Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 8

Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 Í óundirbúnum fyrirspurnatíma borgarstjórnar í gær tókust Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri og Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, á um skuldir borgar- innar. Eyþór benti á að skuldir borgar- innar hefðu vaxið hratt á síðustu árum, þ.e. áður en kórónu- veiran kom til, þrátt fyrir góðæri. Þessi skuldasöfnun væri þvert á loforð vinstri manna í meiri- hlutasáttmála þeirra og Eyþór spurði hvað hefði klikkað.    Dagur kenndi falli WOW og sam-drætti í ferðaþjónustu um ófar- irnar (!) en hélt því um leið fram að skuldahlutfall borgarinnar væri til- tölulega lágt miðað við önnur sveit- arfélög. Þar miðaði hann við A-hlut- ann, borgarsjóðinn einan, en ekki B-hlutann, fyrirtæki borgarinnar.    Það getur vissulega komið sér velað undanskilja fyrirtæki borgarinnar, sérstaklega þegar borgin er búin að færa stóran hluta skulda sinna úr borgarsjóði yfir í „fyrirtæki“. Þessi fyrirtæki eru þó að hluta til með ábyrgð borgarinnar, eins og Eyþór benti á, þ.a. fráleitt er að undanskilja skuldir B-hlutans.    Þar að auki eru til dæmis Félags-bústaðir í B-hlutanum, en þar fer fram velferðarþjónusta en ekki raunverulegur fyrirtækjarekstur.    Dagur gæti allt eins sett gang-stéttir borgarinnar í sérstakt hlutafélag og skuldir á móti og lækk- að þannig skuldahlutfall A-hluta borgarinnar. Það mundi þó engu breyta um hratt versnandi skulda- stöðu síðustu ára, en gæti mögulega nýst í spunavinnunni. Eyþór Arnalds Gangstéttir hf...? STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kominn er til Reykjavíkur hol- lenskur dráttarbátur, Phoenix, sem Faxaflóahafnir hafa fengið að láni frá hollensku skipasmíðastöðinni Damen. Báturinn verður hér fram í desember á meðan stöðin vinnur að lagfæringum á hinum nýja dráttar- báti, Magna. Hann var smíðaður fyr- ir Damen í Víetnam. Sem kunnugt er kom Magni til landsins í lok febrúar sl. Fljótlega kom í ljós að ekki var allt með felldu varðandi bátinn. Svo miklir gallar voru á smíðinni að ákveðið var að sigla bátnum til viðgerða í Hollandi. Listi yfir smíðagallana er langur. Alvarlegasti gallinn var sá að hvorug aðalvél var rétt staðsett og þarf að rétta þær af. Þá þarf að skipta um togspil að framan og þrífa elds- neytiskerfi og tanka. Öll atriði á verkefnalistanum eru í ábyrgð og er allur kostnaður sem til fellur greidd- ur af Damen, samkvæmt upplýsing- um frá Faxaflóahöfnum. Áætlað er að viðgerðum á Magna ljúki í lok nóvember en þá er heimsigling til Reykjavíkur eftir. Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður og El- liði Aðalsteinsson yfirvélstjóri fylgj- ast með viðgerðunum. Phoenix verður mannaður starfs- mönnum Faxaflóahafna og fara þeir í þjálfun næstu daga. sisi@mbl.is Lánsbáturinn kominn til landsins  Alvarlegir gallar eru á nýja Magna  Skipasmíðastöðin borgar viðgerðina Mynd/Faxaflóahafnir Lánsbátur Phoenix er með 61 tonns dráttargetu, nokkru minni en Magni. Fyrirhugað er að rýmka skilyrði sem sett eru fyrir endurgreiðslu hluta kostnaðar við útgáfu hljóðrit- ana og koma þannig „til móts við þarfir útgefanda og listamanna í kjölfar breyttra markaðsaðstæðna og rekstrarumhverfis“, eins og segir í kynningu á nýjum frumvarps- drögum atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins. Drögin hafa verið birt á samráðs- gátt stjórnvalda og felst breytingin í því að lagt er til að samanlagður spil- unartími tónlistarhljóðritana miðist við 14 mínútur í stað 30 svo heimilt sé að endurgreiða kostnað við þær. Viðmið endurgreiðsluhæfrar út- gáfu tónlistarinnar sem taka á upp yrði því að lágmarki fjögur lög, þ.e.a.s. ef miðað er við að hvert lag sé að jafnaði 3,5 mínútur. Núgildandi lög gera ráð fyrir að heimilt er að endurgreiða 25% af endurgreiðsluhæfum kostnaði sem fellur til við hljóðritun. Eitt af skil- yrðum þess er að samanlagður spil- unartími hljóðritana sé ekki undir 30 mínútum og segir í greinargerð að með 30 mínútna spilunartíma sé að vissu leyti vísað til lágmarkstíma þess sem í daglegu tali er nefnt breiðskífa (LP-plata). Dægurlögin styttri en áður var Með breyttum markaðsaðstæðum og rekstrarumhverfi hafi fjöldi tón- listarmanna kosið að gefa út stök lög (e. single) eða stuttskífu (EP-plata). Í daglegu tali sé vísað til stuttskífu sem hljómplötu sem inniheldur fleiri en eitt lag, oft fjögur til sex, en er þó innan við hefðbundinn 30 mínútna hljóðritunartíma breiðskífu. Þá er bent á að meðallengd dægurlaga sé minni nú en áður eða þrjár mín. og þrjátíu sek. en var að jafnaði fjórar mínútur fyrir 20 árum. omfr@mbl.is 14 mín. spilunartími dugi til endurgreiðslu  Komið til móts við listamenn í nýjum frumvarpsdrögum Morgunblaðið/Golli Unnið í hljóðveri Endurgreiða má hluta kostnaðar við hljóðritun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.