Morgunblaðið - 16.09.2020, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Allt á þetta upphaf sitt í því að ég
var að væla í Ólafi Darra um að mig
langaði til að takast á við stórt og
krefjandi hlutverk í leikriti sem
væri ekki ástarsaga. Hann greip
þetta á lofti og sagði mér að það
væri eitt slíkt verk sem hann hefði
alltaf langað til að leikstýra eða
leika í. Hann stakk því upp á að við
læsum Oleanna. Þetta var fyrir
löngu en þegar við vorum farin að
velta fyrir okkur hvort og hvenær
við gætum mögulega sett verkið
upp sagði ég Hafliða Arngrímssyni,
dramatúrg í Borgarleikhúsinu, frá
hugmyndinni og þá rúllaði þetta af
stað,“ segir
Vala Kristín Ei-
ríksdóttir leik-
kona, en hún
leikur annað
aðalhlutverkið í
leikritinu
Oleanna eftir
bandaríska leik-
skáldið David Mamet, sem frum-
sýnt verður í Borgarleikhúsinu
næstkomandi föstudag, 18. sept-
ember.
„Þessi uppsetning er í raun hug-
arfóstur Ólafs Darra og hann lék
hitt aðalhlutverkið á móti mér í æf-
ingaferlinu þar sem Hilmir Snær
leikstýrði okkur. Þegar covid skall
á fór allt í biðstöðu en þegar leik-
húsið var opnað aftur var Óli kom-
inn með aðrar skuldbindingar.
Hilmir Snær steig þá inn í hlutverk
hans. Það hefði ekki verið hægt að
fá neinn annan, því það tekur tíma
að koma sér inn í verkið,“ segir
Vala og bætir við að hún hafi upp-
lifað ákveðna sorg við að sjá á eftir
Ólafi Darra.
„Við vorum í raun búin að vera
eins og litlir spenntir krakkar yfir
þessu leikriti, þetta er óskastykkið
okkar beggja. Ég tek samt fram að
mér er engin vorkunn, Hilmir Snær
er frábær mótleikari.“
Sekt og sakleysi, og valdið
Í tvíleiknum Oleanna leikur Vala
tvítuga stúlku sem er háskólanemi
og mætir á skrifstofu hjá kennara
sínum til að leita hjálpar vegna
námsins. Kennarinn er tuttugu ár-
um eldri en hún, virtur og nýtur
velgengni og á von á stöðuhækkun.
Samskiptin á skrifstofunni þróast
smám saman í ógnvænlega átt og
valdajafnvægið snýst við.
„Þetta verk segir frá samskiptum
og átökum milli kennara og nem-
anda, milli karls og konu sem eru
ekki af sömu kynslóð, koma ekki úr
sömu stétt og hafa ekki sömu valda-
stöðu. Forsendur þeirra í lífinu eru
mjög ólíkar. Þetta er snilldarverk
sem talar inn í stóra samhengið,
höfundurinn stillir upp tveimur
manneskjum sam eiga ólíkra hags-
muna að gæta og hafa mjög ólíkan
bakgrunn en eru að reyna að tala
saman og skilja hvort annað. Hvort
um sig reynir að fá skilning hins.
Verkið fjallar um hvernig við hlust-
um á orð annarra út frá okkar eigin
forsendum, hvað við leyfum okkar
að segja út frá
því hver við er-
um og hver
staða okkar er.
Þetta verk
fjallar líka um
sekt og sakleysi
og skilnings-
leysi, í raun um
tvo upplifunarheima af sömu að-
stæðum. Höfundurinn sagði sjálfur
um þetta verk í einhverju viðtali að
ef leikhúsgestur gengi út af verkinu
og héldi með annarri hvorri mann-
eskjunni í verkinu, þá hefði viðkom-
andi rangt fyrir sér. Við höfum
reynt að hafa það sem okkar leiðar-
ljós í uppsetningunni. Við viljum
heiðra þetta viðhorf höfundar, af
því tvær hliðar eru á sama pen-
ingnum og allir hafa sitthvað til síns
máls. Ég veit vel að ýmis mál eru
úti í samfélaginu þar sem sekt fer
ekki á milli mála, en í þessu tiltekna
verki reynir höfundur að feta þessa
flóknu línu þar sem erfitt er að
segja hvað er rétt og hvað er rangt.
Persónurnar í verkinu eru breyskar
manneskjur sem eru að reyna að
vernda sig. Verkið fjallar líka um
vald og valdleysi, og hvernig það
getur snúist við.“
Gunnar settist í stól Hilmis
Aðeins tveimur vikum fyrir frum-
sýningu tók Hilmir Snær við hlut-
verki Ólafs Darra og fór þá úr stóli
leikstjóra. Gunnar Gunnsteinsson
tók við leikstjórninni, en hver er
nálgun leikstjóranna, sem eru þá í
raun tveir?
„Við þurftum að æfa þetta allt
upp á nýtt, en við reyndum að hafa
að leiðarljósi það sem við vorum bú-
in að finna að virkaði í leikstjórn-
inni. Á einhverjum tímapunkti vor-
um við hætt að reyna að endurtaka
eitthvað sem var og fórum inn í
eitthvað sem er. Gunnar steig inn í
þetta á okkar forsendum, hann er
ekki að reyna að setja verkið upp
með nýjum hætti, hann reynir að
elta það sem við lögðum upp með
og hann minnir okkur á það sem við
ætluðum okkur að gera.“
Brá þegar las verkið fyrst
Leikritið Oleanna var sett upp á
Íslandi fyrir 25 árum en þá fóru
Elva Ósk Ólafsdóttir og Jóhann
Sigurðarson með hlutverkin. Þegar
Vala er spurð hvernig verkið hafi
elst og hvort það hafi staðist tímans
tönn og eigi erindi í dag segir hún
það heldur betur vera svo.
„Mér brá í raun rosalega þegar
ég las þetta verk fyrst, því það talar
beint inn í samtímann, það er eins
og höfundurinn hafi vitað hvað
myndi gerast eftir tuttugu og fimm
ár. Þetta verk talar beint inn í um-
ræður og byltingar síðustu ára. Ég
held að verkið hristi meira upp í
okkur núna en þegar það kom fyrst
fram fyrir tveimur og hálfum ára-
tug, og þá er ég ekki aðeins að tala
um hina stóru Metoo-byltingu á
heimsvísu, heldur líka allar þær
réttindabaráttubylgjur sem hafa átt
sér stað nýlega.“
Hið hárfína í samskiptum
Þegar Vala er spurð hvort verkið
hafi breytt viðhorfum hennar eða
vakið hana til umhugsunar játar
hún því.
„Heldur betur, það hefur varpað
ljósi á hið smáa og hárfína í mann-
legum samskiptum, sem við getum
ekki sett fingur á en lætur okkur
samt líða á einhvern ákveðinn hátt.
Þá er ég að tala út frá því að vera
ung kona, rétt eins og sú sem ég
leik í þessu leikriti. Stundum er
eitthvað örfínt í viðmóti einhvers
sem við mætum og við getum ekki
beðið viðkomandi að hætta því, af
því það er ekki hægt að benda á
það, það er eitthvað sem við skynj-
um. Viðkomandi getur verið alveg
blindur á að hann sé að tala niður
til manns og upplifir sig fullkom-
lega saklausan. Við getum fyrir vik-
ið ekki sagt að viðkomandi mann-
eskja sé sek, því þetta snýr að
upplifunarheimi annarrar mann-
eskju sem verður fyrir því.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Átök Vala og Hilmir Snær í hlutverkum sínum í leikritinu Oleanna, en þar takast á nemandi og háskólakennari.
Talar beint inn í
byltingar síðustu ára
Oleanna frumsýnt í Borgarleikhúsinu næsta föstudag
» Þetta verk fjallar líkaum sekt og sakleysi
og skilningsleysi, í raun
um tvo upplifunarheima
af sömu aðstæðum.
Listasafn Reykjavíkur auglýsir nú
eftir þátttakendum fyrir gjörning
listakonunnar Gígju Jónsdóttur,
„Nánd í þremur þáttum“ sem verð-
ur hluti af dagskrá sýningarinnar
Haustlaukar II sem opnuð verður
24. september og lýkur 18. október.
Gígja J leitar eftir pörum á öllum
aldri til þess að taka þátt í fimm
mínútna gjörningi sem mun eiga
sér stað í almannarými laugardag-
inn 26. september kl. 15 og á netinu
miðvikudaginn 30. september kl.
20. „Þátttakendur eru beðnir um að
mæta á ákveðinn stað laugardaginn
26. september kl. 14.30, gjörningur-
inn mun fara fram hálftíma síðar.
Fyrir seinni gjörninginn eru þátt-
takendur beðnir um að taka þátt í
æfingu þriðjudaginn 29. september
kl. 20.00 heiman frá sér á internet-
inu. Gjörningurinn fer svo fram
daginn eftir, miðvikudaginn 30.
september kl. 20.00 – á internet-
inu,“ segir í tilkynningu. Áhuga-
samir eru beðnir um að hafa sam-
band við Gígju með tölvupósti á
netfangið gigjajons@gmail.com.
Þátttakendur óskast fyrir gjörning
Munnar Kynningarmynd fyrir gjörning.
Anna Halldórs-
dóttir tónlist-
arkona kemur í
sagnakaffi í
Borgarbóka-
safninu í Gerðu-
bergi kl. 20 í
kvöld og segir
sögur í tónum og
tali. Anna hefur
sent frá sér þrjár
hljómplötur með
eigin tónlist og hlaut Íslensku tón-
listarverðlaunin fyrir plötu sína
Villta morgna sem besti nýliðinn og
var valin í að hita upp fyrir tónlist-
armanninn Sting þegar hann heim-
sótti Ísland árið 1997.
Anna bjó og starfaði í New York í
15 ár og vann þar að tónlist, hljóð-
mynd fyrir kvikmyndir og heimild-
armyndir, segir í tilkynningu og
hefur hún einnig unnið að fimm
kvikmyndaverkefnum um Mong-
ólíu. Anna hefur samið tónlist fyrir
tvær leiksýningar í Þjóðleikhúsinu
og vann einnig tónlist og hljóðmynd
fyrir leikhópinn Reykjavík En-
semble sem nýlega var valinn Lista-
hópur Reykjavíkur 2020.
Anna mætir í sagnakaffi í Gerðubergi
Anna
Halldórsdóttir