Bæjarins besta - 12.04.1989, Page 24
Þegar tíminn er naumur...
Ekkert uppvask!
Allt sem maginn girnist
ís-hvenærsemer
Matur til að borða á staðnum - eða taka heim
Fjölskylduskammtar-
Ungfrú Vestfirdir 1989:
Guðbjörg
hlutskörpust
EPPNIN um titilinn fegurðardrottning Vestfjarða 1989 fór
fram í veitingahúsinu Uppsölum síðastliðið laugardags-
kvöld. Guðbjörg Hilmarsdóttir 18 ára starfsstúlka á barna-
heimili varð hlutskörpust. Vinsælasta stúlkan var kjörin Jóna
Hrund Jónsdóttir 22 ára afgreiðslustúlka, einnig frá ísafirði.
BB óskar þeim stöllum til hamingju með titlana. Sjá nánar
frétt inni í blaðinu.
Opnum á föstudag kl. 17
líkamsræktarstöð í húsi Ræktarinnar.
Opið hús á fímmtudag._____________
Veri ð velkomin og kynnið ykkur aðstöðuna.
Studíó-DAN
S 4022
Mikill meirihluti
viidi kosningu
- um hvort ný kirkja eigi að rísa
framan við sjúkrahúsið eða ekki
s
ISAFJARÐARSÖFNUÐUR
hélt aðalsafnaðarfund sinn
síðastliðinn sunnudag í ísafjarð-
arkapellu. Fftir að reikningar
höfðu verið lagðir fram og
skýrsla starfsársins lesin var lögð
fram tillaga um að skorið yrði úr
ágreiningi innan safnaðarins um
staðarval nýrrar kirkju með al-
mennri atkvæðagreiðslu sem
fram færi 29. apríl þar sem spurt
yrði hvort söfnuðurinn styddi
ennþá fyrri samþykktir um að
reisa kirkju á lóðinni framan við
nýja sjúkrahúsið.
Eftir nokkrar umræður kom
fram breytingartillaga á orðalagi'
sem var samþykkt og orðrétt
hljóðaði endanleg tillaga
þannig:
„Aðalsafnaðarfundur ísa-
fjarðarsóknar haldinn 9. apríl
1989 samþykkir að efna til al-
mennrar atkvæðagreiðslu í söfn-
uðinum végna ágreinings í bygg-
ingar og löðamálum og verði þar
spurt svo: Vilt þú að ný sóknar-
kirkja verði byggð á uppfylling-
unni framan við nýja sjúkrahús-
ið? (Svara á með krossi við já
eða nei.)
Fundurinn lítur svo á að úrslit
atkvæðagreiðslunnar séu bind-
andi um stefnu safnaðarins í
þessu máli.“
Mikill meirihluti fundar-
manna, eða 126, greiddu at-
kvæði með þessarri tillögu en 8
voru á móti og 2 seðlar voru auð-
ir. Ennfremur var ákveðið að
fresta aðalsafnaðarfundi til 7.
maí en þar munu úrslit atkvæða-
greiðslunnar verða kynnt.
Kransakökur
fyrir fermingarnar.
Munið að
panta tímanlega.
Silfurgata 11 — Sími 94-4770