Bæjarins besta - 30.03.1988, Síða 15
BÆJARINS BESTA
15
Hafsteinn í hlutverki þjálfara landsliðs íslands í alpagreinum með
snjóborinn góða.
til 20 árum og t.d. í Svíðþjóð
hefur enginn komist í sænska
skíðalandsliðið síðastliðin 5
ár nema úr svona skíða-
menntaskóla, ekki vegna þess
að þeir hafi frekar verið tekn-
ir inn í liðið heldur vegna þess
að þeir eru hreinlega betri.
Mér finnst að við höfum ekki
fengið tækifæri til þess að
vinna með þessa skíðabraut
af neinu viti. Mér finnst það
synd að við fáum ekki að gera
þessa tilraun, þetta er fyrsta
tilraunin með svona braut á
íslandi og ég held að þetta sé
í rauninni grunnurinn að því
að við náum yfirleitt langt í
íþróttum hér á landi, því það
þarf að sameina skóla og
keppnisíþróttir í fleiri grein-
um en skíðum.
Ég sé þetta þannig fyrir
mér að þau sem eru á tveimur
seinni árunum í skólanum
fari að taka þátt í alþjóðleg-
um mótum erlendis. Þannig
að þá eru þau vel undir það
búinn þegar þau koma út úr
þessum skóla að fara í lands-
lið. Síðan er það náttúrulega
á stefnuskránni hjá skíðasam-
bandinu að halda alþjóðlegt
mót hér á landi, það verður
að ske. íþróttin sem slík, eins
og hún er framkvæmd best,
kemur aldrei til íslands nema
í gegnum sjónvarpið. Það
væri örugglega eitthvað
skrítið ef aldrei væri haldinn
landsleikur í handbolta hér á
landi eða í knattspyrnu. Það
eru alþjóðlegu mótin sem
okkur vantar.
Alþjóðlegt skíðamót
á Seljalandsdal
Verður hœgt að halda slíkt
mót á Seljalandsdal í nánustu
framtíð?
Já það er alveg öruggt mál.
Það verður trúlega tekin út
brekka á Dalnum í sumar
þannig að það á eftir að halda
alþjóðlegt mót hér á ísafirði.
Það má segja að það eina sem
okkur vantar hér á Dalinn er
starthús, annað þurfum við
ekki. Við höfum allt annað,
við höfum góð tímatökutæki,
við eigum vant starfsfólk; við
höfum allt til þess.
Það sem mér finnst vera
markmiðið núna er að við
þurfum að eiga keppendur í
heimsbikarkeppninni. Við
verðum að athuga það að
heimsmeistaramót og ólym-
píuleikar eru bara eitt mót
sem við sendum á kannski
einn eða tvo keppendur og
við verðum að athuga það að
í alpagreinum eru svo miklar
líkur á því að fólki mistakist.
Og sviggreinin er þannig að
það er mjög sjaldgæft að það
komist niður meira en 50%
þeirra sem leggja af stað,
þannig að það eru alltaf
miklar líkur á mistökum. Mér
finnst því verkefnið vera það
að ná upp betri hóp hér
heima, fá alþjóðleg mót
hingað heim, og koma upp
fleiri sterkum einstaklingum
til þess að fara á mót erlend-
is.
Nú er aðstaðan í dag öll
önnur en þegar þú varst í
keppni, vildir þú vera með í
dag?
Já ég vildi vera að taka þátt
núna, það eru alveg hreinar
línur. Það hefur alveg orðið
bylting í aðstöðu og búnaði.
Útbúnaðurinn hefur breyst
alveg rosalega mikið og þar af
leiðandi öll tækni og geta.
Þetta hefur allt breyst.
Að lokum Hafsteinn, ein sí-
gild spurning til þess að setja
punktinn yfir i-ið, áttu einhver
heilrœði til ungra skíðamanna
sem eru að fara á skíði í
dag?
Ég vil bara segja það að
mér finnst þetta alveg frábær
íþrótt. Þetta er einstak-
lingsíþrótt sem reynir á mann
sjálfan og engum öðrum um
að kenna ef manni gengur
illa, en gefur manni um leið
mjög mikið. Mér finnst að
það þurfi að halda þessarri
íþrótt lengur gangandi heldur
en bara sem unglingaíþrótt.
Það þarf að hugsa um þetta
svolítið lengra því að það er
gaman á skíðum og það er
gaman að vera keppandi
þegar maður er orðinn full-
þroskaður og fullstæltur því
þá nær maður meiri árangri.
Það hætta flestir allt of ungir,
mér finnst vanta meiri
metnað til þess að komast inn
í landsliðið og til þess að
komast inn í þá hringiðu sem
er í gangi í Evrópu, þetta er
svo ofboðslega spennandi.
PÁSKAVIKAN
AÐ
UPPSÖLUM
Miðvikudacrskvöld:
Opið kl. 23-03
Stebbi í diskótekinu
Föstudacrskvöld:
Opið kl. 24-04
Stebbi í diskótekinu
Sunnudacrskvöld:
Opið kl. 24-04
BG-flokkurinn skemmtir
UPPSAIIR
MUNIÐ
NAFNSKÍRTEININ