Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 18

Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 18
18 BÆJARINS BESTA Skipulagsbreytingarnar innan knattspyrnuhreyfingarinnar: ísfirðingar spila undir nafninu BÍ 88 Gróskumikið unglingastarf framundan Almennur félagsfundur á morgun Eins og greint hefur verið frá hér í BB eiga sér stað um þessar mundir miklar skipu- lagsbreytingar innan knatt- spyrnuhreyfingarinnar á ísafirði. Knattspyrnuráð ísafjarðar hefur verið lagt niður og allir fyrrum leik- menn ÍBÍ hafa gengið til liðs við 4. deildar lið BÍ. Blaða- maður BB fékk góðfúslega leyfi stjórnar BÍ til að sitja stjórnarfund nú nýverið. Þar var verið að ræða ástæður undangenginna atburða og framtíð knattspyrnunnar á ísafirði. Knattspyrnudeild BÍ var upphaflega stofnuð fyrir fjór- um árum og hefur liðið síðan keppt í fjórðu deild. f*að sem raunverulega hefur gerst er Íiað að leikmenn allra flokka BÍ hafa gengið til liðs við BÍ sem um leið yfirtekur þjálfun og skipulag knattspyrnu í öllum flokkum knattspyrn- unnar, m.a. fyrstu deildar lið kvenna. Ákveðið hefur verið að framvegis verði spilað undir nafninu BÍ-88 til þess að aðgreina liðið frá gamla BÍ liðinu. Eitt af markmiðum núver- andi stjórnar er að ná upp öfl- ugu félagsstarfi því án þéss er viðbúið að allt fari í sama farið og var, þ.e. að starfið liggi að mestu á herðum stjórnarmanna. Mikil bjart- sýni var ríkjandi á fundinum en jafmframt gerðu menn sér augljóslega grein fyrir því að mikið starf er framundan. Þá kom fram á fundinum að þar sem knattspyrnan gengur vel er félagsstarfið gott og að því er stefnt. Greinilegt er að mikil við- horfsbreyting hefur orðið. Allir félagsmenn, m.a. leik- menn, hafa gengist inn á það að ef reksturinn nær ekki saman þegar upp verður staðið í haust munu allir leggja til það sem á vantar. Þó hafa BÍ menn ýmislegt á döfinni í sambandi við fjáröfl- un sem ekki þótti tímabært að opinbera að sinni en allir voru sammála um að dæmið gengi ekki upp nema að bæjarbúar stæðu heilshugar að baki knattspyrnumönnun- um. Mikil áhersla verður lögð á að efla starfsemina í yngri flokkunum. Þjálfarar hafa Það eru ekki aðeins stúdent- arnir sem útskrifast í ár. Grunnskólar landsins útskrifa þúsundir 9. bekkinga nú í vor. Einhvers staðar frétti BB að þetta væri einn fjöl- mennasti árgangurinn sem farið hefði upp úr grunnskól- unum. Vestfirðirnir eiga að sjálfsögðu einhvern hluta af verið ráðnir til allra flokka. Jóhann Torfason þjálfar meistaraflokk, Örnólfur Oddsson þjálfar kvennaliðið og 3. flokk, og Rúnar Vífils- son þjálfar 4. og 5. flokk. Sérstakur knattspyrnuskóli BÍ verður settur á stofn fyrir yngstu kynslóðina og hefst hann væntanlega 6. júní ásamt íþrótta- og leikja- þessum árgangi. Grunnskólanum í Bol- ungarvík var slitið sl. föstu- dag með pompi og prakt. I skólanum voru alls 257 nemendur sl. haust, en voru komnir niður í 253 nú í vor. í máli Gunnars Ragnarssonar skólastjóra, kom fram, að nemendum hefur fækkað námskeiði sem Örnólfur Oddsson mun sjá um. Á morgun, fimmtudag kl. 20:30, verður almennur félagsfundur í Krúsinni þar sem gerð verður grein fyrir stöðunni. Á stjórnarfundin- um kom glögglega fram mik- ill vilji fyrir því að byggja knattspyrnuna á ísafirði upp frá grunni. Rætt var um að kaflaskipti hefðu orðið og nú væri um að gera að horfa til framtíðarinnar með bjartsýn- um augum. Auðheyrt er á samtölum við stjórnarmenn BÍ-88 að stefnan er sett á toppinn. Ekki er að efa að gaman verður að taka þátt í uppbyggingunni og eru bæjarbúar hvattir til að mæta á fundinn og leggja málefninu lið sitt. Núverandi stjórna BÍ skipa þeir Arnór Jónatansson, Jakob Ólason, Konráð Einarsson, Sveinn Ingi Guðbjörnsson, og Þorbjörn Jóhannsson. töluvert undanfarin ár, eða sem svarar einni bekkjar- deild. Kennarar voru sautján talsins, þar af tíu í heilli stöðu. Gunnar minntist á hina nýju skólabyggingu sem nú er að rísa í Bolungarvík. Búist er við, að hún verði tekin í notkun haustið 1990. í lok ræðu sinnar beindi Gunnar orðum sínum til þeirra sem nú eru að ljúka sínu grunnskólanámi. Hann sagði m.a.: „Víðtæk, almenn menntun er höfuðstóll sem fólk er að ávaxta alla sína ævi og hún er skilyrði þess að geta öðlast skilning.” Þegar skólastjóri hafði lokið ræðu sinni, tóku kenn- arar til máls og afhentu eink- unnir og viðurkenningar. Þeir sem hlutu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á árinu,voru: Helga Guðlaugs- dóttir - 6. bekk, Björg M. Ólafsdóttir - 7.bekk, Hall- dóra Óskarsdóttir - 8. bekk, og Steinunn Adolfsdóttir - 9. bekk. Barnaskólinn í Súðavík er reyndar ekki með neinn 9. bekk, en nemendur héldu upp á prófin og vorið sl. föstudagskvöld. Þau voru með skemmtun og diskótek í skólanum. Hin formlegu slit fóru hins vegar fram á kenn- arafundi nú eftir hvítasunn- una. Grunnskólanum á ísafirði verður slitið nú næstkomandi laugardag kl. 14. Grunnskólarnir: SÍkri Grunnskóla Bolungarvíkur slitið s.l. föstudag Grunnskóla ísafjarðar slitið n.k. laugardag I § é Gunnar Ragnarsson, skólastjóri Grunnskólans í Bolungarvík, við skólaslitin á föstudagnn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.