Bæjarins besta - 12.04.1989, Side 18
18
BÆJARIJtfS BESTA
AFLAFRÉTTIR
ísafjördur:
Guðbjörg ÍS landaði um 180
tonnum af þorski og grálúðu til
helminga á mánudag. Sett var í
sex gáma. Hún fór aftur til
veiða á þriðjudagsmorgun.
Júlíus Geirmundsson kom í
land á þriðjudag og landaði
110 tonumm. Uppistaðan í afl-
anum var þorskur en um 30-40
tonn voru af ýmsum tegund-
um. Sett var í tvo gáma. Júlíus
fór út aftur á þriðjudagskvöld.
Páll Pálsson landaði tæplega
130 tonnum á mánudag. Uppi-
staðan í aflanum var grálúða
og þorskur. Sett var í tvo
gáma. Páll fór aftur til veiða á
þriðjudag.
Guðbjartur landaði 123,5
tonnum fimmtudaginn 6. apríl.
Hann er á veiðum. Guðný
landaði rúmum 60 tonnum í
fimm róðrum og Víkingur
landaði rúmum 50 tonn eftir
fimm róðra. Orrinn landaði
rúmum 18 tonnum eftir tvær
lagnir. Hann er hættur á línu
og farinn á rækju og leggur upp
í Súðavík. Afli línubátanna er
nær eingöngu steinbítur.
Bolungarvík:
Sólrún er á úthafsrækjuveið-
um. Dagrún landaði 120 tonn-
um á föstudag. Aflinn var
þorskur og karfi til helminga.
Sett var í tvo gáma. Heiðrún
landaði 100 tonnum á laugar-
daginn. þar af voru um 60 tonn
karfi og hitt blandað. Sett var í
fjóra gáma.
Flosi fór fimm róðra á línu í
síðustu viku og landaði sanrtals
51 tonni. Nonni fór einnig
fimm róðra og fékk um 42,5
tonn. Jakob Valgeir landaði
36,5 tonnum eftir fimm róðra.
Megnið af aflanum er steinbít-
ur og aðeins sáralítið af þorski
innan um.
Mánudaginn 3. apríl landaði
Huginn 553 tonnum af loðnu,
4. apríl landaði Erling 767
tonnum af loðnu, Rauðsey
landaði 601 tonni 5. apríl og
Huginn landaði aftur sama dag
520 tonnum. Harpa landaði
9. apríl 342 tonnum. Aflinn var
nær allur settur í bræðslu en
eitthvað var tekið til frystingar
í beitu.
Súöavík:
Haffari landaði 16,7 tonnum
af rækju á þriðjudag og á
mánudag landaði Bessi 118
tonnum af grálúðu og þorski.
Sett var í fjóra gáma.
Óskar landaði 1386 kg af
rækju í tvcimur ferðum í síð-
ustu viku og Kolbrún 1512 kg.
einnig í tveimur ferðum.
Suðureyri:
Elín Þorbjarnardóttir land-
aði 6. apríl 128,2 tonnum, afl-
inn var blandaður, ýsa, karfi
og þorskur. Hún er á veiðum.
Ingimar Magnússon landaði
samtals 41,8 tonnum tæpum
eftir fimm róðra og Jón Guð-
mundsson landaði samtals tæp-
lcga 15,3 tonnum eftir fjórar
ferðir. Aflinn er mestmegnis
steinbítur.
Flateyri:
Gyllir kom til Reykjavíkur á
þriðjudag 4. apríl með 106
tonn af grálúðu. Sett var í
fimm gáma og afgangurinn var
seldur á Faxamarkaði. Gyllir
landaði aftur heima á mánudag
um það bil 95 tonnum af mjög
blönduðum afla. Sett var í
fjóra gáma.
Jónína fór í fimm róðra í síð-
ustu viku og landaði samtals
53,1 tonni. Sif landaði 43 tonn-
um eftir fimm róðra.
Benni Vagn fór fjóra róðra
og landaði samtals 31,6 tonn-
um og Tjaldanesið frá Pingeyri
landaði 56,5 tonnum úr sex
sjóferðum.
Þingeyri:
Framnesið landaði 99 tonn-
um 7. apríl. Aflinn var næstum
að jöfnu þorskur, ýsa og grá-
lúða, en eitthvað var líka af
ufsa. Sléttanesið landaði 4.
apríl 68,7 tonnum, aflasam-
setningin var svipuð og hjá
Framnesi. Báðir togararnir eru
á sjó.
Dýrfirðingur landaði 9,8
tonnum eftir þrjár ferðir, Máni
landaði 31,7 tonnum eftir fimm
ferðir, Mýrafell landaði 32,4
tonnum eftir fimm ferðir og
Bibbi Jóns 13,6 tonnum eftir
þrem ferðir. Björgvin Már var
með 10,6 tonn tæp eftir tvær
ferðir. Um tveir þriðju hlutar
af afla minni bátanna er stein-
bítur og einn þriðji þorskur.
Tálknafjörður:
Tálknfirðingur landaði á
mánudag í kringum 50 tonnum
af blönduðum afla. Aflinn fór
allur til vinnslu í hraðfrystihús-
inu.
María Júlía landaði um það
bil 70 tonnum í síðustu viku
eftir fimm róðra og Máni land-
aði um 40 tonnum í fimm ferð-
'yum. Aflinn er eingöngu þorsk-
,v ur. Bátarnir eru báðir á net
um.
Bíldudalur:
Sölvi Bjarnason landaði 7.
apríl 95 tonnum. Sett var í þrjá
gáma. Aflinn var blandaður.
Línubáturinn Ýmir landaði í
síðustu viku 3 tonnum eftir
einn róður. Auk þess hefur
verið keyptur steinbítur frá
Patreksfirði og Tálknafirði.
Patreksfjörður:
Þrymur landaði 6. apríl á
Faxamarkaði 30 tonnum af
blönduðum afla, aðallega ufsa
og karfa. Hann kom inn vegna
vélarbilunar. Sigurey er á veið-
um.
Á tímabilinu frá 3. apríl til 7.
apríl fór Egill fór í 2 róðra og
landaði rúmum 10 tonnum og
Þröstur fór í fimm róðra og
landaði í kringum 30 tonnum.
Patrekur landaði 66 tonnum
í fimm róðrum en hann er á
netum. Vestri er á línu og land-
aði 37 tonnum í fimm ferðum.
Haukur Böðvarsson er hætt-
ur að landa á Patreksfirði.
Ekki tókst okkur að fá frekari
aflafréttir frá Patró, „en það
gengur bara betur næst...“
Kynntu þér
tilboðin... VÖRUVAL LJÓNINU SKEIÐI — SIMI 4211 BUÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI