Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 12
12
BÆJARINS BESTA
Viðtal vikunnar:
Það eru alþjóðlegu mótin
sem okkur vantar
- segir Hafsteinn Sigurðsson í páskaviðtali BB
Páskahátíðin er að ganga í garð. í hugum velflestra Ísíírð-
inga sem og annara eru órjúfanleg tengls á milli páskanna og
þess að fara á skíði. Páskarnir hafa verið í áraraðir aðal
skíðavika landsmanna. Hér á ísafirði var til að mynda ávallt
haldin sérstök skíðavika yfir páskana og kom fólk hvaðan-
æva að af landinu til þess að fara á skíði á Seljalandsdal. Og
einmitt á Seljalandsdal, paradís skíðamanna, hafa alist upp
margir af bestu skíðamönnum íslands. Einn af okkar bestu
skíðamönnum í gegnum tíðina er Hafsteinn Sigurðsson, nú-
verandi íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Isafjarðarkaupstaðar,
fyrrverandi landsliðsþjálfari íslands í alpagreinum, og marg-
faldur íslandsmeistari á skíðum hér á árum áður. Páskavið-
tal BB er við Hafstein Sigurðsson.
Hafsteinn, upphafið að
þínum ferli sem skíðamaður,
hvar byrjaðirþú og hvenær?
Ég byrjaði hérna uppi í
Stórurð sem smákrakki, þetta
sjö eða átta ára gamall. Þar
var aðal brekkan. Þá voru Ijós
þar og var skíðað þar á hverju
kvöldi. Þá var lyftan sem var
sett þar upp ekki komin, hún
kom löngu seinna. Við gerð-
um nrjög mikið af því að fara
þarna á skíði áður en skíða-
lyftur komu til, mórallinn í
hópnum var svo góður. Það
gengu allirsaman upp hlíðina,
manni fannst það ekkert mál
að ganga alveg upp undir
Gleiðarhjalla, enda var þetta
líka þannig þá að við vorum
búnir að ganga þetta svo oft
að það voru komnar nokkurs-
konar tröppur í hlíðina alla
leiðinaupp. Þannig aðþaðvar
ekkert vandamál, þetta var
svo skemmtilegt. Það var líka
eftir að við fórum að fara
meira á Dalinn, að þá var allt-
af labbað frá skíðaskálanum
og upp í skál þar sem efri lyft-
an endar nú.
Gamli Ford
við Sandfell
Var þá farið að fara mikið á
skíði á Dalnum áður en lyft-
urnarþar komu?
Já já, samt hafði verið sett
upp toglyfta við Sandfell. Það
var mótor úr gamla Ford sem
knúði lyftuna áfram. Hræið af
bílnum er þarna ennþá. Ég
náði því ekki að fara í þessa
lyftu, það var heilmikið basl
með hana og hún gekk erfið-
lega. Þeir sem stóðu að
þessari lyftu held ég að hafi
verið Haukur Sigurðsson, Jón
Karl, og þeirra árgangur.
Og það er þannig með öll
þau mannvirki sem eru á
Dalnum í dag að þau voru öli
reist í sjálfboðavinnu. Það var
búið að reka svæðið í nokkur
ár áður en bærinn tók við.
Bærinn hefur ekki staðið að
uppbyggingu neinna mann-
virkja á Seljalandsdal nema
kaupum á troðaranum.
Nú æfðuð þið við frum-
stæðar aðstœður miðað við
það sem þekkist í dag, fóruð
þið snemma að keppa?
Já við gerðum það og þá
fyrst á mótum sem voru haldin
hér heima, á heimamótum.
Síðan voru það bara lands-
mótin sem tekið var þátt í þar
fyrir utan svona fyrst um sinn.
Þá var landsmótið eina mótið
sem fólk alls staðar að af land-
inu hittist á. Punktamótin
byrjuðu svo árið 1967.