Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.03.1988, Page 10

Bæjarins besta - 30.03.1988, Page 10
10 BÆJARINS BESTA félaganna á Vestfjörðum, annars vegar til sveitarfélaga hér á norðanverðum Vest- fjörðum og hins vegar til sveit- arfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum. Ekki sagði Haraldur að farið væri að tala um staðsetn- ingu gjaldheimtunnar, en samkvæmt því frumvarpi að lögum um gjaldheimtur sem liggur fyrir Alþingi að þá eiga að vera tíu gjaldheimtur á landinu öllu, þar af ein á Vestfjörðum. Þá sagði Har- aldur að það gæti allt eins farið svo að ef sveitarfélögin hér á Vestfjörðum kæmu sér ekki saman um staðsetningu þessarar gjaldheimtu fyrir næstu áramót að þá muni ríkisvaldið taka ákvörðun í málinu. ísafjörður: Vestfirðir: Sá möguleiki er fyrir hendi að gjaldheimtuna. Með hinum umfangsmiklu kerfisbreytingum sem gengu í garð um s.l. áramót var mörgu breytt, en jafnframt boðað að fleiru þyrfti að breyta. Eitt af því sem koma skal er sérstök gjaldheimta fyrir Vestfirði, sem yrði ein af tíu fyrirhuguð- um gjaldheimtum á landinu öllu. Nú berast þær fréttir að íbúar á Norðurlandi vestra geti ekki komið sér saman um hvar téð gjaldheimta eigi að rísa. Sauðkrækingar vilja fá bæjarfógetaembættið taki að sér hana til sín en Siglfirðingar virðast vera búnir að ákveða að þeir eigi að fá hana. Hvern- ig er þessum málum háttað hér á Vestfjörðum? Er farið að spá í hvar gjaldheimta Vestfirðinga skuli rísa? BB hafði samband við Harald L. Haraldsson bæjarstjóra á ísafirði og ræddi þetta mál við hann. Sagði Haraldur það rétt vera að verið væri að undirbúa stofnun gjaldheimtu, þó væru fleiri kostir sem kæmu til Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri segir enga ákvördun hafa verið tekna greina heldur en sérstök gjaldheimta svo sem að bæjar- fógetaembættið á ísafirði taki þessa innheimtu að sér og þá bæði fyrir ríkið og sveitarfélög hér á Vestfjörðum. Staða þessa máls í dag er sú að Fjórðungssamband Vest- firðinga hefur lagt inn fyrirsp- urn um mál þetta til sveitar- Bátur á bryggjunni Nýr viðlegukanntur í Sundahöfn var vígður eigi alls fyrir löngu eins og greint hefur verið skilmerkilega frá hér í BB. Þó svo að viðlegu- kanturinn sem slíkur sé til- búinn þá er ekki byrjað að nota hann af ýmsum ástæðum eins og flestir eflaust vita. Það er til dæmis eftir að dýpka höfnina þannig að þau skip sem eiga að nota þennan kant komist með góðu móti að honum, það er eftir að steypa þekju kantsins, og ýmislegt fleira í þeim dúr. Kanturinn er semsagt tilbú- inn, en ónothæfur af þessum ástæðum. Ónothæfur er kannski ekki rétta orðið því farið er að leggja bátum á kantinn en ekki við eins og vonandi verður gert í nánustu framtíð. Hvar rís gjaldheimtan? ÍSFIRÐINGAR - VESTFIRÐINGAR! Opnuðum í dag nýja myndbandaleigu j að Seljalandsvegi 20. | VEITUM 50% AFSLÁTT AF ÖLLUM , SPÓLUM FYRSTU TVO DAGANA. Opið alla daga kl. 16-19 og 20-22. Á sunnudögum er einnig opið kl. 11-13. I Lokað föstudaginn langa og páskadag. Komið og lítið inn - það borgar sig. I Næg bílastæði. I____________________________________ Bjóðum uppá allar nýjustu myndirnar á markaðnum í dag. SNÆLDAN Seljalandsvegi 20 Sími3279

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.