Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.03.1988, Qupperneq 13

Bæjarins besta - 30.03.1988, Qupperneq 13
BÆJARINS BESTA 13 Svigsveit ísafjarðar sem vann 5 ár í röð, 1963-1967. Myndin er tekin á Akureyri 1968 eftir að sveitin tapaði flokkasvigi í fyrsta sinn í landgan tíma. Á myndinni eru Kristinn Benediktsson, Samúel Gúst- afsson, Hafsteinn Sigurðsson, og Árni Sigurðsson. Ég byrjaði að keppa við aðra en Isfirðinga þegar ég var 15 ára. Þá var 15-16 ára flokk- ur á landsmótinu. Þetta var árið 1961. Það voru margir sem kepptu á þessum árum, mjög margir. Miklu fleiri en nú í dag. Það var t.d. ekki óalgengt að í fullorðins flokki, þ.e. karlaflokki, tækju þetta 60 til 70 manns þátt. En ætli það hafi ekki verið svipaður fjöldi sem tók þátt í ung- lingaflokknum þá eins og keppir á unglingameistara- móti í dag. Það var á þessu móti sem ég keppti við aðra en ísfirðinga í fyrsta sinn. Þá komu skíðamenn frá sömu stöðum og í dag en Siglfirð- ingar voru sérstaklega sterkir þá. Þarna var ég sem sagt 15 ára gamall og það er ekki hægt að segja annað en að mér hafi gengið mjög vel á þessu fyrsta móti mínu því ég vann svigið og varð annar í stórsvigi. Fólk kom til að horfa á Petta mót var haldið um páskana, í skíðavikunni. Var skíðavikan mikil hátíð? Já hún var það. Þetta var allt öðruvísi þá en í dag því þá kom fólk uppeftir til þess að horfa á, fólk sem kunni ekkert á skíðum og fór aldrei á skíði. Nú fer fólk bara upp eftir til þess að renna sér. Og frá og með þessu móti ferð þú að keppa af fullum krafti? Já, þarna keppti maður hvert einasta ár og missti aldr- ei úr landsmót eða neitt, alveg til ársins 1975 sem var síðasta árið sem ég var með af fullum krafti. Þegar við stóðum í þessu á þessum árum þá vorum við ekki með neinn þjálfara, við bara lærðum af þessum eldri. Við lögðum brautir og þjöppuðum þær með skíðunum, þetta var allt frekar frumstætt þó að manni hafi fundist þetta fínt þá. Þegar ég var að byrja voru þessir eldri farnir að fara er- lendis til æfinga og keppni og það var ofsaleg vítamín- sprauta þegar þeir komu aftur heim. Þá var svo mikið líf í þessu. Þeir voru að segja okkur, þessum yngri, frægð- arsögur úr ferðunum og það setti mikið líf í þetta og jók mjög áhugann á íþróttinni. Þá héldu líka fleiri einstaklingar áfram að æfa heldur en þekk- ist í dag. Ástæðan fyrir því hve þátttakendum hefur fækkað gæti verið sú að alvar- an hefst of snemma hjá yngstu þátttakendunum sem aftur leiðir til þess að margir eru búnir að fá nóg strax um 15 ára aldur. Það á að láta leik- inn vara sem lengst og ekki byrja svona fljótt á harðri keppni ámilli krakkanna. Það er hætt víðast hvar erlendis að láta krakkana keppa svona unga. 18 ára í landsliðið Nú varst þú í fremstu röð lengi vel, ekki satt? Jú ég get ekki neitað því að ég var það í mínum aldurs- flokki. Ég var síðan valinn í landsliðið 18 ára gamall og var þá lang yngstur í liðinu. Helsta verkefni þessa lands- liðs voru ólympíuleikarnir í Innsbruck 1964 en ég fór ekki á þá, var einfaldlega ekki orð- inn nógu góður til þess. Ég fór aldrei á ólympíuleika. Aftur á móti fór ég á heimsmeistara- mótið 1974. Ég var reyndar í liðinu fyrir ólympíuleikana 1968. Sumarið fyrir þá leika æfðum við á Siglufirði, vorum síðan í Frakklandi í nóvember og desember, og var síðan valið í liðið eftir það. Ég var ekki valinn þá, var í svipuðu formi og hinir í liðinu, en val er alltaf hægt að gagnrýna. Það ár hefur líklega verið mitt besta, ég vann landsmótið þann veturinn í svigi og mér gekk vel. Varðst þúfyrir vonbrigðum með að komast ekki á leikana þarna 1968? Á þeim tíma var ég það já, ég get ekki neitað því, en það er löngu gleymt. Við strákarnir vorum virki- lega samhentur hópur og það kom ekki upp nein misklíð innan hópsins þó að svona val hafi komið til og við erum allir góði félagar enn í dag. Nú varst þú við keppni í mörg ár, hver finnst þér þegar litið er til baka vera hápunktur ferilsins? Mér þótti vænt um þegar ég vann svigið á landsmótinu 1968, cftir nokkuð umdeilt val í ólympíuliðið fyrr um veturinn, að vinna þá með miklum nrun. Annars kom þetta svona í sveiflum. Mér gekk líka vel í landskeppni við Skota hér á ísafirði 1970. Þessar lands- keppnir voru skemmtilegar keppnir, bæði hér og erlend- is. Svo fannst mér það alveg ágætt svona undir lokin, á landsmótinu 1974 orðinn 29 ára gamall, að þá vann ég þrefalt, þ.e. í svigi, tvíkeppni, og flokkasvigi. Mér fannst það nú bara allt í lagi. Þetta var á næst síðasta landsmót- inu mínu en ég keppti til 30 ára aldurs. Efri lyftan breytti öllu Segðu meira frá því þegar verið var að byggja upp á Dalnum, tókst þú ekki þátt í því að reisa lyfturnar? Jú svona að hluta en á þessum tíma var ég að æfa mjög mikið og það voru nátt- úrulega margir sem unnu Hafsteinn með glæsilegan bikar eftir sigur á Hermannsmótinu 1972

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.