Morgunblaðið - 16.09.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 16.09.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 80 ára Ómar er þjóð- þekktur af störfum sín- um sem skemmtikraft- ur, leikari, fréttamaður, flugmaður og rithöf- undur svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Maki: Helga Jóhanns- dóttir, f. 1942. Börn: Jónína, kennari, f. 1963, Ragnar, byggingafræðingur, f. 1963, Þorfinnur, fjölmiðlafræðingur og framkvæmda- stjóri, f. 1965, Örn, tónlistarmaður, f. 1967, Lára, fréttamaður, f. 1971, Iðunn, kennari, f. 1972, og Alma, fjölmiðlafræð- ingur, f. 1974. Foreldrar: Jónína Rannveig Þorfinns- dóttir húsfreyja, f. 1921, d. 1992, og Ragnar Edvardsson bakarameistari, f. 1922, d. 2002. Ómar Ragnarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú veltir fyrir þér hvað þú þarft mikla peninga eða aðstoð til að lifa með þeim hætti sem þú telur við hæfi. Allt sem þú gerir gengur vel og hratt fyrir sig. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er óvitlaust að hafa aðra áætlun í bakhöndinni ef sú fyrri skyldi bregðast. Allt sem þú byrjar á í dag reynist ábata- samt í framtíðinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Forvitni þín um mannlegt eðli heltekur þig. Stuttar ferðir, heimsóknir, samningar, kaup og sala munu tryggja að þú hafir nóg að gera. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt auðvelt með að hlusta á aðra í dag. Reyndu að taka styttri tíma fyr- ir í einu og starfa þá af fullum krafti við að leysa verkefni dagsins. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Foreldrar verða að vera þolinmóðir við börnin sín í dag. Engum sem reynir að slá þig út af laginu verður kápan úr því klæðinu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Lífið er eins og dans á rósum og þér finnst þú svífa um í draumi. Þú færð óvænt símtal frá gömlum vini sem færir þér góðar fréttir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt hlutirnir freisti skaltu skoða það vandlega hvort þú hafir einhverja þörf fyrir þá og ekki kaupa nema þörfin sé brýn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú fer að sjá fyrir endann á því álagi sem þú hefur búið við og þá máttu búast við umbun erfiðis þíns. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú gætir rekist á gamla kunn- ingja og skólafélaga og það mun hugs- anlega opna þér ný tækifæri. Einhver gerir þér greiða sem þú kannt vel að meta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er undir sjálfum þér komið hvort samskipti þín eru góð eða slæm við annað fólk. Skipuleggðu veislu, frí eða hverja þá skemmtun sem þú kýst. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert í fínu formi þessa dag- ana og átt einkar auðvelt með allt sam- starf við vinnufélaga þína. Mundu að hlát- urinn lengir lífið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hafðu góðar gætur á peningunum þínum næstu vikurnar og fylgstu með því sem þú eyðir í gjafir og þess háttar. Gættu þess að huga að heilsunni. vinna fulla vinnu og rúmlega það heldur er hann einnig virkur í fé- lagsmálum og hefur beitt sér víða. Hann sat í ráðgjafanefndum EES og EFTA 2005-2007, var í stjórn Kan- adísk-íslenska viðskiptaráðsins 2011-2017, í stjórn Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna 2015-2017, var formaður stýrihóps mennta- og menningarmálaráðherra um mál- tækni fyrir íslensku 2016-2017 og að vera í 23 ár í flokksstarfinu sem er langt því ég er ekki gamall maður. Það sem hefur knúið mig mest áfram bæði þar og í vinnunni líka er áhuginn á því að gera lífið betra. Það hlýtur að vera eitthvað sem við öll erum sammála um en okkur greinir kannski á um leiðirnar að því mark- miði. Það er auðvitað í hnotskurn það sem stjórnmálin snúast um.“ Davíð lætur sér ekki nægja að D avíð Þorláksson fædd- ist 16. september 1980 á Akureyri þar sem hann ólst upp. Davíð dvaldi oft í sveit hjá afa sínum og ömmu og síðar föð- urbróður og frænku á Hrauni í Ölf- usi. Hann gekk í Barnaskóla Akur- eyrar, Gagnfræðaskólann á Akureyri og varð stúdent af nátt- úrufræðibraut Menntaskólans á Ak- ureyri. „Ég var svo heppinn að eiga mjög góða æsku og er þakklátur fyr- ir það. Það sem stendur upp úr í minningunni er að vera í sveitinni á Hrauni í Ölfusi. Skemmtilegast var að fara með frændsystkinunum á hestbaki þar niður í fjöru og há- punkturinn ef maður sá sel í fjör- unni. Eins var það ævintýri líkast að fara á bátum út í skerin að tína söl.“ Eftir menntaskólann fluttist Davíð til Reykjavíkur, í vestur- bæinn, og hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og fékk lögmannsréttindi árið 2009. Ekki lét Davíð þar staðar numið því MBA-gráða frá London Business School fylgdi í kjölfarið árið 2016 og hann varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 2017. Davíð hefur verið mjög virkur í at- vinnulífinu og var lögfræðingur Við- skiptaráðs 2005-2007 og samhliða því verkefnastjóri við lagadeild HR 2006-2007. Síðan var hann yfirlög- fræðingur Askar Capital 2007-2009 og yfirlögfræðingur Icelandair Gro- up 2009-2017 og samhliða því fram- kvæmdastjóri fasteignafélagsins Lindarvatns 2015-2017. Frá árinu 2017 hefur hann verið forstöðumað- ur hjá Samtökum atvinnulífsins. Davíð var ungur þegar hann ákvað að leggja sitt af mörkum til þess að hafa áhrif á samfélagið. Hann gekk í Sjálfstæðisflokkinn 17 ára og hefur verið virkur þar síðan. Setið í stjórn ungra sjálfstæðis- manna á Akureyri, stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna og verið formaður þess. Einnig hefur hann setið í miðstjórn og stjórn flokks- ráðs, verið formaður Félags sjálf- stæðismanna í Vesturbæ og Miðbæ og formaður allsherjar- og mennta- málanefndar flokksins. „Ég er búinn var pistlahöfundur í Viðskipta- blaðinu frá 2015-2018. Er nú formað- ur stjórnar VIRK starfsendurhæf- ingarsjóðs og einnig formaður stjórnar Ungra frumkvöðla og hefur verið pistlahöfundur í Fréttablaðinu frá 2018. „Þegar maður hefur brennandi áhuga á þjóðfélagsmálum er maður oft kominn í mörg störf, og þá er gott að hafa gaman af vinnunni,“ segir Davíð. En lífið er ekki bara vinna og Dav- íð hefur mjög gaman af ferðalögum og hefur ferðast víða um Asíu, Norð- ur- og Suður-Ameríku og Evrópu. „Það skemmtilegasta sem ég geri er að ferðast. Þótt það sé gaman að ferðast innanlands er mikilvægt að víkka sjóndeildarhringinn og ferðast út fyrir landsteinana líka. Það er ekki laust við að maður finni fyrir ákveðinni innilokunarkennd þegar það er ekki hægt um þessar mundir. Eftirminnilegasta ferðin er til Kól- umbíu í fyrra þar sem ég fór m.a. til Guatapé, gekk upp á El Peñón og sigldi um vatnið yfir gamla bæinn sem nú er kominn undir vatn.“ Eins og við má búast hefur hann mikinn áhuga á öllu sem viðkemur Davíð Þorláksson, forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins - 40 ára Ljósmyndir/úr einkasafni Á ferðalagi Með kærastanum, Daniel Barrios Castilla, við hina tilkomumiklu Penahöll í Portúgal í sumar. Áhuginn á því að gera lífið betra Fjölskyldan Með móður, systkinum, mágkonu og bróðursyni í Kjarnaskógi í sumar. F.v. Sólon Elfar Arnarsson, Telma Dögg Stefánsdóttir, Gauti Elfar Arnarsson, María Grenó, Davíð Þorláksson og Nína María Arnarsdóttir. 60 ára Bergsteinn fæddist á Sjúkrahúsi Selfoss og býr enn á Selfossi. Hann er forstjóri fyrirtækisins Sets ehf. sem selur verkfæri og lagna- vörur. Fyrir utan starfið eru helstu áhugamálin tónlist og stangveiði. Maki: Hafdís Kristjánsdóttir, f. 1959, starfar á Héraðsbókasafninu á Sel- fossi. Börn: Sigríður Edda, f. 1980, Brynjar, f. 1985, og Kristján, f. 1992. Foreldrar: Sigríður Bergsteinsdóttir, f. 1941, fv. röntgentæknir og Einar Elías- son, f. 1935, byggingameistari og stofnandi Sets ehf. Þau búa á Sel- fossi. Bergsteinn Einarsson Til hamingju með daginn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.