Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 4
4
BÆJARINS BESTA
SMÁAUGLÝSINGAR
ísskápur
Til sölu er nýlegur ísskápur.
Upplýsingar í síma 7195.
Bátavél
Bátavél óskast í 3ja tonna bát.
Upplýsingar í síma 7227 (Óli).
Bolvíkingar - Isfirðingar
Munið sérleyfisferðirnar Bol-
ungarvík - Isafjörður, alla virka
daga. Frá Bolungarvík kl. 13 og
17. Frá ísafirði kl. 14 og 18.
Munið skíðaferðirnar á Selja-
landsdal.
Upplýsingar í símum 7195 og
985-21417.
Sérleyfishafi.
íbúð óskast
Óska eftir íbúð á leigu sem
fyrst.
Upplýsingar í síma 7727.
Mazda 323
Til sölu er Mazda 323, árgerð
1981. Verð kr. 200 þús. Ath.
skipti á Lödu eða Skoda koma
íil greina. Einnig til sölu á
sama stað 45 hestafla Chrysler
utanborðsmótor.
Upplýsingar í síma 4998.
Hestamenn!
Tek að mér járningar og tann-
röspun á Stór-Bolungarvíkur-
svæðinu. Einnig í Hnífsdal og
nágrenni.
Upplýsingar i síma 7397 milli
kl. 12 og 13, laugardaga og
sunnudaga.
Ari Björnsson.
Húseign
Til sölu er húseign.
Upplýsingar í síma 7446.
Trébátur
Til sölu er 3ja tonna trébátur
ásamt öllum fylgihlutum.
Upplýsingar í síma 7763 eftir kl.
20.
Sóltún
Til sölu cr lítið einbýlishús aö
Hlíðarvegi 2, (Sóltún). Fæst á
góðu verði og frábærum
kjörum. Laust við samning.
Allur réttur áskilinn.
Upplýsingar í símum 94-4482
og 91-36915.
Daihatsu
Til sölu er Daihatsu Cure 4x4,
árgerð 1987. Sumar- og vetrar-
dekk fylgja.
Upplýsingar í síma 4835.
íbúð óskast
Fjölskylda óskar eftir íbúð á
ísafirði.
Upplýsingar í síma 3261.
HÁKUR ...
Að undanförnu hafa orðið
nokkrar umræður um ástand
drykkjarvatns á ísafirði og í
Hnífsdal. Reyndar var ekki
annað vitað en að Hnífsdalur
væri hluti af kaupstaðnum ísa-
firði.
Allt er þetta hið skemmti-
legasta mál. Þá er nú reyndar
átt við hvernig umræðan hefur
orðið.
Ekki er úr vegi að rifja upp
fræga sláturhúsdeilu á Bíldu-
dal. Yfirdýralæknir fann slát-
urhúsinu þar allt til foráttu.
Meðal þess sem hann taldi
óviðunandi var ástand neyslu-
vatnsins, sem er yfirborðsvatn
að sögn. Yfirdýralækni var
kurtcislcga bent á það, að allt
vatn sem notað væri þar til
matvælaframleiðslu væri
blandað klóri. En klórinn hef-
ur það hlutverk að drepa
óæskilegt líf í vatninu. Þar
mun vera átt við kólígerla og
saurgerla sem ekki þykja til
bóta, nema ef vera skyldi í
munni einstaka forsvarsmanna
á ísafirði. Hafa þeirmjöghald-
ið á lofti þcirri fullyrðingu að
ísfiröingum verði ekki meint
af vatninu.
Sérstaklega þykja þeir
síðarnefndu (gerlarnir) slæmir
þegar þeir lifa í drykkjarvatni.
Klórun vatnsins deyðir víst
blessaða gerlana, þar með á
allt að vera í sómanum, cða
hvað? Að minnsta kosti fór svo
að yfirdýralæknirinn taldi það
ekki nægilega lausn að blanda
klóri í vatnið. Hann hélt því
meira að segja fram að klór-
blöndunartækin gætu bilað.
Og hvergi varð afstöðu hans
haggað. Breytti þar engu urn
þótt bent væri á þá staðreynd
að víðar væri Guð en í
Görðum, það er að yfirborðs-
vatn væri víðast hvar notað á
Drekkiö
meira vatn
(tilmæli landlæknis)
Vestfjörðum. Hann gat svo
sem gert sig breiðan, með að-
gang að öllu blessuðu Gvend-
arbrunnavatninufyrirsunnan.
Honum var hins vegar bent
á það að hinn vinsæli og verð-
mæti fiskur á Bandaríkja-.
markaði hlyti alla vatnsmeð-
höndlun sína úr „klóruðu'4
vatni að langmestum hluta á
Vestfjörðum. En hann sat við
sinn keip. Niðurgreidda
lambakjötið skyldi ekki þvegið
úr klór.
Er kjöt
fínna en fískur?
Kannski er blessað lamba-
kjötið viðkvæmara en fiskur-
inn okkar þótt það seljist ekki
eins dýrt úr landi.
Hvað um það. í MÍ-flug-
unni, útvarpi menntaskóla-
nema, sem starfaði í rúma
viku, var boðið þremur svo-
kölluðum fyrirsvarsmönnum
ísafjarðarbæjar. í útvarps-
þætti áttu þeir að svara spurn-
ingum hlustenda um ýmis mál-
efni sem tengjast stjórn bæjar-
ins.
Eitt af því sem þar bar á
góma var blessað vatnið. Þar
lýsti einn þeirra, líklegast for-
seti bæjarstjórnar, því yfir að
hann hefði af því meiri áhyggj-
ur að upplýst væri opinberlega
hvernig ástandið á vatninu
væri heldur en ástandinu
sjálfu! Svo kom upplifunin.
Honum hafði verið ástandið
ljóst lengi.
Margt fleira kom fram í
þessum bráðskemmtilega
þætti vatnssögunnar. Annar
hélt því fram að hann væri bú-
inn að sækja um lán til hreins-
unarframkvæmda og þær gætu
hafist ef lánið fengist og ein-
hverjir viðbótaraurar sem bær-
inn átti sennilega að galdra
fram.
Sá þriðji líkti hinum tveimur
við einræðisherra sögunnar,
sem földu óþægilegar stað-
Framhald á bls. 9