Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.04.1989, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 12.04.1989, Qupperneq 1
BÆJARINS BESTA 15. TBL. J 6. ÁRG - MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989 Lögregian: Tólf innbrot upplýst LÖGREGLA á ísafiröi hefur haft í nógu að snú- ast að undanförnu við að upplýsa innbrotafaraldur sem gengið hefur hér á Isafirði undanfarnar vikur þar sem m.a. var brotist inn í Sandfell hf, JR vídeó og fleiri staði. Nú um og fyrir helgina upplýstust tólf þessara inn- brota- og þjófnaðarmála. Voru þar að verki þrettán unglingar á aldrinum 13- 15 ára. Lögreglan: RANNSÓKN líkamsárás- armálsins sem kom upp á Flateyri fyrir stuttu er lokið hjá lögreglunni á ísafirði. Manni þeim sem settur var í gæsluvárðhald hefur verið sleppt. Hann var í haldi í tæpa viku. Málið hefur nú verið sent til Sakadóms ísafjarðar til frekari vinnslu. Ekki er vitað hvenær því verki verður lokið þar sem háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn eru í verk- falli. Suðurgata á ísafirði. Ástand malbiksleifanna þar er dæmigert fyrir götur á ísafirði og segja margir að réttast væri að útnefna bæjarstjórn til bjartsýnisverðlaunanna fyrir þá áætlun að Ijúka bráðabirgða viðgerðum á einum mánuði. Gatnamál á ísafirði: Viðgerðir á götum undirbúnar Bráðabirgðaviðgerðum verði lokið eftir mánuð BÆJARSTJÓRINN á ísa- firði lagði fram tillögu um gatnamál í 8 liðum á síðasta bæj- arstjórnarfundi og var hún sam- þykkt með 9 samhljóða atkvæð- um. Með samþykkt hennar er bæjarstjóra falið að undirbúa nú þegar viðgerð á götum bæjarins vegna hinna gífurlegu skemmda sem orðið hafa á þeim frá því í haust. Gert er ráð fyrir að bráða- birgðaviðgerð verði lokið í síð- asta lagi 15. maí næstkomandi. Ákveðið var að ítreka ósk um framlag úr svokölluðum „25% sjóði“ til framkvæmda við þjóð- vegi í þéttbýli á ísafirði og höfða m.a. til þess hversu lengd þess- ara vega er mikil og viðhald gíf- urlegt. Einnig verði ítrekuð ósk um framlag úr Slitlagssjóði en úr þeim sjóði hefur kaupstaðurinn ekki fengið framlag til þessa. Pá er bæjarstjóra einnig falið að taka upp viðræður við Vega- gerð ríkisins og Flugmálastjórn um framkvæmdir þessara aðila á þjóðvegum og ísafjarðarflug- velli með það fyrir augum að hafa sem mest samstarf um efn- ismál, tækjakost og mannahald þegar að framkvæmdum kemur. Kanna á hvort mögulegt sé að fá til bæjarins malbiksstöð frá Sauðárkróki síðar í sumar sem verði hér fram á sumar 1990. takist að afla aukins fjár, m.a. úr sjóðum V.r., verði athugað hvort hagkvæmt geti verið að ráðast t.d. í malbikun Hafnar- strætis og annarra helstu gatna á ísafirði á þessu ári. Þá á að gera áætlun um slitlagsframkvæmdir á árinu 1990 miðað við hina ýmsu valkosti, t.d. klæðningu, olíumöl eða malbik. Einnig mun bæjarstjóri skrifa Flugmálastjórn og samgöngu- ráðherra og óska eftir því að malbikun flugvallar verði flýtt svo ekki falli niður flug vegna aurbleytu svo sem gerst hefur á undanförnum misserum. Og í síðasta lagi á bæjarstjóri að vinna að því að taka upp við- ræður við nágrannasveitarfélög- in um hugsanlega aðild þeirra að malbiksframkvæmdum á ísafirði í sumar og á árinu 1990.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.