Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 2
2
Rætt við hjónin sem urðu fyrir grjóthruni á Óshlíð:
BÆJARINS BESTA
„Grjótið kom yfír bílinn
áður en við vissum afu
rætt við Guðdísi Guðmundsdóttur og Sigurvin Guðmundsson
Tónlistarskóli ísafjarðar:
Slitið í
40. sinn
Eins og fram hefur komið í
sjónvarpi og útvarpi hrundi
mikið af grjóti úr Óshlíð á veg-
inn á milli ísafjarðar og Bolung-
arvíkur að kvöldi hvíta-
sunnudags. Því miður hrinur
það oft úr hlíðinni að varla er
hægt að segja að það eitt sé
fréttnæmt. Þó verður það að
teljast fréttnæmt að á sunnu-
dagskvöldið lá við stórslysi er
bifreið sem ekið var eftir vegin-
um varð fyrir grjóthruninu og
stórskemmdist.
Það voru hjónin Sigurvin
Guðmundsson og Guðdís
Guðmundsdóttir sem voru í
umræddum bíl. í samtali við
BB röktu þau í stuttu máli hvað
það var sem gerðist.
Voru þau á leið inn á ísafjörð
eftir að hafa verið í fermingar-
veislu í Bolungarvík. „Við vor-
um rétt ókomin að krossinum
er óhappið varð. Þetta gerðist
eldsnöggt, grjóthrunið kom yfir
bílinn áður en við vissum af.
Það kom stór stór steinn framan
á hornið á bílnum; á stuðarann.
Það var ansi mikið högg því
bíliinn kastaðist til við það. Þá
í sömu andránni dundi óskap-
leg grjóthríð á þaki bílsins, með
hávaða og látum. Það dembdist
þarna yfir allan bílinn. Þetta var
alveg heilmikið.“
Þak bílsins er mikið dældað
og rifið. Nokkuð víst er að ef
einhver hefði setið í aftursæti
bílsins hefði sá hinn sami
slasast.
Hjónin voru sammála um að
rósemi Sigurvins, sem ók
bílnum, hafi bjargað því sem
bjargað varð því hann hélt
ótrauður áfram í stað þess að
nema staðar. Ekki er hægt að
ímynda sér hvernig farið hefði
ef bíllinn hefði stöðvast. Þau
námu ekki staðar fyrr en þau
voru komin í öruggt skjól. Þá
stoppuðu þau og biðu eftir öðr-
um vegfarendum. Fljótlega
kom þar að ungur maður sem
ók þeim til lögreglunnar á ísa-
firði.
Þótt óhapp sem þetta hafi
dunið yfir þau hjónin ætla þau
ekki að láta þetta hafa nein
áhrif á sig sem bílstjóra, Sigur-
vin ætlar að keyra bíl eftir sem
áður. Ekki meiddust þau hjón-
in utan þess að Guðdís kvartaði
undan höfuðverk.
Hjónin Guðdís Guðmundsdóttir og Sigurvin Guðmundsson.
Eins og sjá má er þak bílsins mikið skemmt.
Tónlistarskólanum á ísa-
firði var formlega slitið í
fertugasta sinn sl. laugar-
dag, að viðstöddu fjöl-
menni. Við tækifærið lék
hluti nemendanna nokkur
lög. Ávörp fluttu: Sigríður
Ragnarsdóttir skólastjóri,
Bára Einarsdóttir formað-
ur Tónlistarfélags ísafjarð-
ar, Sigurður Jónsson Tón-
listarfélagi ísafjarðar, og
Kristján Jónasson forseti
bæjarstjórnar ísafjarðar.
170 nemendur stunduðu
reglulegt nám við skólann
í vetur. Kennarar voru
sextán talsins.
Fimm skólatónleikar
voru haldnir í vetur: Jóla-
tónleikar um miðjan des-
ember (í tveimur hlutum),
sérstakir tónleikar með
verkum fyrir tvö píanó í
febrúar, miðsvetrartón-
leikar í mars (í tveimur
hlutum), sameiginlegir
tónleikar fjögurra nem-
enda í apríl, og loks vor-
tónleikarnir sem haldnir
voru í þrennu lagi nú um
miðjan maí.
Vegna plássleysis er ekki
hægt að gera skólaslitunum
og afmælishátíðinni betri
skil að þessu sinni. Nánar
í næstu viku.
Seljalandsdalur:
Stólalyfta næsta vetur!
Nú hefur bæjarstjórn
samþykkt að sú ein og hálfa
milljón sem á fjárhagsáætlun
var ætluð til kaupa á skíða-
lyftu á Seljalandsdal, verði
notuð í fyrstu útborgun á
ítalskri Leitner-lyftu.
Á fundi bæjarráðs um
fjárhagsmál 9. maí sl. lagði
Hafsteinn Sigurðsson,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi,
fram greinargerð um val á
milli tilboða, sem fulltrúar
íþrótta- og æskulýðsráðs
höfðu tekið saman. Lagt var
til að keypt yrði lyfta frá
Leitner á Ítalíu. Á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu viku
var það svo endanlega
samþykkt.
Að sögn Haralds L. Har-
aldssonar bæjarstjóra, er um
að ræða stólalyftu, sem ku
vera mun afkastameiri en
gamla lyftan uppi á dal.
Fulltrúi frá fyrirtækinu sem
framleiðir þessar lyftur er
væntanlegur hingað vestur á
ísafjörð nú í lok mánaðarins.