Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 6

Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við hefjum undirbúning jólanna 1. apríl þegar við sáum fyrir rauðkálinu,“ segir Þröstur Jónsson hjá Garðyrkjustöð Sigrún- ar á Flúðum þegar hann hellir úr körfu fullri af rauðkálshausum í flutningsgrind. Þau voru nokkur að skera kál á akri í landi Hellisholts. Uppskera á káli er ágæt á Suð- urlandi, þótt hún sé eitthvað misjöfn á milli tegunda og garðyrkjubýla. Ræktun jólarauðkálsins hefst sem fyrr segir með sáningu í gróðurhúsi í byrjun apríl og síðan eru plönturnar fluttar út á kálakurinn í maí og haustið er uppskerutím- inn. Sigrún Hrafnhildur Pálsdóttir garð- yrkjubóndi segir að rauðkál og fleiri teg- undir geymist fram í mars en undanfarin ár hafi birgðirnar klárast um áramót. Aftur á móti eru blómkál og spergilkál viðkvæmari afurðir og þurfa að komast ferskar á mark- að. Þær endast því aðeins fram í október. Guðni Hólmar Kristinsson, framkvæmda- stjóri afurðasviðs Sölufélags garðyrkju- manna, segir að sala á útiræktuðu græn- meti gangi vel. Allt rjúki jafnóðum út. Á undanförnum vikum hafi ekki alltaf tekist að anna eftirspurn eftir blómkáli og sperg- ilkáli en framboðið sé nægt þessa dagana. Guðjón Birgisson, garðyrkjubóndi á Mel- um á Flúðum, segir að mjög góð uppskera sé úr görðunum í haust en hann ræktar margar tegundir káls og annars grænmetis. Hjá honum er útiræktunin hliðargrein með ylrækt í gróðurhúsum. „Það hefur verið mjög gott ræktunarveður, við höfum fengið rigningu eftir þörfum. Blómkál og spergil- kál hafa vaxið frábærlega og við höfum ekki lent í neinum áföllum í ræktuninni eins og stundum gerist,“ segir Guðjón. Sigrún notar ekki eins sterk orð um upp- skeruna og Guðjón, segir að uppskeran verði í meðallagi. Hún segir að neysla á káli hafi aukist en framleiðendum fækkað. Það sé ástæða þess að birgðirnar klárist fyrr en áður. Kaupendur vilja helst fá kálið áður en búið er að framleiða það. Áhuginn er mikill og segir Þröstur leitt að geta ekki haft und- an þótt mikið sé unnið. Sigrún segir að neytendur séu hliðhollir innlendri fram- leiðslu, vilji kaupa íslenskar vörur þegar kostur er á. Erfið en skemmtileg vinna Útiræktun á grænmeti er áhættusöm at- vinnugrein því uppskeran fer eftir því hversu hagstæð tíðin er og ræðst einnig af ýmsum öðrum utanaðkomandi atriðum. Þá hefur afkoman ekki verið nógu góð að mati Sigrúnar og Þrastar. Loks má nefna að vinnan er erfið, allt unnið á höndunum. Þrátt fyrir að tarnirnar séu erfiðar finnst þeim vinnan skemmtileg. „Ef það væri ekki þá værum við hætt fyrir löngu,“ segir Sig- rún. Fjölbreytt Guðjón með litskrúðugt blómkál og á bak við sést rautt grænkál. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Á hnjánum Sigrún Pálsdóttir garðyrkjubóndi sker rauðkálshausa sem vonandi enda á jólaborði einhvers. Skera rauðkál fyrir jólamatinn  Uppskera á káli í meðallagi og sums staðar góð  Bændur hafa varla undan í uppskerustörfunum Áður gátu allir komið í garðyrkjustöðvar og keypt sér grænmeti. Það var ónæði og gat verið sjúkdómahætta. Guðjón Birg- isson og Sigríður Helga Karlsdóttir garð- yrkjubændur á Melum settu upp sjálfs- afgreiðsluskýli uppi á vegi og var það vinsælt meðal gesta á Flúðum. Fyrir fjór- um árum settu þau upp verslun sem gestir kölluðu Litlu Melabúðina og festist nafnið við hana. Guðjón ræktar margar tegundir og litaafbrigði grænmetis til að hafa í búð- inni, þau baka brauð og bjóða upp á ýmsar aðrar vörur úr héraði. „Svo skapar þetta tengsl við kúnnana. Það er gaman að geta svarað spurningum þeirra um ræktun.“ Tengsl við kúnna LITLA MELABÚÐIN Fulltrúar bankanna segja þá ekki hafa haft til skoðunar að afskrifa af- borganir ferðaþjónustufyrirtækja. Tilefnið er viðtal við Eirík Svav- arsson, hrl. og lögmann Fosshótels Reykjavík, í Morgunblaðinu í gær. Sagði Eirík- ur brýnt að bank- ar komi til móts við leigusala og leigutaka í hótel- geiranum sem hafi orðið fyrir tekjufalli í far- aldrinum. Þá kunni lögbannskrafa Fosshótels Reykjavík við þeirri fyrirætlan Ís- landsbanka að greiða út banka- ábyrgð, skv. kröfubréfi Íþöku fast- eigna, að vera fordæmisgefandi. Bjóða að fresta greiðslum Þessi sjónarmið voru borin undir bankana en jafnframt var spurt hvort þeir hefðu fengið kröfu um að bankaábyrgð yrði greidd út vegna vangoldinnar leigu fasteignafélaga. Fulltrúi Landsbankans sagði bankann ekki hafa skoðað að afskrifa afborganir ferðaþjónustufyrirtækja en bjóði fyrirtækjum í greiðsluerf- iðleikum ýmis úrræði, m.a. frestun greiðslna. Ekki væru veittar upplýs- ingar um einstaka viðskipti, s.s. kröf- ur vegna bankaábyrgða. Upplýsingafulltrúi Arion banka sagði afskriftir á afborgunum ferða- þjónustufyrirtækja í faraldrinum ekki hafa verið í sérstakri skoðun. „Hins vegar hefur bankinn boðið greiðsluhlé sem mörg fyrirtæki hafa nýtt sér. Bankinn hefur ekki fengið mál sem þetta á sitt borð,“ sagði hann spurður um bankaábyrgðina. Vísað til endurskipulagningar Fulltrúi Íslandsbanka sagði bank- ann hafa boðið almenn úrræði til að koma til móts við breyttar þarfir við- skiptavina vegna faraldursins. „Í þeim hópi eru fjölmörg fyrir- tæki í ferðaþjónustu. Úrræðin sem bankinn hefur boðið upp á felast í tímabundinni frestun afborgana og vaxta. Afskriftir skulda eru hins veg- ar ekki hluti af þeim almennu úrræð- um. Til afskrifta skulda gæti t.a.m. komið við endurskipulagningu á fjár- hag félaga, bæði á grundvelli frjálsra samninga eða nauðasamninga við kröfuhafa,“ sagði hann. Varðandi kröfu um bankaábyrgð hefðu nokkur slík mál komið upp. baldura@mbl.is Ekki skoðað að fella niður kröfur  Bankar bjóða ferðaþjónustu ýmis úrræði  Afskriftir ekki til skoðunar vegna tekjufalls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.