Bæjarins besta - 12.04.1989, Side 10
10
BÆJARIJNTS BESTA
Fegurðardrottning Vestfjarða 1989, Guðbjörg Hilmarsdóttir. í
baksýn má sjá f.v. Jónu Hrund Jónsdóttur sem var kjörin vin-
sælasta stúlkan og þær Lilju Ingólfsdóttur og Hafdísi
Jónsdóttur.
Fegurðarsamkeppni íslands:
Þessir hressu krakkar sýndu föt frá Legg og Skel.
Stúlkurnar komu m.a. fram í sundbolum.
1
1 mTj Æ " íc <=" ■
I j m J» Jpf mm ” | j #
Jóna Hrund vinsælasta stúlkan
Keppendur með fordrykk sem var í boði Anhauser-Busch.
KEPPNIN um titilinn Feg-
urðardrottning Vestfjarða
1989 fór fram í veitingahúsinu
Uppsölum síðastliðið laugar-
dagskvöld að viðstöddu fjöl-
menni. Keppendur að þessu sinni
voru fimm talsins. Þær voru:
Lilja Ingólfsdóttir, Jóna Hrund
Jónsdóttir, Guðbjörg Hilmars-
dóttir, Áslaug Fjóla Magnús-
dóttir og Hafdís Jónsdóttir.
Úrslitakvöldið hófst með því
að gestum var boðið uppá for-
drykk í boði Anhcuser-Busch,
framleiðanda Budweiser bjórs-
ins. Síðan var borðhald og tísku-
sýningar. Klukkan 23 fór svo
fram krýning Fegurðardrottning-
ar Vestfjarða 1989. Fyrir val-
inu að þessu sinni varð Guð-
björg Hilmarsdóttir 18 ára
starfsstúlka á barnaheimili á ísa-
firði. Hlaut hún m.a. að launum
kr. 20.000.- frá Óðni bakara á
Isafirði, handsmíðað nælu frá
Gullauga á ísafirði, flugmiða
Ísafjörður-Reykjavík-Ísafjörður
frá Flugleiðum, íþróttagalla ofl.
Vinsælasta stúlkan var valin
Jóna Hrund Jónsdóttir 22 ára af-
greiðslustúlka frá ísafirði.
Dómnefnd var að þcssu sinni
skipuð þeim: Önnu Lind Ragn-
arsdóttur, sem var kjörin vin-
sælasta stúlkan 1988, Önnu Mar-
gréti Jónsdóttur, fegurðar
drottningu fslands 1987, Dúdda
hárgreiðslumeistara frá Reykja-
vík, Friðþjófi Helgasyni, Ijós-
myndara og Mörthu Jörunds-
dóttur fegurðardrottningu
Vestfjarða 1988.
Dómnefnd var skipuð þeim Önnu Lind Ragnarsdóttur, vinsæl-
ustu stúlkunni 1988, Dúdda hárgreiðslumeistara, Reykjavík,
Önnu Margréti Jónsdóttur, fegurðardrottningu Islands 1987,
Friðþjófi Helgasyni, Ijósmyndara og Mörthu Jörundsdóttur,
fegurðardrottningu Vestfjarða 1988.