Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 14
14
BÆJARINS BESTA
Menntaskólinn á ísafirði:
27 stúdentar
- Rögnvaldur Daði Ingþórsson dux scholae
- í fyrsta sinn útskrifað af skíðabraut
Menntaskólanum á ísafirði
var slitið í 18. sinn sl. laugar-
dag. Björn Teitsson skóla-
meistari flutti ræðu þar sem
hann rakti starfsemi þess
skólaárs sem nú er nýlokið. í
máli sínu fjallaði Björn
nokkuð um þá breytingu sem
varð á skipulagi skólamála á
ísafirði er Menntaskólinn tók
á sl. sumri við fræðslu Iðn-
skólans á ísafirði. í vetur sem
leið fór öll bókleg kennsla
iðngreina fram í Menntaskól-
anum.
f máli Björns kom fram að
áformað væri að hefja von
bráðar vinnu við frágang
lóðar skólans, eða um leið og
verktaki fengist til að vinna
verkið. þá hefur og verið
ákveðið að verkmenntahús
skuli rísa í námunda við skól-
ann og hefur byggingarnefnd
verið skipuð. Gegnir Snorri
Hermannsson formennsku í
henni.
Þá vék Björn tali sínu að
skiptingu nemenda við skól-
ann. Við skólann stunduðu
nám í vetur 246 nemendur,
þar af 133 í hefðbundnum
dagskóla Menntaskólans.
Skólinn útskrifaði að þessu
sinni 4 nemendur af 2. stigi
vélstjórnarbrautar og 6 af 1.
ári skipstjórnarbrautar.
Hæstu einkunn af skipstjórn-
arbraut náð> Þorsteinn Gests-
son, 8.00. Af tveggja ára við-
skiptabraut voru 7 nemendur
útskrifaðir. Þar varð Hildur
Gylfadóttir hæst, með eink-
unnina 7.45.
Menntaskólinn á ísafirði
útskrifaði að þessu sinni 27
stúdenta, 3 af eðlisfræði-
braut, 8 af hagfræðibraut, 9
af mála- og samfélagsbraut,
og 7 af náttúrufræðibraut.
Hæstu stúdentsprófseinkunn,
8.53, náði Rögnvaldur Daði
Ingþórsson frá ísafirði,
Margrét Vagnsdóttir frá Bol-
ungarvík varð næst hæst með
einkunnina 7.83, og þriðju
hæstu einkunnina, 7.78, var
Linda Kristmannsdóttir frá
ísafirði með.
Tíu ára stúdentar fjöl-
menntu á svæðið. Til máls
tók, fyrir hönd þeirra, Bryn-
dís Friðgeirsdóttir. Gáfu þeir
skólanum peninga í sjóð til
kaupa á píanói.
Þá minntist Björn Teitsson
í stuttu máli Ragnars H.
Ragnar og Símonar Helga-
sonar sem báðir komu mikið
við sögu í ísfirsku skólalífi og
féllu frá á vetrinum.
í framhaldi af því tók til
máls, f.h. nemenda á skip-
stjórnarbraut Menntaskól-
ans, Gísli Jón Kristjánsson.
Færðu þeir skólanum að gjöf
málverk af Símoni Helgasyni
sem ekkja hans, Elísa Elías-
dóttir, afhj úpaði.
Menntaskólinn á ísafirði
Elísa Elíasdóttir, ekkja Síi
af Símoni.
Rögnvaldur Daði Ingþórsson,
dux scholae.
útskrifaði að þessu sinni í
fyrsta skipti nemendur sem
stundað hafa nám í skíðavali
skólans. í tilefni þess tók til
máls Sigurður Einarsson
formaður Skíðasambands
íslands. Lýsti hann ánægju
stjórnar SKÍ með samskiptin
við MÍ og fyrir það tækifæri
sem skóíinn hefur veitt ungu
íþróttafólki til að stunda
íþrótt sína samfara námi. Þá
færði Sigurður þeim tveimur
stúdentum sem fyrstir útskrif-
ast af skíðavalinu, þeim
Lindu B. Steinþórsdóttur frá
Keflavík og Rögnvaldi D.
Ingþórssyni, gjöf frá SKÍ.
Þá var komið að hápunkti
dagsins, sjálfri útskrift
stúdentanna. Björn Teitsson
afhenti prófskírteini og
verðlaun og gaf nýstúdentun-
um leyfi til að setja hvíta
kollinn langþráða upp. Rögn-
valdur D. Ingþórsson tók til
máls fyrir hönd nýstúdenta
sem að lokum kvöddu skól-
ann sinn með þreföldu húrra-
hrópi.
Því næst léku tveir
nemendur skólans fjórhent á
píanó áður en Björn Teitsson
sleit skólanum formlega.
Helgasonar, afhjúpar málverk
|6| BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
AUGLÝSING
um aðgerðir vegna ökutækja
án skráningarnúmera
Athygli ver vakin á því, að óheimilt er
að láta ökutæki án skráningarnúmera
standa á götum bæjarins, almennum
bifreiðastæðum eða opnum svæðum.
Eigendum slíkra ökutækja er hér með
gefinn frestur til 1. júní 1988 til þess að
koma þeim á viðeigandi geymslustað.
Að þeim tíma liðnum má búast við því,
að ökutæki þessi verði án frekari fyrir-
vara fjarlægð á kostnað eigenda sam-
kvæmt heimild í 14. gr. lögreglusam-
þykktar fyrir ísafjarðarkaupstað nr. 474/
1984.
18. maí 1988.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Pétur Kr. Hafstein.