Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 13

Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 13
Í fyrra stóð Róbert Spanó, íslenski dómarinn við Mannrétt- indadómstól Evrópu, að furðu- legum dómi í máli gegn Íslandi. Það mál varðaði skipun dómara í Landsrétt. Þar átti íslenski dómarinn hlut að dómi MDE á hendur heimalandi sínu með þeirri niðurstöðu að Lands- réttur hefði ekki verið skipaður samkvæmt lögum. Þetta sáu allir lögfróðir menn að var stað- leysa. Skipan dómsins fór að öllu leyti fram samkvæmt lög- um og hafa allar valdastofnanir á Íslandi staðfest að svo sé, Alþingi, ráðherra, Hæstiréttur (mál nr. 10/2018) og meira að segja forseti Íslands. Enginn réttur var brotinn á kæranda sem hafði játað ölvunarakstur og var ákveðin refsing fyrir það. Á sama tíma hefur Róbert Spanó staðið að því að vísa frá MDE fjölda kærumála frá Tyrklandi, þar sem m.a. dómurum var vikið úr starfi í stórum stíl fyrir þær sakir að vilja ekki þýðast harðstjór- ann Erdógan. Svo bítur Róbert Spanó höfuðið af skömm- inni með því að þiggja boð til Tyrklands til að hitta Erdóg- an og láta þar sæma sig heiðursnafnbót, allt undir forsjá harðstjórans. Þetta er ótrúleg atburðarás, ekki síst þegar málið gegn Íslandi er skoðað til samanburðar. Ekki er auðvelt að ráða í ástæðurnar fyrir framferði þessa dómara. Hann virðist helst vera í einhverjum póli- tískum og persónulegum leik, þar sem lög og réttur skipta hann ekki miklu máli. Það er orðið ljóst að Róbert Spanó er með Tyrklands- hneykslinu búinn að skaða Mannréttindadómstól Evrópu með þeim hætti að honum ber siðferðileg skylda til að biðj- ast lausnar; a.m.k. ef hann metur hag dómstólsins meira en eigin hégómagirnd. Ég spái því að hann muni samt ekki gera þetta. Hann mun bregðast við eins og svo margir gera við hliðstæðar aðstæður. Forherðast og sitja sem fastast. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þetta er ótrúleg at- burðarás, ekki síst þegar málið gegn Íslandi er skoðað til sam- anburðar. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður Honum ber að biðjast lausnar 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 Á ferð Þegar borgarbúar ungir sem aldnir þurfa að sinna erindum ýmiss konar getur stundum verið gott að ferðast á tveimur jafnfljótum, ekki síst þegar vel viðrar. Enn betra þykir eflaust sumum að svipast um af baki samferðamanna sinna. Eggert Eftir því sem mikil- vægi Kína í alþjóðlegu efnahagslífi eykst hefur ritskoðun komm- únistaflokksins yfir landamæri orðið auð- veldari, skilvirkari og áhrifameiri. Aukin al- þjóðleg áhrif Peking hafa leitt til þess að rit- skoðunararmur kín- verska kommúnista- flokksins hefur náð taki á útgefendum, fræðimönnum, rithöf- undum, blaðamönnum og ekki síst kvikmyndaiðnaðinum, óháð rík- isborgararétti þeirra eða landamær- um. Í nýlegri skýrslu PEN America um áhrif stjórnvalda í Peking á kvik- myndaiðnaðinn er dregin upp dökk mynd. Skýrslan veitir innsýn í hvern- ig kínversk stjórnvöld hafa með beinni og óbeinni ritskoðun haft áhrif á Hollywood og alþjóðlegan kvik- myndaiðnað. Með skipulegum hætti hefur kínverski kommúnista- flokkurinn náð kverkataki á kvik- myndagerð. Stærstu framleiðendur heims leika eftir þeirri forskrift sem þeim er gefin. Þar með mótar Peking áhrifamesta listræna og menning- arlega miðil heims – kvikmyndir – langt út fyrir eigin landamæri. PEN America berjast fyrir frjálsri tjáningu listamanna og almennum mannréttindum og eru hluti af al- þjóðlegum samtökum rithöfunda, blaðamanna og annarra fulltrúa hins skrifaða og talaða orðs. Samtökin eiga rætur í Bretlandi en tóku til starfa í Bandaríkj- unum árið 1922. Frjáls tjáning út í horn Fyrir marga er að- gangur að kínverska markaðinum mik- ilvægur og þar er kvik- myndaiðnaðurinn ekki undanskilinn. For- senda þess að geta átt viðskipti innan landa- mæra Kína er að við- komandi felli sig við reglur stjórnvalda í Peking, ekki síst strangar reglur ritskoðunar. Á síð- ustu árum hafa forráðamenn kvik- myndaiðnaðarins lært leikreglurnar og stunda nú sjálfsritskoðun. For- stjórar kvikmyndavera aðlaga hand- rit bíómynda – söguþráð, samtöl og umgjörð – að því sem þeir telja vera þóknanlegt kínverska komm- únistaflokknum. Val á leikurum má heldur ekki styggja ráðamenn í Pek- ing. Kvikmyndaiðnaðurinn í Hollywood hefur þannig sett frjálsa tjáningu út í horn. Oft er fulltrúum kínverskra rit- skoðara boðið í kvikmyndaverin til að gefa ráð um hvernig standa skuli að verki til að tryggja að bíómynd kom- ist fyrir augu almennings í Kína. Sjálfsritskoðun kvikmyndaiðn- aðarins – flóttinn frá frjálsri tjáningu – hefur að mestu farið fram í kyrr- þey. Og það er mikið í húfi fyrir bandarískan kvikmyndaiðnað. Kínverski markaðurinn er stærsti markaður kvikmynda í heiminum. Á fyrsta ársfjórðungi 2018 fór Kína fram úr Bandaríkjunum í miðasölu kvikmyndahúsa. Í áætlun (gerð fyrir kórónuveirufaraldurinn) var því spáð að heildartekjur kvikmyndahúsa verði um 15,5 milljarðar dala árið 2023. Á sama tíma er búist við að tekjur í Bandaríkjunum verði um 11,4 milljarðar. Uppgangur í kín- verskri kvikmyndagerð og auknar vinsældir hafa aukið þrýsting á Hollywood og leitt til sífellt meiri sjálfsritskoðunar og opnað greiða leið fyrir ritskoðun kínverska komm- únistaflokksins. Kysst á vöndinn Sá tími er liðinn þegar Hollywood skipaði sér á bekk með baráttufólki fyrir almennum mannréttindum í Kína. Draumasmiðjan framleiðir ekki lengur myndir líkt og Sjö ár í Tíbet með Brad Pitt í aðalhlutverki, Kund- un leikstýrt af Martin Scorsese eða Red Corner þar sem Richard Gere fór með aðalhlutverkið. Myndirnar eru ádeila á mannréttindabrot kín- verskra stjórnvalda, draga upp ógeð- fellda mynd af lögregluríki og dóms- kerfi sem framfylgir aðeins stefnu stjórnvalda. Engin þessara kvikmynda var sýnd í Kína en á þeim tíma skipti það litlu. Árið 1997 var kínverski mark- aðurinn svipaður og í Perú – hafði lítil áhrif á afkomu kvikmyndaveranna. En fljótt skipast veður í lofti. Ári eftir að Kundun var frumsýnd átti Michael Eisner, forstjóri Disney sem framleiddi myndina, fund með Zhu Rongji, þáverandi forsætisráðherra Kína, til að ræða stækkunaráform fyrirtækisins. Af því tilefni sagði Eis- ner um Kundun: „Slæmu fréttirnar eru þær að myndin var framleidd, góðu fréttirnar eru þær að enginn horfði á hana.“ Og forstjóri Disney lét ekki þar við sitja enda mikið und- ir, m.a. undirbúningur að Disney World í Shanghai. Hann bað kínversk stjórnvöld afsökunar og lofaði að fyrirtækið myndi ekkert gera í fram- tíðinni „sem móðgar vini okkar“. Þrælslund Hollywood gagnvart kínverska kommúnistaflokknum birt- ist skýrlega í yfirlýsingu Jean- Jacques Annaud, leikstjóra Sjö ára í Tíbet, um að hann hefði aldrei stutt sjálfstæðisbaráttu Tíbeta og aldrei átt samskipti við Dalai Lama. Leik- stjórinn lýsti því hátíðlega yfir að úti- lokað væri að hann yrði vinur sjálf- stæðishetju og trúarleiðtoga Tíbeta. Allt er gert til að forðast „svartan lista“ yfir óæskilega listamenn með sjálfstæðar skoðanir. Í kreditlista Mulan, nýrrar kvik- myndar Disney-samsteypunnar (endurgerð samnefndrar teikni- myndar frá 1998), þakkar framleið- andinn kínverska áróðursráðuneyt- inu og öryggislögreglunni í Xinjiang-héraði, þar sem myndin var tekin upp að hluta, sérstaklega fyrir veitta aðstoð. Í héraðinu hefur yfir ein milljón Úigúra verið send í fanga- búðir, sem stjórnvöld kalla aðlög- unarbúðir, og tugir þúsunda hafa ver- ið sendir brott til að vinna í verksmiðjum víða í Kína. Ofsóknir gagnvart Úigúrum – minnihlutahópi múslima – hafa staðið áratugum sam- an þar sem markvisst er stefnt að því að brjóta niður siði og venjur minni- hlutahóps. Fangabúðir og nauðung- arvinna – þrælkun – eru léttvæg í hugum þeirra sem stýra áhrifamestu listgrein heims. Sálin framseld Eisner og Annaud eru ekki þeir einu í draumaborginni sem kyssa rit- skoðunarvönd kínverska komm- únistaflokksins. Það gera flestir en á því eru sem betur fer undantekn- ingar. Quentin Tarantino lét ekki beygja sig. Richard Gere er á svört- um lista og bannfærður í Kína – stuðningur við sjálfstæðisbaráttu Tíbeta er ein stærsta synd sem nokk- ur listamaður getur drýgt í augum ráðamanna í Peking. Áhrif Peking-stjórnarinnar á kvik- myndagerð í Hollywood eru ekki einkamál forstjóra kvikmyndavera, leikstjóra, leikara og handritshöf- unda. Með sköpun sinni hefur kvik- myndaborgin haft gríðarleg áhrif á menningu og samfélög um allan heim. Í þeim efnum þekkir listin eng- in landamæri. Hollywood nær til milljarða manna sem standa í þeirri trú að í draumaborginni ráði frjáls tjáning för. Hafi draumaborgin Hollywood einhvern tíma átt sál, þá er hún búin að framselja hana til kín- verskra stjórnvalda í skiptum fyrir aðgang að stærsta markaði heims. Og með þessa staðreynd í huga verðum við sem elskum kvikmyndir að fara í bíó. Eftir Óla Björn Kárason » Sjálfsritskoðun kvik- myndaiðnaðarins – flóttinn frá frjálsri tján- ingu – hefur að mestu farið fram í kyrrþey. Mikið er í húfi fyrir Hollywood. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Framleitt í Hollywood – ritskoðað í Peking

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.