Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Breytt heimsmynd kannsenn að blasa við í Mið-Austurlöndum eftir þvísem fleiri arabaríki taka upp samskipti við Ísrael eftir ára- tuga langa einangrun eða hreina óvináttu. Síðastliðinn föstudag greindi Don- ald Trump Bandaríkjaforseti frá því að Bahrein myndi taka upp samband við Ísrael, en varla er mánuður frá því að Sameinuðu arabísku fursta- dæmin (SAF) ákváðu að færa tengsl- in við Ísrael í eðlilegt horf tveggja nágrannaríkja með margvíslega sameiginlega hagsmuni. Þar eru áhyggjur af uppivöðslusemi Írana sjálfsagt ríkastar. Trump getur með réttu hreykt sér af þessum árangri á utanríkissviðinu og veitir víst ekki af góðum fréttum í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Það er þó frekar að Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra Ísraels, geti hrósað sigri í þessu máli, en hann hefur um árabil unnið að því leynt og ljóst að koma á eðlilegu sam- bandi við nágrannaríkin í Mið- Austurlöndum. Málamiðlun Trump- stjórnarinnar og þá sér í lagi Jared Kushner, tengdasonar forsetans, skipti vissulega máli, en forsetakosn- ingarnar vestra spila þar einnig inn í. Arabaríkin óttast að hafi Joe Biden sigur í þeim, muni hann aftur taka upp friðþægingarstefnu Baracks Obama, fyrirrennara síns, gagnvart Íran. Palestínuarabar hafa hins vegar af því töluverðar áhyggjur að þeir séu að einangrast í baráttunni við Ísra- elsríki um land og ríkisstofnun, þeg- ar bandamenn þeirra í arabaríkjun- um hopa einn af öðrum. Tilkynningin kom ekki fullkom- lega á óvart og Bahrein er minnst Persaflóaríkjanna, svo út af fyrir sig munu samskipti þess og Ísraels ekki breyta miklu. Hitt skiptir meira máli, að Bahrein er tengt Sádi-Arabíu nánum böndum og hefur ekki (frekar en SAF) afráðið að stíga þetta skref án þess að hafa fengið þegjandi sam- þykki Sádi-Arabíu fyrst. Sjálfsagt munu fleiri eftir fylgja. Ekki eru þó öll arabaríki svo sátt- fús. Katar og Kúveit gefa til kynna að þeim verði ekki þokað, þótt ýmsir telji að Katar kunni að láta sér það lynda geti það rofið einangrunina við önnur ríki á Arabíuskaga. Sátt við Sádi-Arabíu meginmarkmið Ísraelsmanna Mestu mun þó muna ef Ísraels- mönnum tekst að ná meginmarkmiði sínu um sættir við Sádi-Arabíu. Nú þegar eru þar á milli ýmis óopinber eða leynileg tengsl, einkum vegna sameiginlegra hagsmuna þeirra um að halda aftur af ofmetnaði klerka- stjórnarinnar í Íran. Mohammed bin Salman, hinn áhrifamikli krónprins Sádi-Arabíu, hefur gefið eindregið til kynna að hann vilji taka upp bætt samskipti við Ísrael, en þó að Salman konungur, faðir hans, þybbist við, þá er hann orðinn 84 ára gamall, ekki heilsuhraustur og þjakaður af Alz- heimer. Til þessa hefur Sádi-Arabía haldið fast við að frekari þíða í garð Ísraels sé háð því að Ísraelsmenn hverfi aft- ur að landamærunum, sem voru fyrir hina misheppnuðu árás arabaríkj- anna í sexdagastríðinu 1967, og að sjálfstætt ríki Palestínu verði stofn- að, en atburðir undanfarinna vikna benda til þess að sú stefna verði brátt fyrir bí. Það var hugsanlega til marks um það, að þegar fulltrúar Palestínu- araba reyndu í liðnum mánuði að fá Arababandalagið til þess að for- dæma SAF fyrir að vingast við Ísr- ael, uppskáru þeir einungis skammir fyrir afskiptasemi. Hið merkilegasta í þessu öllu er þó mögulega það, að viðbrögð almenn- ings í arabaríkjum — Arabastrætis- ins svonefnda — hafa öfugt við það sem margir Mið-Austurlandasér- fræðingar hafa varað við árum sam- an, verið nákvæmlega engin. Þessi breytta staða, sem endurspeglar raunveruleikann frekar en ósk- hyggju, virðist fáa trufla nema Pal- estínuaraba. Sem þá þurfa mögulega að hugsa sinn gang. Arabaríki taka upp samskipti við Ísrael S.A.F. 30° 40° 50° 10° 20° 30° 40° 10 20° 30° 40° Svartahaf Kaspía- haf Hor muz Arabíuhaf Miðjarðarhaf Persaflói Ómanflói R auðahaf Aden-flói 60° SAÚDÍ ARABÍA SÚDAN SUÐUR- SÚDAN EGYPTA- LAND TYRKLAND EÞÍÓPÍA SÓMALÍA RÚSSLAND KÝPUR JÓRDANÍA ÍSRAEL ARMENÍA PAK. KÚVEIT KATAR BAHREIN TÚRKMENISTAN ÚZBEKÍSTAN GEORGÍA AZERBADZJAN ERÍTREA DJÍBÚTÍ ÓMAN SÝRLAND ÍRAK ÍRAN AFGAN- ISTAN JEMEN LÍBANON Ankara Damaskus Baghdad Amman Kaíró Riyadh Múskat Sanaa Jerúsalem Mekka Jeddah Abú Dhabí Beirút Dúbaí Tehran Sínaí 500 Km 10000 Gólan GRIKK- LAND KAZAKHSTAN Stjórnmálatengsl Óbein tengsl Engin tengsl / óvinátta Ísrael og tengslin við nágrannana 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fasteignamat-ið er sér-stakt fyrir- bæri í íslenskri stjórnsýslu. Fast- eignamatið er notað til grundvallar fast- eignagjöldum. Ef matið hækkar hækka fasteignagjöldin sömu- leiðis. Iðulega er þessi hækkun langt umfram verðbólgu og stundum hafa sveitarfélög brugðist við með því að lækka hlutfall fasteignagjaldsins, sjaldnast þó það mikið að ekki halli á skattgreiðandann þegar upp er staðið. Mótsagnir fasteignamatsins voru rækilega afhjúpaðar í máli Hótels B59 í Borgarnesi, sem fjallað var um í Morgunblaðinu í gær. Eigendur Hótels B59 gerðu athugasemdir við það að fast- eignamat þeirra var mun hærra en mat keppinauta. Fasteigna- mat Hótels B59 var 55 til 75% hærra en fasteignamat annarra hótela á svæðinu, þar á meðal Hótels Húsafells og Hótels Hamars. Bentu þeir á að þetta skekkti samkeppnisstöðu hótels- ins í Borgarnesi verulega. Í fréttinni er rætt við Hjörleif B. Kvaran, lögmann Hótels B59. Þar segir hann að fyrst hafi mál- ið verið kært, en kærunni verið hafnað og sagt að matið skyldi standa. Þá var kært til yfirfast- eignamatsnefndar, sem felldi úr- skurðinn úr gildi. Í kjölfarið var farið fram á að fram- kvæmt yrði nýtt mat og er nú beðið eftir því. Það er vissulega gott að niðurstaðan skuli hafa orðið sú að þetta skuli endur- skoðað þótt ekki hafi það náðst fram í fyrstu atrennu. Mismun- unin virðist augljós og tregðan til að leiðrétta hana er ekki í anda orða Bjarna Benedikts- sonar fjármálaráðherra í viðtali í Viðskiptamogga fyrir skömmu þar sem hann sagði að hann vildi beita sér fyrir viðhorfsbreytingu í kerfinu. „Það á að vera viðkvæðið hér í ráðuneytinu, hverri einustu stofnun og skrifstofu hins op- inbera að símanum sé svarað með orðunum: „Góðan dag, hvernig get ég aðstoðað?““ Fasteignamat á ekki að vera leið til að mismuna fyrirtækjum í sambærilegum rekstri. Það á heldur ekki að vera skjól til að hækka skatta án þess að til þess þurfi sérstaka ákvörðun. Hækk- að verð á fasteign skiptir engu máli fyrir eigandann nema hann selji fasteignina. Hærra fast- eignaverð hækkar hvorki launin né eykur verðmæti framleiðsl- unnar. Sambandið milli fast- eignamats og fasteignagjalda þarf að endurskoða. Sambandið milli fasteignamats og fasteignagjalda þarf að endurskoða} „Hvernig get ég aðstoðað?“ Sveitarstjórn-arkosningar í sambandsríkinu Nordrhein- Westfalen í Þýska- landi eru almennt ekki þess virði að þeim sé veitt sér- stök athygli utan Þýskalands, jafnvel ekki utan sam- bandsríkisins þó að það sé það langfjölmennasta í Þýskalandi. Lengi vel var þetta vegna þess að Sósíaldemókratar (SPD) „áttu“ þetta sambandsríki og voru gjarnan með um 50% stuðning þar og þess vegna ekki mikilla hræringa að vænta það- an, en líka almennt vegna þess að sveitarstjórnarkosningar þykja almennt ekki mjög eftir- tektarverðar fyrir aðra en íbúana, sérstaklega ekki í sam- bandsríkjum. Sveitarstjórnarkosningarnar í Nordrhein-Westfalen um liðna helgi kunna þó að hafa meiri áhrif í þýskum stjórnmálum en venja er. SPD hafði gefið nokk- uð eftir áður og var í kosning- unum 2014 komið niður í 31% en nú fékk flokkurinn annað högg með aðeins 24% atkvæða. Kristilegir demókratar (CDU) lækkuðu líka, en mun minna og halda 34% fylgi og eru þar með lang- stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstig- inu í sambandsrík- inu. Þetta kann að hafa talsverða þýð- ingu því að for- sætisráðherra Nordrhein-- Westfalen, Armin Laschet, er einn þeirra sem hyggjast bjóða sig fram til leiðtoga CDU í des- ember og talið er að útkoman nú sé að nokkru honum að þakka og í það minnsta að hann muni geta nýtt sér úrslitin til að auka líkur sínar á sigri. Það má því segja að Laschet sé skrefi nær því eftir kosningar helgarinnar að taka við leiðtoga- sætinu og þar með að verða kanslaraefni flokksins í kosn- ingunum sem verða ekki síðar en haustið 2021. Á hinn bóginn má segja að þó að hann vinni sigur innan flokksins og flokkur hans í fram- haldi af því sigur í þýsku þing- kosningunum er ekki endilega líklegt að mikilla breytinga sé að vænta, enda fátt sem bendir til að Laschet muni víkja frá þeirri stefnu sem Angela Mer- kel hefur lagt í helstu málum. Þýsk stjórnmál eru ekki þau líflegustu, en ekki er útilokað að kosn- ingar um helgina kunni að hafa ein- hver áhrif – og þó} Kosningar sem gætu skipt máli R íkisstjórnir víða um heim hafa á undanförum vikum og mánuðum sett á ferðatakmarkanir, sam- komubann og á einstaka stöðum útgöngubann. Slíkar ákvarðanir um að takmarka frelsi einstaklinga á aldrei að taka af léttúð. Í mannréttindakafla stjórnar- skrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu er gert ráð fyrir heimild ríkisvaldsins til að setja skorður við frelsi einstaklinga og þá ein- vörðungu þegar almannahagsmunir krefjast þess. Þrátt fyrir framangreindar heimildir er ljóst að þær eru vandmeðfarnar og stjórn- völdum eru settar ákveðnar skorður. Aðgerðir verða að eiga sér stoð í lögum, þær eiga ekki að ganga lengra en tilefni er til og vara ekki lengur en nauðsyn krefur. Þetta er mikilvægt. Á tímum Covid-19-faraldursins er til dæmis nauðsynlegt að engar takmarkanir séu settar á tjáning- arfrelsi. Við þurfum alltaf að virða réttinn til skoðana- skipta, ekki aðeins meðal lækna eða annarra sérfræð- inga heldur rétt alls almennings til að tjá mismunandi sjónarmið og rökræða um ráðstafanir stjórnvalda. Skjót viðbrögð hér á landi í upphafi faraldursins leiddu til þess að ekki þurfti að grípa til jafn harðra ráð- stafana og aðrar þjóðir hafa neyðst til að gera. Þjóðin stóð saman og allir lögðu sitt af mörkum til að halda fyrstu bylgju faraldursins í skefjum. Þegar ný bylgja fór af stað í lok júlí var ákveðið að herða til muna aðgerðir á landamærum. Sú ákvörðun var heldur ekki tekin af léttúð enda ljóst að kórónuveiru- faraldurinn kemur harkalega niður á efna- hagslífi landsins, þá sérstaklega ferðaþjón- ustunni. Eðli málsins samkvæmt gætir óþreyju og spurt er hvort of langt hafi verið gengið þar sem ljóst er að veiran mun halda áfram að skjóta upp kollinum þrátt fyrir þessar hertu aðgerðir á landamærunum. Markmið okkar er óbreytt; að halda kúrf- unni niðri og vernda þá sem eru í áhættuhóp- um. Þá þarf að taka ákvarðanir sem miða að því að verja rétt fólks til öryggis og heilsu. Samhliða þarf þó að vega efnahagslega þætti og gæta meðalhófs. Með öðrum orðum: Það þarf að meta afleiðingar takmarkana á líf og heilsu almennings og hagkerfið í samanburði við beinar afleiðingar veirunnar. Ákvarðanir stjórnvalda hafa hvílt á mati á heilsu og heildarhagsmunum þjóðarinnar. Í því mati þarf ekki síst að horfa til efnahagslegra þátta sem og félags- legra. Það er stundum sagt að lækningin megi aldrei verða verri en sjúkdómurinn sjálfur. Það á ekki síður við nú. Í ástandi þar sem forsendur og veruleiki breytast frá viku til viku þurfa stjórnvöld þó að vera tilbúin til að end- urskoða ákvarðanir ef gild rök liggja að baki þeim. Við höfum fram að þessu hugsað í lausnum og við munum halda því áfram í þessu ferli. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Baráttan við veiruna heldur áfram Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.