Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
Alls hafa rúmlega tvær milljónir hektara gjör-
eyðilagst í gróðureldum sem geisa nú á vest-
urströnd Bandaríkjanna. Hið minnsta 36 hafa
spáð víða á vesturströndinni síðar í vikunni sem
yfirvöld vona að hafi í för með sér langþráða
rigningu. Storminum gætu þó fylgt eldingar.
látist í Oregon-ríki, Kaliforníu og Washington-
ríki. Í Oregon er tuga enn saknað og þúsundir
heimila hafa brunnið til kaldra kola. Stormi er
AFP
Tvær milljónir hektara brunnið til kaldra kola
Morten Jesper-
sen, sendiherra
Danmerkur hjá
Sameinuðu þjóð-
unum í Genf, las í
gær yfirlýsingu
fyrir hönd 29
þjóða í mannrétt-
indaráði Samein-
uðu þjóðanna,
þar sem Sádi-
Arabar voru for-
dæmdir fyrir margvísleg og alvar-
leg brot á mannréttindum, og þess
krafist að þeir sem myrtu blaða-
manninn Jamal Khashoggi myndu
svara til saka, en dómstóll í Sádi-
Arabíu mildaði dóma yfir átta sak-
borningum fyrr í mánuðinum.
Ríkin 29 fordæmdu einnig fregn-
ir af pyndingum á föngum, auk þess
sem vakin var athygli á máli fimm
kvenna sem sitja í fangelsi vegna
baráttu sinnar fyrir auknum rétt-
indum.
Mannréttindabrot
fordæmd í Genf
Jamal
Khashoggi
SÁDI-ARABÍA
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti lýsti því
yfir í gær að
hann hefði viljað
láta ráða Bashar
al-Assad, forseta
Sýrlands, af dög-
um árið 2017, en
að Jim Mattis,
þáverandi varn-
armálaráðherra
Trumps, hefði lagst gegn því. „Ég
hefði frekar viljað taka hann út. Ég
var með allt til reiðu,“ sagði Trump
í morgunþættinum Fox & Friends í
gærmorgun. Trump sagði að Mattis
hefði verið „mjög ofmetinn hers-
höfðingi“ og því hefði hann látið
hann fara.
Trump sagði í gær að hann sæi
ekki eftir því að hafa ekki fyrir-
skipað árásina, en hugmyndin
kviknaði eftir að Assad gerði efna-
vopnaárás á eigin ríkisborgara í
apríl 2017. Bandaríkjamenn völdu í
staðinn að gera eldflaugaárás á
herflugvöll í Sýrlandi.
Hugðist ráða Assad
af dögum 2017
Donald
Trump
BANDARÍKIN
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn Alexei Na-
valní greindi frá því í gær að hann gæti nú aftur
dregið andann án aðstoðar öndunarvéla, í fyrsta
sinn frá því að eitrað var fyrir honum 20. ágúst
síðastliðinn. Kíra Yarmush, talskona Navalnís,
sagði við AFP-fréttastofuna að hann hygðist snúa
aftur til Rússlands þegar hann hefði náð sér að
fullu. „Enginn annar kostur hefur verið íhugað-
ur,“ sagði hún.
Navalní birti mynd af sér, Júlíu konu sinni og
tveimur börnum þeirra frá sjúkrabeði sínum í
Berlín á samskiptamiðlinum Instagram í gær. Þar
ávarpaði hann stuðningsmenn sína og sagðist hafa
getað andað á ný hjálparlaust allan mánudaginn.
„Það er undravert ferli og vanmetið af mörgum.
Ég mæli með því,“ sagði Navalní og bætti við að
hann saknaði stuðningsmanna sinna.
Þýsk stjórnvöld lýstu því yfir í fyrradag að
óháðar rannsóknir í Frakklandi og Svíþjóð hefðu
staðfest niðurstöðu rannsókna þýska hersins um
að taugaeitrinu novichok hefði verið beitt gegn
Navalní. Aðstandendur Navalnís segja að það
þýði að einungis rússneska ríkið geti borið
ábyrgðina á árásinni, en novichok var einnig beitt
í eiturvopnaárásinni gegn Skrípal-feðginunum ár-
ið 2018.
Hafa margar spurningar
Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar hafnað
þeim ásökunum með öllu, og sagði Sergei Narys-
hkin, yfirmaður rússnesku utanríkisleyniþjónust-
unnar, að rússneskir læknar hefðu ekki fundið
neinar menjar þess að eitrað hefði verið fyrir Nav-
alní. „Við höfum því margar spurningar handa
Þjóðverjum,“ sagði Naryshkin á blaðamanna-
fundi.
Þá lýsti Naryshkin því yfir að læknateymið í
borginni Omsk í Síberíu hefði bjargað lífi Navalnís
og gert ítarlegar prófanir á honum. Að auki hefðu
rússnesk stjórnvöld fargað birgðum sínum af no-
vichok, og því væru ásakanir um að Rússar byggju
enn yfir því byggðar á röngum upplýsingum.
Dímítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútín
Rússlandsforseta, sagði í gær að tíðindin um bætt
ástand Navalnís myndu „gleðja alla“. Ítrekaði
Peskov beiðni rússneskra stjórnvalda um upplýs-
ingar frá Þjóðverjum um eiturefnapróf Navalnís,
en Rússar hafa ekki viljað hefja opinbera rann-
sókn á atvikinu fyrr en þær liggja fyrir.
Ætlar aftur til Rússlands
Alexei Navalní kominn úr öndunarvél og með fulla meðvitund Ekkert annað
hafi komið til greina en að snúa aftur Rússnesk stjórnvöld vísa ásökunum á bug
AFP
Úr öndunarvél Alexei Navalní setti mynd af sér
og fjölskyldu sinni frá sjúkrabeði á Instagram.
Þýsk stjórnvöld tilkynntu í gær að
þau hygðust bjóða 1.500 flóttamönn-
um sem nú dveljast í búðum á grísk-
um eyjum hæli í landi sínu. Búið er
að reisa nýjar búðir yfir um það bil
800 manns af þeim rúmlega 12.000
flóttamönnum sem misstu skjól sitt
þegar Moria-flóttamannabúðirnar á
eyjunni Lesbos brunnu til kaldra
kola fyrir rúmri viku. Hafa flestir
þeirra hafst við í yfirgefnum húsum
eða við vegkant frá þeim tíma.
Þjóðverjar höfðu áður boðist til
þess að taka við um 150 ungmennum
af 400 sem dvöldu í búðunum án full-
orðinna aðstandenda, en nú hyggj-
ast þeir einnig bjóða fjölskyldum
með börn hæli, en boðið verður ekki
bundið við fólk sem dvaldist í Moría-
búðunum.
Grísk stjórnvöld tilkynntu jafn-
framt í gær að fimm hefðu verið
handteknir vegna gruns um að þeir
hefðu átt þátt í að eldurinn kviknaði.
Mönnunum fimm var lýst sem „ung-
um erlendum ríkisborgurum“ í til-
kynningu stjórnvalda, og er sjötta
mannsins enn leitað. Talið er að sá
hafi þegar flúið Lesbos.
Taka á
móti 1.500
manns
Fimm handteknir
vegna eldsvoðans