Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.03.1988, Side 20

Bæjarins besta - 30.03.1988, Side 20
20 BÆJARINS BESTA SMÁAUGLÝSINGAR Myndavél Til sölu er Cannon AEl prog- ram myndavél. Einnig 28mm og 50mm Canon Iinsur og 70- 210mm Cosina linsa svo og flass. Hlutirnir eru 1-2 ára gamlir. Upplýsingar í síma 3585. íbúð til sölu Til sölu á góðum stað í bænum, Engjavegur 17 neðri hæð. Upplýsingar í síma 4484. Benz Til sölu er Bcnz 240, árgerð 1982. verð kr. 500.000.- Skipti möguleg. Útvarp ogsegulband. Ný vetrardekk og önnur fylgja. Upplýsingar í síma 7735. Mazda 323 Til sölu er Mazda 323 árgerð 1980. Pioneer segulband og tnagnari fylgja. Upplýsingar í síma 3589 eftir kl. 18. Ljósalampi Til sölu er ljósalampi, mjög vel með farinn. Ljósalampar með andlitsljósum fylgja. Sjálfvirkur lyftibúnaður. Úpplýsingar í síma 7725. Gleraugu Gleraugu töpuðust við Mennta- skólann sunnudaginn 20 fcbrú- ar s.l. Finnandi vinsamlegast hafið samband í síma 3243. Mótatimbur Óska eftir að kaupa notað mót- atimbur. 350 metra af 1” 6, og 55 metra af 2” 4, eða 1,5” 4. Upplýsingar í síma 3772 á kvöldin. Stórglæsilegur bíll Honda Accord EX, árgerð 1987 (rauður). Ekinn 12.000 km. Skipti á ódýrari koma til greina. Upplýsingar gefur Halldór Þór- ólfsson í síma 3259 á kvöldin. Athugið Tveir farmiðar Reykjavík - Amsterdam til sölu á 10.000 krónur hvor. Upplýsingar í síma: Judith 94- 3959 (94-3667), Lian 94-4224. Attention Two one-way-tickets Reykja- vík-Amsterdam for salc kr. 10.000 each. For further information tel.: Judith, Lian (S f ). Karlmannsúr Fundist hefur karlmannsúr, (líklega unglinga- eða barna- úr). Upplýsingar í síma 4141. SKÝRSLA VIKUNNAR Magni Guðmundsson framkvæmdastjóri Langar mest að hitta Yasser Arafat á nndan Denna Fullt nafn: Magni Örvar Guðmundsson. Hvar og hvenær fæddur: 30. júní 1944 á ísafirði. Fjölskylduhagir: Kvæntur Svanhildi Þórðardóttur. Þrjár dætur. Helstu kostir: Ekki mitt að dæma. Helstu gallar: Vonandi færri en kostirnir. Bifreið: Chevrolet Monza árgerð 1987. "Hvað finnst þér best við starfið? Samskiptin við sjó- mennina. Hvað finnst þér vcrst við starfið? Pað kemur mér einum við. Fyrri störf: Sjómennska og sitthvað fleira. Laun: Er ekki bara best að vera óánægður með þau. Ef þú starfaðir ekki við það sem þú gerir, hvað myndir þú þá vilja gera? Hef ekki hugsað um það. Ertu góður kokkur? Já, auð- vitað. Besti matur sem þú færð: Það er margt gott, segi saltkjöt og baunir. Versti matur sem þú færð: Ét yfirleitt allt. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Ekkert scrstakt. Hvaða blöðum og tímaritum hefur þú mestar mætur á? Engum sérstökum, les yfirleitt allt. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Ekkert sérstakt. Hlustar þú mikið á tónlist, og þá hvernig? Nei, en kemst ekki hjá því að heyra síbylj- una í útvarpinu. Hvað metur þú mest í fari annarra? Orðheldni og stund- vísi. Hvaða námsefni líkaði þér verst í skóla? Man það ekki. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Yasser Arafat, ef ég gæti orðið á undan Denna. Hver er fallegasti staður á íslandi sem þú hefur komið á? Sæból í Aðalvík á kyrru sumarkvöldi. Hvert er uppáhalds sjónvarps- efnið þitt? Tékknesku klauf- abárðarnir. Hver er uppáhalds fjölmiðla- maðurinn þinn? Enginn sér- stakur. Uppáhaldsleikari: Núna í augnablikinu: Þórarinn V. Þórarinsson. Uppáhalds íþróttamaður: Jói Torfa var það. Hef engan fundið síðan hann hætti í meistaraflokki. Hvaða stjórnmálamaður er númer eitt að þínu mati? Kvennalistinn. Ertu ánægður með stjórn bæjarins þíns? Eftir atvikum sæmilega, takk. Hvað mál myndir þú setja á oddinn ef þú yrðir bæjarstjóri í einn mánuð? Reyna að minnka yfirbygginguna og setja mismunin í holurnar á Hafnarstrætinu. Hefur þú náð takmarki lífs þíns? Nei: Því maður lifir á meðan maður lærir.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.