Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 15
BÆJARINS BESTA 15 MENNTASKÓLNN Á ÍSAFIRÐI PÓSTHÓLF 97 - 400 ÍSAFIRÐI Frá Menntaskólnum og Iðnskólanum á ísafirði Innritun nýrra nemenda skólaárið 1988- 89 er nú hafin. Boðið er upp á eftirtalið nám: Almennt bóknám, sem síðan leiðir til stúdentsprófs eftir 4 ár af eðlisfræði- braut, mála- og samfélagsbraut, nátt- úrufræðibraut eða tónlistarbraut. Skíðaval, til stúdentsprófs, ætlað efni- legu skíðfólki, tengist almennu bóknámi fyrsta árið. Viðskiptabraut, 2ja ára. Áframhald er til stúdentsprófs af hagfræðibraut. Tæknibraut, til stúdentsprófs. Heilsugæslubraut, 2ja ára, áframhald á náttúruf ræðibr aut. Skipstjórnarbraut, eitt ár, 1. stig, 200 tonna réttindi. Vélstjórnarbraut, eitt ár, 1. og 2. stig. Almennt iðnnám, þ.e. bóklegi hlutinn. Grunndeild rafiðna, eitt ár. Rafvirkjun, annað ár eftir grunndeild rafiðna. Rafeindavirkjun, annað ár eftir grunn- deild rafiðna. Aðrar iðngreinar, bóklegt sérnám, eftir því sem við verður komið. Tækniteiknun. Fornám framhaldsskóla, væntanlega eins vetrar nám. Öldungadeildarnám. Þeir sem vilja hefja nám á 1. ári í haust láti vita hið fyrsta. Öllum umsóknum væntanlegra nýnema um skólavist skal skilað til skrifstofu Menntaskólans á ísafirði, Torfnesi, ísa- firði, fyrir 10. júní n.k. Umsóknareyðu- blöð fást þar og í grunnskólum. Skólameistari. % ísafjarðarkaupstaður % Nýtt starf Auglýst er laust til umsóknar nýtt starf við ísafjarðarhöfn, starf verkstjóra. Verkstjóri skal fara með verkstjórn á útisvæði hafnar- innar. Æskilegt er að viðkomandi hafi skip- stjórnar- og/eða vélstjóraréttindi og geti haf- ið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir undirritaður á bæjarskrif- stofunum að Austurvegi 2, eða í síma 3722. Umsóknarfrestur er til 31. maí n.k. Bæjarstjórinn á ísafirði. Sumarafleysingar Starfsmann vantar til sumarafleysinga við slökkvistörf. Allar nánari upplýsingar veitir slökkviliðs- stjóri. íbúð óskast Bæjarsjóður ísafjarðar auglýsir eftir íbúð fyrir einn af starfsmönnum sínum. íbúðin þarf að vera fjögurra herbergja og helst laus um næstkomandi mánaðamót. Vinsamlegast hafið samband við undirritaðan um hugsan- legar íbúðir. Forstöðumaður tæknideildar. Útboð Bæjarsjóður ísafjarðar óskar etir tilboðum í innanhússfrágang á tengibyggingu við grunnskóla. Um er að ræða einangrun, múrverk og loka- áfanga á hluta hússins. Útboðsgögn afhent á tæknideild frá og með þriðjudegi 24. maí n.k. gegn 5.000 kr. skila- tryggingu. Bæjarstjórinn á ísafirði. Afgreiðslugjaldkeri Laust er til umsóknar starf afgreiðslugjald- kera hjá bæjarsjóði ísafjarðar. Lau'n skv. samningum F.O.S.Vest. Umsóknir um starfið skulu sendar undirrit-uð- um fyrir 10. júní n.k. Nánari upplýsingar veita undirritaður og bæjarritari á bæjarskrifstofunum, Austurvegi 2, eða í síma 3722. ísafirði, 20. maí 1988. Bæjarstjórinn á ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.