Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.04.1989, Page 17

Bæjarins besta - 12.04.1989, Page 17
BÆJARINS BESTA 17 Lesendur: Einstakt „RÉTTLÆTI“ og fleira Sigrún Grímsdóttir skrifar: stefnu strax að styðja við bakið á sínum keppanda og mótmæla harðlega þessum fáránlega úr- skurði, í stað þess að lýsa yfir fullum stuðningi við dómnefnd- ina, hefði málið horft öðruvísi við, jafnvel þótt hann hefði engu fengið um breytt. Mér hafa borist til eyrna radd- ir, sem vilja halda því fram að Skíðaráð ísafjarðar sé að nálgast það að verða eins konar fjöl- skyldustofnun, þar sem aðeins fáir útvaldir eiga þess kost „að sitja við háborðið". Það er mið- ur að slíkt tal skuli heyrast, verra ef satt er. Ef Skíðaráð setur refsirétt vegna alvarlegra brota á hegðun eða atferli, þá er það út af fyrir DAGANA 31. mars til 1. apríl síðastliðinn fór fram í Reykjavík IJnglingameistara- mót íslands á skíðum. Þar mættu að sjálfsögðu til leiks ís- firðingar og skyldi enn reyna á hve margra ára æfingar og bar- átta á snæviþöktum Seljalands- dal hefði áorkað, er úrvali ung- linga yrði teflt til leiks móti jafnöldrum sínum víðs vegar af landinu. Ekkert er til sparað á mótum sem þessum. Unglingarnir fengu gistiaðstöðu á einu af dýrustu hótelum landsins með tilheyr- andi þjónustu og þægindum. Að ógleymdum „minibörum" með tilheyrandi innihaldi. Vafalaust hefur þjálfari liðsins og fararstjóri Þorlákur Baxter talið að úrvalsliðið hefði engan áhuga á innihaldi minibara og ekki talið ástæðu til þess að fjar- lægja litlar áfengisflöskur og annað góðgæti, er slíkir „barir“ innihalda. En það fer ekki alltaf allt að óskum, þótt trúin sé mikil og hjartað stórt. Tilefni þessa skrifa eru þó ekki fyrst og fremst minibara- mistök fararstjóra, heldur furðu- leg meðferð á einum unglingi, mér nákomnum, sem sótti þetta mót. Sigurður Holm Jóhannsson frændi minn hefur valið skíðaí- þróttina sem sitt stærsta og mesta áhugamál, en er af þjálf- aranum Þorláki Baxter dæmdur óalandi og óferjandi og ekki hæfur til þátttöku á landsmóti. Sigurður sótti samt mótið á eigin kostnað og var skráður til leiks af Skíðaráði ísafjarðar í óþökk og án samþykkis Þorláks Baxters. Þar sem nú Sigurður Holm Jó- hannsson, er löglega skráður til keppni, er þjálfaranum skylt að bera ábyrgð á honum, sem öðr- um, sem mæta til leiks. Þorlákur Baxter tekur við rásnúmeri Sig- urðar og ber að sjálfsögðu ábyrgð á því að koma því til skila. Það gerði hann ekki, held- ur kom númerinu í hendur öðr- um keppenda með þeim afleið- ingum að Sigurður fékk afhent rásnúmer 8 í stað 7. Samkvæmt ströngustu reglum Alþjóðaskíðasambandsins er hægt að dæma úr leik keppanda, sem ber rangt rásnúmer. Þetta eru reglur sem settar eru þar sem miklir fjármunir eru í húfi og auglýsingaskrum í hámarki. Að einhver misvitur eftirlits- maður unglingameistaramóts hér uppi á íslandi skuli voga sér að beita slíku ákvæði, er eitt, að þjálfari og fararstjóri liðsins, sem einn og aðeins einn á sök á því sem gerðist, skuli ekki einu sinni lyfta fingri til mótmæla, heldur beinlínis styðja gerðina er þvílík ófyrirgefanleg forsmán að því fá engin orð lýst. Það að þjálfarinn Þorlákur Baxter fékk öðrum keppanda tvö númer með fyrirmælum um að koma öðru til Sigurðar, gaf Sigurði strax aðeins 50% mögu- leika á að taka þátt í keppninni. Það er vægt til orða tekið að flokka þessar aðgerðir undir mistök. En jafnvel þótt fallist sé á að kalla þetta mistök, sem öll eru gerð af fullorðnu fólki, sem gefur sig í það að starfa með og fyrir börn og unglinga og urðu til þess að Sigurði var vísað frá keppni eins og hverjum öðrum svikara, breytir engu um eðli málsins. Ef þjálfarinn hefði tekið þá sig eðlilegt og getur verið nauð- synlegt. Þó eru öll slík mál vand- meðfarin og ber að sjálfsögðu að gæta ítrasta réttlætis og undir öllum kringumstæðum að sjá til þess að þar sitji allir jafnir fyrir sömu sök og enginn einn gjaldi fyrir aðra. Eftir áralanga reynslu, sem skíðakennari og þjálfari ung- linga, hefi ég þó komist að þeirri niðurstöðu að best sé að fara varlega í sakirnar með allar refs- ingar. Þjálfunarprógröm og þjálfunarreglur eiga ekki að miðast við það sem að sögn tíðkast í uppeldi barna í Austur- Evrópuríkjum, þar sem byrjað er á unglingsárum að móta og þjálfa væntanlega heimsmæli- kvarða íþróttamenn. Slíkar að- ferðir kalla oftar en ekki á fæl- ingu og hafa þegar til lengri tíma er lítið vafasamt gildi. Ég nefni þessi atriði að gefnu tilefni og tel að Skíðaráð ísa- fjarðar ætti aðeins að íhuga hvort smá naflaskoðun annað slagið mundi nokkurn skaða. Að lokum vil ég óska kepp- endum Unglingameistaramóts- ins til hamingju með frábæra frammistöðu. Sigrún Grímsdóttir t SMAAUGLYSINGAR Bílskúr Til sölu er bílskúr við Hlíðarveg. Fæst á góðum kjörum. Upplýsingar í 0 4291. BensínbíU Til sölu er bensínbíll með fjar- stýringu. Einnig Stigasleði. Upplýsingar í 0 3850. Bragi Farsími Til sölu er Mobira farsími með búnaði til að setja í bíl. Einnig spennubreytir. Upplýsingar í 0 7319 á kvöldin. Tölva Til sölu er Acorn Electron tölva með cub litskjá og 50 leikjum. Upplýsingar í 0 3448. fbúð til leigu Til leigu er 3ja herbergja íbúð að Stórholti 13. Upplýsingar í 0 3997 (hs) og í 0 4275 (vs). Hrönn í eldhúsið Óska eftir að kaupa eldhúsvask, blöndunartæki og eldhúsborð. Upplýsingar í 0 7757. Hreinn Barnavagn Til sölu er Marnett barnavagn. Upplýsingar í 0 4704. íbúð til leigu Til leigu er 4ra herbergja íbúð á Eyrinni. Laus 1. júlí. Upplýsingar í 0 4206. Kerra óskast Óska eftir að kaupa kerru. Upplýsingar í 0 4084. Skrifborð Til sölu er skrifborð með hillum. Upplýsingar í 0 7388. Avinna óskast Ung kona óskar eftir skúring- avinnu eða annari vinnu. Sveigj- anlegur vinnutími æskilegur. Upplýsingar í 0 3326. Sófasett Af sérstökum ástæðum er til sölu svart leðurlúx sófasett. Fæst á góðu verði. Upplýsingar í 0 3834 á kvöldin Myndbönd Til sölu eru ca. 900 VHS myndbönd. Upplýsingar í 0 7563 eftirkl. 19. Gleraugu Gleraugu með svartri umgjörð fundust á Seljalandsvegi á laug- ardaginn. Upplýsingar í 0 3884.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.