Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
k
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
! "#
$ %%%&'()*+,&-.
AÐALFUNDUR 2020
Byggingasamvinnufélags
samtaka aldraðra bsvf
Verður haldinn þann 24. september kl. 16:00, á Grand
Hótel, Sigtúni 38 (í fundarsal nefndur Gullteigur) í
Reykjavík.
Á aðalfundi skal leggja fram ársreikning og skýrslu
skoðunarmanns/manna ásamt skýrslu stjórnar um hag
félagsins:
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Staðfesting ársreiknings.
3. Kjör stjórnar og skoðunarmanna.
4. Ákvörðun félagsgjalda fyrir næsta ár.
5. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund samkvæmt
lögum og félagssamþykktum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.
Stjórnin.
Veiði
Vegna flutninga
og skipulagsbreytinga
Seljum neoprene mittisvöðlur og skó til
strandveiða. Einning öndunarvöðlur og skó.
Flugustangir og fluguhjól, strandveiðistangir,
og hjól. Ásamt úrvali af spúnum til lax-,
silungsveiða og strandveiða, ásamt ýmsu
veiðidóti til sportveiða.
Opið verður á miðviku- og fimmtudag frá kl.
13.00-17.00 og föstudag frá kl. 13.00-16.00.
I. Guðmundsson ehf.,
Nethyl 1,
110 Reykjavík, sími 533 1999
Félagsstarf eldri borgara
SAflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30, nóg pláss. Stólaleik-
fimi í Hreyfisal kl. 9.30. Gönguferð um hverfið kl. 10.30. Söngstund
við píanóið, með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með
Hrafni kl. 15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóla-
dans með Þóreyju kl. 10.30. Spænskukennsla kl. 14. Bónus-bíllinn, fer
frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13-14. Spænsku-
kennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 411 2600.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Námskeið í
tálgun kl. 9.15-11.45. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50.
Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl.
8.50-11. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrifstofunni kl.
8.50-16. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgað með
Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð
aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með-
læti með síðdegiskaffi er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur frá
Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jóns-
húsi kl. 11. Leir í Smiðju kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og 17.15.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12
útskurður með leiðbeinanda (Grænagróf), kl. 11 leikfimi Helgu
(Háholt), kl. 12.30-15 Döff, félag heyrnalausra (Lágholt). kl. 13-16
útskurður / pappamódel með leiðbeinanda.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 postulínsmálun, heitt á könnunni
kl. 9-16.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun og silfursmíði kl. 13. Línu-
dans kl. 14 og línudans fyrir byrjendur kl. 15 ef næg þátttaka næst.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn
og allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Dansleikfimi kl. 13-
13.45.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16.
Spilað kl. 13.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Ganga kl. 10 í dag frá
Borgum og kaffispjall á eftir. Allir velkomnir í keilu í Egilshöll kl. 10 í
dag. Korpúlfabingó kl. 13 í dag í Borgum allir velkomnir og við virð-
um samfélagssáttmálan um sóttvarnir.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur kl. 9-12 í
handavinnustofu. Klukkan 10.30 verður hópþjálfun með sjúkraþjálfara
í setustofu 2. hæðar. Bókbandið verður á sínum stað í smiðju eftir
hádegi kl. 13-17 og Handaband kl. 13-15.30 í handavinnustofu. Þá
verður einnig haldin söngstund kl. 13.30-14.30 í matsal. Við vekjum
athygli á að frá með morgundegi er hádegisverður með fyrri hætti kl.
11.30-12.30.
Seltjarnarnes Bónusbíllinn fer frá Skólabraut kl. 9.45. Gler og
bræðsla kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10.
Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timbur-
menn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi á Skóla-
braut kl. 13. Af gefnu tilefni: Á meðan núgildandi sóttvarnarreglur
vara verður ekki boðið upp á félagsvist á vegum tómstundastarfsins.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Nú
þú það sem
þú eia að FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk-
efni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Góður vinur Odd-
geir Ísaksson var til
moldar borinn á
laugardag 87 ára að
aldri.
Það var falleg athöfn og fjöl-
menni eins og við var að búast.
Grenvíkingar voru að kveðja einn
af sínum bestu sonum.
Um áratugi hafði hann verið
einn af burðarásum atvinnulífsins
á staðnum, setið í hreppsnefnd og
látið að sér kveða í hvers konar
umbóta- og félagsstarfi.
Ég hef þráfaldlega verið að
hugsa til Oddgeirs þessa síðustu
daga og það er bjart yfir minn-
ingu hans. Hann var hlýr og
traustur.
Vinátta okkar var náin og það
var mér styrkur í mínu pólitíska
starfi að geta sótt ráð til hans og
farið yfir málin. Það er nauðsyn-
legt hverjum stjórnmálamanni að
eiga þvílíka vini að sem eru hrein-
skilnir og vita hvað þeir eru að
segja.
Við Oddgeir áttum margar
góðar stundir saman. Einu sinni
fórum við á sjóstöng nokkrir og
var Jakob Þorsteinsson á Frosta
með í för og gistum í Þorgeirs-
firði. Það var í senn fróðlegt og
Oddgeir Ísaksson
✝ Oddgeir Ís-aksson fæddist
16. júlí 1933. Hann
lést 30. ágúst 2020.
Útför Oddgeirs
fór fram 12. sept-
ember 2020.
skemmtilegt að
fylgjast með þeim
Oddgeiri og hlusta á
orðræður þeirra og
athugasemdir. Þeir
þekktu sjólagið eins
og fingurna og vissu
hvar skyldi renna.
Þegar við komum út
fyrir Gjögrana sagði
annar:
„Eigum við ekki
að ná í lúðu?“ „Jú,“
svaraði hinn. „Við skulum fara á
Botnsblettinn!“ Mið voru tekin af
kennileitum í landi og áður varði
vorum við þangað komnir. Þeir
sögðu Björgólfi Jóhannssyni að
renna. Og viti menn: Það beit lúða
á krókinn! Atvik eins og þetta fell-
ur manni ekki úr minni.
Þegar ég kynntist Oddgeiri átti
hann Sjöfn og urðu þær fjórar
talsins.
Hann var skipstjóri í 47 ár,
hann var góður aflamaður, hélt
vel utan um áhafnir sínar og fór
vel með skip og afla.
Og má raunar segja, þegar
horft er yfir lífshlaup hans, að
hann hafi verið ræktunarmaður í
lífi og starfi.
Þegar ég skrifa þessar línur
verður mér hugsað til Margrétar.
Söknuðurinn er sár. Oddgeir var
mikill fjölskyldumaður og farsæll
í sínu einkalífi.
Ekki veit ég hvort það er hugg-
un harmi gegn en sá sem hefur
misst mikið hefur líka átt mikið.
Halldór Blöndal.
Þegar eldri dóttir
mín fæddist árið
1979 þá mættu móð-
ursystur mínar,
Inga og Vigga, á fæðingardeildina
til að heilsa upp á nýbakaða móður
og skoða barnið. Þær Dönustaða-
systur létu það ekki trufla sig hver
var mamma eða amma hvers af
sínum stofni. Þær voru og eru
mæður barna sinna, en líka mæð-
ur barna systranna. Allir njóta
góðs af. Líka móðirin unga sem
aldrei hafði séð þær fyrr og þáði af
þeim burðarrúm að gjöf.
Nú var hún Inga, Ingibjörg Jó-
hanna Skúladóttir, að deyja.
Hvíldin er henni góð því erfið
veikindi hafa hrjáð hana undan-
farin ár. Inga var ákaflega vönduð
og skemmtileg kona. Mig langar
að minnast hennar nokkrum orð-
um.
Þannig háttaði að æskuheimili
mitt í Kópavogi og heimili Ingu og
hennar manns, Steina (Þorsteins
Guðbrandssonar frá Broddanesi),
voru skammt hvort frá öðru. Frá
fimm ára aldri og fram yfir tvítugt
var ég heimagangur hjá Ingu.
Minningar hrannast upp og engin
leið að henda reiður á þeim nema
með því að segja að allt var þar
með Ingu blæ: Afslappað þótt
stundum gengi mikið á, alltaf var
hægt að finna eitthvað fyndið að
segja frá, allt gekk sinn vanagang
en samt var alltaf mikið að gerast.
Eitthvað sem gott var að ræða of-
an í kjölinn við eldhúsborðið á Álf-
hólsveginum.
Inga var þriðja yngst barna
þeirra hjóna Skúla Jóhannessonar
og Lilju Kristjánsdóttur frá
Dönustöðum í Laxárdal í Dölum.
Yngri eru Guðrún Lilja sem dó
2016 og Iða Brá sem býr í Stokk-
hólmi. Eldri systkini eru Sólrún,
Sigríður, dáin 1999, Daði, dáinn
Ingibjörg Jóhanna
Skúladóttir
✝ Ingibjörg Jó-hanna fæddist
16. febrúar 1936.
Hún lést 23. ágúst
2020 á
Útför Ingibjarg-
ar fór fram 7. sept-
ember 2020.
1955 og Viktoría sem
er elst og lifir enn,
ern í hárri elli.
Eins og gengur
með miðjubarn, ekki
síst í neðri hluta
barnaskara, var
Inga góður sátta-
miðlari. Hún þótti
skapgott og þægi-
legt barn en fremur
matvönd. Snemma
bar á hæfileika
hennar til að segja frá og sjá það
skoplega í umhverfinu. Ekkert
hafði gerst í ferðinni eða á deg-
inum fyrr en Inga fór að segja frá.
Þá var allt í einu allt orðið drep-
fyndið. Einstakt skopskyn var
stór hluti af hennar karakter alla
tíð.
Inga fór í húsmæðraskólann og
hitti síðan Þorstein eftirlifandi
eiginmann sinn og giftist honum
1961. Þau eignuðust fimm börn og
afkomendur eru í heild orðnir
tuttugu. Íslensk fjölskylda upp-
runnin af Ströndum og Dölum.
Mannvænlegt fólk. Ungu hjónin
keyptu lóð í Kópavoginum og
byggðu þar sitt óðal við Álfhóls-
veg. Önnur kynslóð frumbyggja í
bænum. Þar bjuggu þau síðan alla
tíð. Steini starfaði sem rafvirki og
síðar rafverktaki og Inga sem
verkakona, m.a. í Fiskvinnslunni
Barðanum og hjá niðursuðuverk-
smiðjunni ORA auk þess að reka
stórt heimili. Inga var mjög dug-
leg kona eins og hún átti kyn til.
Að eiga að minnast manneskju
sem hefur fylgt manni allt lífið og
samskiptin verið mikil á löngum
köflum er erfitt. Það slær mann
auðvitað að Dönustaðasystrum
fækkar. Sigga er farin, Gunna og
nú Inga. Það er eftirsjá að þessum
kviku, greindu, heiðarlegu og dug-
legu konum.
Ingu vil ég þakka fyrir frábæra
viðkynningu, góðan og ómældan
mat, ævinlega hlýju í samskiptum
og fyrir mikla þolinmæði. Takk
fyrir mig.
Ég votta Steina, börnum og af-
komendum mína innilegustu sam-
úð.
Böðvar Bjarki Pétursson.