Bæjarins besta - 12.04.1989, Síða 14
14 BÆJARIIMS BESTA
bænina. Þá skoðuðu þau venju-
lega bænarefnið, þ.e. bæn um að
Guð blessi dómstólana, forset-
ann, kirkjuna og svo framvegis,
og bættu þá við bæn um að fólk
biðji fyrir unglingunum og
þeirra vandamálum. Þau sáu
líka sjálf um blómaskreytingar
og sérstakur hópur sá um að
skreyta altaristöflu. Þau máluðu
mynd af brauði, sem táknaði lík-
ama Krists, og í því var fullt af
fólki af öllum kynþáttum og
þjóðernum, sem tákn um ein-
ingu mannkynsins í Kristi.
Við svona verkefni kviknar
áhugi þeirra helst. f prófinu sem
þau tóku var bænin ritgerðarefni
og svörin voru ákaflega mismun-
andi. Einn og einn sneri út úr en
margir skrifuðu að þeim finndist
ekkert asnalegt að láta aðra vita
af því að þeir biðji bænir. Samt
er eins og það sé svolítið erfitt
fyrir þau að viðurkenna það. Og
viðhorfin breytast oft þegar líður
á fermingarundirbúninginn.
Skilning fremur en
utanbókarlærdóm
í þessu prófi spurðum við
fermingarbörnin líka hvar Guðs-
ríki væri. Rétta svarið er þar sem
Guð ræður eða þar sem Guð er
Drottinn. Þau svöruðu mörg að
Guðsríki væri alls staðar því
Guð væri alls staðar. Við vildum
með þessu prófi fá fram skilning
frekar en utanbókarlærdóm og
enda þótt mörg næðu ckki próf-
inu þá kom í Ijós í samtölum við
þau að þau kunnu meira en fram
kom á prófinu og höfðu bara átt
í erfiðleikum með að koma því
frá sér skriflega. Og þó að þau
kunni ekki öll til hlítar það efni
sem ætlast er til að þau læri utan-
bókar og skilji það jafnvei ekki
til fulls þá eru allir fermdir sem
vilja staðfesta skírnina og ganga
inn í kristinn söfnuð.
í takt við
sköpunarverkið
Varðandi spurninguna um
gjafirnar sem fylgja fermingunni
þá held ég að það sé ákaflega
erfitt fyrir kirkjuna að fara að
skipta sér eitthvað af þeim.
Maður veit það að eftir ferming-
una þá hættir meirihluti þessara
unglinga að sækja kirkju og það
er virkilega umhugsunarvert því
að kirkjan er hús Guðs og þar
getum við átt góðar stundir, til-
beðið hann og þakkað fyrir allt
sem hann hefur gefið okkur.
Síðan kemur kannski þörf til
að fara í kirkju aftur þegar þessir
unglingar eru orðnir eldri og
þroskaðri og þá búa þeir að því
sem þeir hafa lært, bæði fyrir
ferminguna og í sunnudaga-
skóla.
Þau læra að þau geta notað
bænina þegar vandamál koma
upp. Við þekkjum það öll að
það er gott að geta létt á hjarta
sínu við einhvern þegar manni
líður illa og mörgum þykir gott
að tala við Guð um sín vanda-
mál.
Þau læra líka um kristilegt sið-
ferði og ég held að það veiti ekki
af í því þjóðfélagi sem við búum
í í dag. Og þau læra að það eru
allir jafnir fyrir Guði.
Ég held að aðalatriðið sé að
þau skynji að þau séu í takt við
sköpunarverkið og að lífið sé
ekki alltaf dans á rósum en Guð
þarf að fá að vera með bæði í
gleði og sorg“ sagði sr. Magnús
að síðustu.
V.D.
Fermingar í ísafjarðarsókn:
30. apríl kl. 11
I ísafjarðarkapellu
Ásgeir Hjörtur Ásgeirsson, Hafraholti 26.
Atli Geir Atlason, Uröarvegi 26.
Elísabet Halldórsdóttir, Urðarvegi 41.
Elvar Már Sigurðsson. Hafraholti 6.
Eyþór Ólafur Bergmannsson, Miðtúni 41.
Guðmundur Birgir Halldórsson, Mjógötu 3.
Haukur Örn Harðarsson, Skipagötu 6.
Jónas Eyjólfur Jónasson, Lyngholti 8.
Kristjana Einarsdóttir, Túngötu 21.
Ragnhildur Ýr Pétursdóttir, Urðarvegi 50.
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, Móholti 1.
Svavar Þór Einarsson, Austurvegi 12.
Unnar Þór Reynisson, Hjallavegi 10.
Þór Pétursson, Seljalandsvegi 18.
tf
Óskum eftir að ráða starfsfólk til
eldhússtarfa sem fyrst.
Upplýsingar veita hótelstjórar á
staðnum. _ • .
‘Ttáteé ‘/<Kz(fýa'i%ar