Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 4

Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 t í næsta óteki Kemur sem hentugur úði en honum er spreyjað yfir augnlokin þ.e. á lokuð augun. Úðann má nota með farða og augnlinsum. Fæs Ap úr silki LEIKFÖNG Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Ný og endurbætt netverslun Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi félags- málaráðherra, þingmaður og forseti bæjar- stjórnar í Kópavogi, fékk óvænta kveðju í gær- morgun þegar hún hélt upp á áttræðisafmæli sitt, en vinir Rannveigar og samstarfsmenn úr Samfylkingunni komu henni á óvart og heiðr- uðu með blómvendi. Þá komu börn úr Kársnes- kórnum undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og sungu afmælissönginn fyrir Rannveigu. „Þegar ég lít um öxl er fjölskyldan dýrmæt- ust,“ segir Rannveig og hún segist vera full af þakklæti fyrir að hafa fengið að starfa í stjórn- málum meðan hún sóttist eftir því og metur mikils þá gæfu að hafa eignast þennan stóra vinahóp í flokknum. „Ég naut þeirrar gæfu að vera borin fram af fólki sem treysti mér til þess að halda á lofti jafnaðarstefnunni og berjast fyrir gildum henn- ar,“ segir Rannveig og bætir við að hún hafi notið þess að vera í forystu fyrir jafnaðarmenn, bæði í bæjarmálum og á þingi. sgs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afmæli Börn úr Kársneskórnum voru á meðal þeirra sem hylltu Rannveigu og sungu afmælissönginn fyrir hana. Rannveig heiðruð á afmælinu Óvænt ánægja Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (t.h.), fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, kom Rannveigu á óvart í gær. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Greiningum hefur fjölgað en hættan á að hver einstaklingur fái krabba- mein hefur aftur á móti minnkað,“ segir Laufey Tryggvadóttir, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins. Fólki fjölgar hér á landi og þjóðin er að eldast. Fyrir vikið fjölgar greiningum enda eykst nýgengi krabbameina með aldrinum. Hins vegar hefur hættan á að fá krabba- mein minnkað með árunum með breyttum og betri lífsháttum; hollara mataræði og minni reykingum, auk skimunar fyrir forstigum legháls- krabbameins. Framfarir í meðferð, ásamt grein- ingu á lægri stigum, hafa aukið til muna lífslíkur þeirra sem greinast með krabbamein en þeir eru að jafn- aði um 1.600 árlega hér á landi. Yfir fimmtán þúsund manns sem greinst hafa með krabbamein eru nú á lífi á Íslandi. Lægsta dánartíðni í heimi Laufey bendir á að dánartíðni af völdum krabbameina hafi stöðugt lækkað hér á landi síðustu tvo ára- tugi, hjá báðum kynjum. Nýgengis- lækkun hafi þó stöðvast hjá körlum, alla vega í bili. Vert er að halda til haga þeim árangri sem náðst hafi í baráttu gegn leghálskrabbameini hér frá því leit hófst árið 1964, að mati Laufeyjar. Bæði nýgengi og dánartíðni hafi lækkað mikið og nú sé svo komið að Ísland sé í hópi þeirra landa sem hafa lægsta dánar- tíðni í heiminum af völdum legháls- krabbameins, eða minna en tvö dauðsföll árlega á hverjar 100.000 konur. Deilum við þeim árangri með hinum Norðurlandaþjóðunum og Norður-Ameríku en í Evrópu er dánartíðnin tæplega fjórir af 100.000 og í öðrum heimsálfum er hún enn hærri. Gæðaskráning innleidd Alþjóðadagur krabbameinsrann- sókna er í næstu viku, 24. september. Laufey segir í samtali við Morgun- blaðið að af því tilefni sé gaman að greina frá því að nýverið hafi Krabbameinsfélagið gert samkomu- lag við Landspítalann og Sjúkrahús- ið á Akureyri varðandi gæðaskrán- ingu á greiningu og meðferð krabbameina. Gæðaskráning felst í söfnun og skráningu klínískra gagna á samræmdan rafrænan hátt og hef- ur hún í síauknum mæli verið notuð á Norðurlöndunum. Með slíkri skrán- ingu fæst yfirlit yfir greiningar- og meðferðarferli krabbameinssjúkl- inga frá aðdraganda greiningar til loka fyrstu meðferðar en einnig er fylgst með sjúklingum að meðferð lokinni fram að endurkomu sjúk- dóms. „Við erum nú komin af stað með gæðaskráningu á stöðugt fleiri krabbameinum og er hún að sænskri fyrirmynd, svo við getum borið okk- ur saman við þá. Svíar hafa verið með slíka gæðaskráningu um áratuga- skeið og þeirra kerfi er mjög þróað og flott,“ segir Laufey. Hún segir að stefnt hafi verið að þessu í allmörg ár og að lengi hafi verið góð samvinna um þetta mál á milli Krabbameinsfélagsins og Land- spítalans. „Þegar svona gæðaskrán- ing er komin færist starfsemin til enn betra horfs, því þarna er byggt á al- þjóðlega samþykktum gæðavísum. Þannig er gæðaskráningin mikil- vægt hagsmunamál þeirra sem greinast með krabbamein.“ Áhættan hef- ur minnkað Krabbamein á Íslandi Nýgengi krabbameins og dánartíðni á hverja 100.000 íbúa 350 300 250 200 150 100 '59-'63 '64-'68 '69-'73 '74-'78 '79-'83 '84-'88 '89-'93 '94-'98 '99-'03 '04-'08 '09-'13 '14-'18 33% Um þriðjungur Íslendinga fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni Yfi r fjórðungur dánarmeina er af völdum krabbameins Helmingur allra krabbameina greinist eftir 65 ára aldur 66 ár er meðalaldurvið greiningu 50% 25% Heimild: Krabbameinsfélagið Fimm ára lífshorfur hafa meira en tvöfaldast frá því skráning hófst Á árabilinu 2014-2018 greindust að meðaltali árlega 832 karlar og 815 konur með krabbamein Í árslok 2018 voru á lífi 15.294 einstak- lingar (6.832 karlar og 8.462 konur) sem greinst höfðu með krabbamein Nýgengi hjá körlum Nýgengi hjá konum Dánartíðni hjá körlum Dánartíðni hjá konum KarlarKonur 1954 2013 297 98 145 198 85132 199 294 Karlar Konur  Bættir lífshættir hafa aukið lífslíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.