Morgunblaðið - 16.09.2020, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
Sverrir Ingi Ingason, landsliðs-
maður Íslands í knattspyrnu og
leikmaður gríska knattspynu-
félagsins PAOK, var í byrjunarliði
gríska liðsins þegar það fékk Ben-
fica í heimsókn í 3. umferð und-
ankeppni Meistaradeildarinnar í
Grikklandi í gær. Leiknum lauk
með 2:1-sigri PAOK en Sverrir Ingi
lék allan leikinn í vörn gríska liðs-
ins. PAOK mætir Krasnodar í um-
spili um laust sæti í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar en leikirnir
fara fram dagana 22.-23. september
og 29.-30. september næstkomandi.
Sverrir nálgast
Meistaradeildina
Morgunblaðið/Eggert
Sending Sverrir Ingi í landsleik
gegn Englandi á dögunum.
Haukur Páll Sigurðsson og Krist-
inn Freyr Sigurðsson, lykilmenn
Vals í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu, verða báðir í leikbanni
vegna gulra spjalda þegar liðið
mætir Stjörnunni næsta sunnu-
dagskvöld. Þetta kom fram á viku-
legum fundi aga- og úrskurð-
arnefndar KSÍ í gær. Þar sem bönn
vegna gulra spjalda taka gildi á há-
degi á föstudegi geta þeir spilað
gegn ÍA á fimmtudaginn. Valur er í
efsta sæti deildarinnar með 31 stig
en Stjarnan er í öðru sætinu með 24
stig og á leik til góða á Valsmenn.
Í leikbanni gegn
Stjörnunni
mbl.is/Þorsteinn
Fyrirliði Haukur Páll Sigurðsson er
lykilmaður í liði Valsmanna.
16. UMFERÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Aron Bjarnason átti góðan leik
fyrir topplið Vals sem hafði betur
gegn Víkingi Reykjavík í 16. um-
ferð Pepsi Max-deildar karla í fót-
bolta á sunnudaginn var, 2:0. Aron
skoraði fyrra mark Vals og fékk M
fyrir frammistöðu sína í leiknum.
Hefur Aron fengið 8 M í sumar, en
aðeins Patrick Pedersen hefur
fengið fleiri M í Valsliðinu eða níu.
Komu bæði mörk Valsmanna í
seinni hálfleik en það voru gest-
irnir úr Fossvogi sem voru spræk-
ari í fyrri hálfleik. „Þetta var nokk-
uð jafnt í fyrri hálfleik en þeir þó
aðeins með yfirhöndina, þótt þeir
hafi ekki skapað sér mikið af fær-
um. Við hefðum getað spilað betur
og haldið betur í boltann, en í
seinni hálfleik keyrðum við vel á þá
frá byrjun, fengum gott mark, og
eftir það var þetta aldrei spurn-
ing,“ sagði Aron í samtali við
Morgunblaðið.
Getum alltaf skorað mörk
Valsmenn hafa unnið níu leiki í
röð í öllum keppnum. Hefur liðið
oft spilað betur en t.d. gegn Vík-
ingi, en það sýnir styrk liðsins að
það getur unnið leiki án þess að
vera upp á sitt besta. „Það hefur
verið þannig í síðustu leikjum að
við örvæntum ekki þótt við séum
ekki að spila okkar besta leik. Við
höfum verið að verjast vel og við
vitum að við getum alltaf skorað
mörk, þótt við séum ekki að spila
vel. Við erum með menn sem hafa
reynslu af því að vera í toppbaráttu
og vita hvað til þarf.“
Aron segir Valsmenn ekki hugsa
of langt fram í tímann, enda nóg
eftir af Íslandsmótinu, en hann
viðurkennir að leikmönnum liðsins
líði eins og þeir geti ekki tapað.
„Það er klárlega svolítið þannig en
á sama tíma er mikil áhersla lögð á
að taka bara einn leik í einu og það
þýðir ekki að dvelja of lengi yfir
hverjum sigurleik því við verðum
að vera áfram á tánum og halda
áfram að vinna.“
Aron hefur spilað vel í sumar,
skorað þrjú mörk og lagt upp
nokkur til viðbótar. Hann er sjálfur
sáttur við eigin spilamennsku á
tímabilinu til þessa. „Frammistaða
mín hefur verið fín og á meðan liðið
er að vinna getur maður ekki ein-
blínt of mikið á eigin frammistöðu.
Ég hef verið að leggja upp og
kannski fer minna fyrir því en
frammistaðan hefur verið fín.“
Vann síðast bikar 18 ára
Valsmenn eru í afar góðri stöðu í
baráttunni um Íslandsmeistaratit-
ilinn en Aron hefur ekki fagnað
titli síðan hann varð bikarmeistari
með Fram árið 2013, þá aðeins 18
ára gamall og nýkominn til fé-
lagsins frá Þrótti Reykjavík. Ar-
on lék aðeins einn leik með Fram
í bikarkeppninni, sjálfan úrslita-
leikinn gegn Stjörnunni sem
Fram vann í vítakeppni eftir 3:3-
jafntefli.
„Ég var bara ungur pjakkur og
nýkominn til Fram. Það eru mjög
góðar minningar og ég kom inn á
í úrslitaleiknum. Ég bjóst ekki við
því þegar tímabilið byrjaði að ég
væri að fara að vinna bikarmeist-
aratitil. Það var frábær dagur og
úrslitaleikurinn var geggjaður og
endaði í vító þar sem Ögmundur
Kristinsson var hetjan,“ rifjar Ar-
on upp. „Það er kominn tími á
það hjá mér að vinna eitthvað aft-
ur,“ bætti hann við.
Ekkert heyrt í Ungverjunum
Aron er að láni hjá Val frá ung-
verska félaginu Újpest, en tæki-
færin hjá Újpest voru af skornum
skammti síðari hluta síðasta tíma-
bils. Aron segist ekkert hafa
heyrt í forráðamönnum Újpest og
staða hans hjá félaginu því í
óvissu.
„Staðan þar er óljós. Ég hef
ekki heyrt neitt frá þeim varðandi
framhaldið. Það verður að fá að
koma í ljóst. Ég er einbeittur á
þetta verkefni með Val og svo
tökum við stöðuna eftir tímabilið.
Ég hef verið í einhverju sambandi
við leikmenn í liðinu en ég hef
ekki verið í neinu sambandi við
stjórnina úti,“ sagði Aron.
Var bara ungur pjakkur
og nýkominn til Fram
Aron spilar vel með toppliði Vals Vill vinna fyrsta bikarinn í sjö ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlíðarendi Aron Bjarnason er lykilmaður hjá toppliði Vals en hann er að láni frá Újpest.
Fylkismaðurinn Valdimar Þór Ingimundarson kveður Pepsi Max-deild
karla í efsta sætinu í M-einkunnagjöf Morgunblaðsins. Hann lék kveðjuleik
sinn gegn KA á sunnudaginn og er eftir hann með samtals 13 M í 14 leikj-
um með Fylki. Hann fer nú til Strømsgodset í Noregi.
FH-ingurinn Steven Lennon og Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðar-
son koma næstir á eftir Valdimari með 12 M hvor. Atli Sigurjónsson úr KR
og Þórir Jóhann Helgason úr FH eru næstir með 11 M og síðan Kennie
Chopart úr KR og Ágúst Eðvald Hlynsson úr Víkingi með 10 M. Með 9 eru
Thomas Mikkelsen úr Breiðabliki, Patrick Pedersen úr Val, Valgeir Val-
geirsson úr HK og Tryggvi Hrafn Haraldsson úr ÍA.
16. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-3-3
Kristijan Jajalo
KA
Guðmann
Þórisson
FH
Rasmus
Christiansen
Val
Brynjar Ingi
Bjarnason
KA
Daníel Laxdal
Stjörnunni
Valgeir Valgeirsson
HK Ásgeir Marteinsson
HK
Aron Bjarnason
Val
Kristófer Orri
Pétursson
Gróttu
Guðjón Baldvinsson
Stjörnunni
Steven Lennon
FH
2
2 2
2 2
3 4
Yfirgefur deildina á toppnum
Lengjudeild karla
ÍBV – Leiknir F........................................ 0:0
Vestri – Magni .......................................... 2:1
Staðan:
Fram 15 9 5 1 34:20 32
Keflavík 14 9 3 2 44:21 30
Leiknir R. 15 9 2 4 35:20 29
ÍBV 16 6 8 2 26:19 26
Þór 15 7 2 6 29:27 23
Vestri 16 6 5 5 22:22 23
Grindavík 14 5 7 2 29:25 22
Víkingur Ó. 15 4 4 7 21:34 16
Afturelding 15 4 3 8 30:26 15
Þróttur R. 15 3 3 9 12:28 12
Leiknir F. 16 3 3 10 16:34 12
Magni 16 2 3 11 17:39 9
3. deild karla
Sindri – Höttur/Huginn ........................... 1:0
Ægir – Reynir S. ...................................... 2:3
Álftanes – Vængir Júpíters......................1:0
Tindastóll – Einherji ................................ 5:1
Elliði – KFG.............................................. 0:1
KV – Augnablik ........................................ 4:1
Staðan:
KV 16 12 1 3 47:22 37
Reynir S. 16 11 2 3 49:29 35
KFG 16 7 4 5 31:27 25
Augnablik 16 7 4 5 34:31 25
Tindastóll 16 6 6 4 31:31 24
Sindri 16 6 4 6 29:37 22
Elliði 16 6 2 8 28:31 20
Vængir Júpiters 16 5 3 8 23:29 18
Ægir 16 4 5 7 25:31 17
Einherji 16 5 2 9 27:43 17
Höttur/Huginn 16 4 3 9 24:28 15
Álftanes 16 3 4 9 25:34 13
Lengjudeild kvenna
Völsungur – ÍA ......................................... 1:2
Haukar – Afturelding .............................. 3:2
Staðan:
Tindastóll 13 11 1 1 37:5 34
Keflavík 13 9 3 1 33:12 30
Haukar 13 8 2 3 23:14 26
Grótta 13 5 4 4 16:18 19
Afturelding 13 5 3 5 17:17 18
Víkingur R. 13 4 3 6 19:23 15
Augnablik 12 4 3 5 17:26 15
ÍA 13 2 6 5 19:22 12
Fjölnir 13 2 1 10 7:27 7
Völsungur 12 1 0 11 7:31 3
2. deild kvenna
Grindavík – HK ........................................ 3:0
Staðan:
HK 13 10 0 3 42:10 30
Grindavík 12 8 2 2 30:10 26
Fja/Hött/Leikn. 12 7 2 3 29:21 23
Hamrarnir 13 5 3 5 18:20 18
Álftanes 10 5 1 4 19:25 16
ÍR 13 2 4 7 25:34 10
Sindri 12 3 1 8 16:29 10
Hamar 11 3 1 7 15:29 10
Fram 12 2 4 6 22:38 10
Meistaradeild Evrópu
3. umferð:
Dynamo Kiev – AZ Alkmaar.................. 2:0
Albert Guðmundsson lék fyrstu 58. mín-
úturnar með AZ Alkmaar.
PAOK – Benfica....................................... 2:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Gent – Rapid Vín ...................................... 2:1
England
Deildabikarinn:
Millwall – Cheltenham............................ 3:1
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik-
mannahóp Millwall.
Slóvakía
Rovinka – Senica ..................................... 3:2
Nói Snæhólm Ólafsson leikur með Se-
nica.
KNATTSPYRNA
Lengjudeild karla:
Nettóvöllurinn: Keflavík – Fram ........16:30
Grindavík: Grindavík – Leiknir R. ......16:30
Þórsvöllur: Þór – Víkingur Ó. ..............16:30
Eimskipsv.: Þróttur – Afturelding ......19:15
2. deild kvenna:
Bessastaðavöllur: Álftanes – Hamar........17
Í KVÖLD!
Kamilé Berenyté er gengin til liðs við
KR og mun hún leika með liðinu í úr-
valsdeild kvenna í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, á komandi keppn-
istímabili en þetta kom fram á sam-
félagsmiðlum félagsins í gær.
Kamilé, sem er 23 ára gömul, er
185 sentimetra framherji frá Lithá-
en. Hún spilaði síðast með Siauliu Si-
auliai í heimalandi sínu, en liðið lék í
efstu deild sem og í Douglas Baltic
League, þar sem lið frá Eistlandi,
Lettlandi og Litháen leika.
Kamilé á að baki landsleiki með
U18 ára og U20 ára landsliði Litháen.
Lithái til liðs
við KR-inga