg hvert
ár,“ segir í tilkynningu.
Væntanlegur Francesco Donadello
heldur norður á land.
Francesco Donadello
starfar með SinfoniaNord
mannsandans og sá hjartsláttur þarf að vera í
réttum takti. Svo er nokkuð um girnd í verkinu
sem á sér ýmiss konar birtingarmyndir.
Hin áskorunin er að halda saman tökuplani
með svo mörgum leikurum og tökustöðum þar
sem íslenska síðsumarveðrið getur snögglega
sett rigningar- og rokstrik í reikninginn,“ svarar
Elfar sem frumsýndi í fyrra sína fyrstu kvikmynd
í fullri lengd, End of Sentence, sem hlaut prýði-
legar viðtökur.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tökur hófust í fyrradag á Þingeyri á kvikmynd Elf-
ars Aðalsteins, Sumarljós og svo kemur nóttin, en
handrit hennar skrifaði Elfar einnig og byggði á
samnefndri skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar.
Í bókinni er safn tengdra sagna sem allar gerast í
smáþorpi á Vesturlandi „þar sem hver íbúinn á fæt-
ur öðrum reikar ráðþrota um villugjörn öngstræti
hjartans“, eins og segir um bókina á vef bók-
menntaborginnar Reykjavík og ennfremur að með-
al eftirminnilegra persóna verksins séu forstjórinn
sem hafi nótt eina farið að dreyma á latínu, fugla-
málarinn Jónas sem hafi aldrei átt að hefja störf hjá
lögreglunni, „draugurinn á Lagernum og þau
Kjartan og Kristín sem bjuggu hvort á sínum bæn-
um og fóru að hittast á laun úti í náttúrunni“, eins
og því er lýst.
Þrátt fyrir mikið annríki gaf Elmar sér tíma í
vikunni til að svara nokkrum spurningum blaða-
manns.
Mörg burðarhlutverk
–Hverjir fara með aðalhlutverkin í myndinni?
„Þetta er fjölsöguverk þannig að það eru mörg
burðarhlutverk í Sumarljósi,“ svarar Elfar og að
meðal aðalleikara séu Ólafur Darri Ólafsson, Sara
Dögg Ásgeirsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson,
Heiða Reed, Jóhann Sigurðarson, Sigurður Ingv-
arsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Víkingur
Kristjánsson og Þorsteinn Bachmann. „Þannig að
við erum með dásamlega gott og gefandi listafólk
fyrir framan kameruna,“ bætir Elfar við.
–Nú eru tökur hafnar fyrir vestan, hversu um-
fangsmiklar eru þær? Er þetta fjölmennt tökulið?
„Við erum í kringum 30 manns, sem er týpískur
fjöldi, en þriðjungur þess kemur frá meðfram-
leiðslulandi okkar Belgíu sem er spennandi
blanda. Tökurnar fara nánast alfarið fram á Þing-
eyri þar sem fólk hefur tekið okkur opnum örmum
og allir reiðubúnir að hjálpa til. Það skiptir miklu
máli að fá svoleiðis meðbyr þegar kvikmynda-
sirkusinn gerir innrás.“
Sorg og gleði, myrkur og ljós
–Hverjar eru helstu áskoranirnar sem blasa við
þér sem leikstjóra í þessu verkefni?
„Að gera mannlega sögu úr þessu magnaða
bókmenntaverki Jóns Kalmans. Það er hjart-
sláttur í gegnum Sumarljós sem sveiflast frá sorg
yfir í gleði, myrkri í ljós, frá örvæntingu í sigur
–Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar vegna Co-
vid-19 og setur vírusinn eitthvert strik í reikning-
inn hvað tökur varðar?
„Við erum með Covid-regluvörð sem hitamælir
okkur í upphafi vinnudags, allir vinna með grím-
ur, tveggja metra reglan er stranglega í heiðri
höfð og við þvoum okkur og sprittum reglulega.
Við tökum reglunum mjög alvarlega, annars erum
við sett í skammarkrókinn,“ svarar Elfar að lok-
um og snýr sér aftur að tökum.
Ljósmynd/Eyþór Árnason fyrir Berserk Films
Innrás „Tökurnar fara nánast alfarið fram á Þingeyri þar sem fólk hefur tekið okkur opnum örmum
og allir reiðubúnir að hjálpa til. Það skiptir miklu máli að fá svoleiðis meðbyr þegar kvikmyndasirk-
usinn gerir innrás,“ segir Elfar Aðalsteins, handritshöfundur og leikstjóri.
„Allir reiðubúnir að hjálpa til“
Tökur eru hafnar á
kvikmyndinni Sumarljós
og svo kemur nóttin
Geneva Viralam
hefur verið ráðin
til i8 gallerísins
sem starfsmaður
þess í New York.
Viralam er með
tólf ára starfs-
reynslu úr heimi
samtímamynd-
listar, hefur ver-
ið yfirmaður hjá
Luhring Augustine-galleríinu í
New York og aðstoðarstjórnandi
hjá Yvon Lambert í París. Hefur
hún starfað náið með þekktum
listamönnum frá hinum ýmsu lönd-
um við bæði gallerí.
Viralam er með meistaragráðu í
listasögu og lagði í námi sínu
áherslu á sýningarstjórnun. Í til-
kynningu frá i8 er haft eftir henni
að hún sé afar spennt fyrir því að
hefja störf hjá i8. Hún hafi á síð-
astliðnum níu árum starfað náið
með Berki Arnarsyni, eiganda i8
og öðrum starfsmönnum gallerís-
ins, í tengslum við listamanninn
Ragnar Kjartansson. Segist hún
alltaf hafa dáðst að störfum og
stefnu i8.
Viralam til starfa
fyrir i8 í New York
Geneva Viralam
Hollywood-
leikarinn og
vöðvatröllið
Dwayne Johnson
trónir á toppi
lista tímaritsins
Forbes yfir
tekjuhæstu leik-
arana vestan-
hafs, á fjárhags-
árinu sem endaði
í júní. Johnson var áður fjölbragða-
glímukappi og kallaði sig The Rock.
Segir í Forbes að tekjur Johnson
hafi verið um 87,5 milljónir dollara
eða jafnvirði rúmra 12 milljarða
króna. Næstir á listanum eru Ryan
Reynolds og Mark Wahlberg.
Johnson hefur ekki aðeins hagn-
ast á kvikmyndaleik heldur einnig
samstarfi við fyrirtæki á borð við
Under Armour. Listi yfir tekju-
hæstu leikkonurnar er væntan-
legur í næstu viku, að því er segir í
frétt Guardian.
Með tekjur upp á
12 milljarða króna
Dwayne Johnson