Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 24

Morgunblaðið - 16.09.2020, Page 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020 Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is VINNUFATNAÐUR MERKINGAR Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Allt á þetta upphaf sitt í því að ég var að væla í Ólafi Darra um að mig langaði til að takast á við stórt og krefjandi hlutverk í leikriti sem væri ekki ástarsaga. Hann greip þetta á lofti og sagði mér að það væri eitt slíkt verk sem hann hefði alltaf langað til að leikstýra eða leika í. Hann stakk því upp á að við læsum Oleanna. Þetta var fyrir löngu en þegar við vorum farin að velta fyrir okkur hvort og hvenær við gætum mögulega sett verkið upp sagði ég Hafliða Arngrímssyni, dramatúrg í Borgarleikhúsinu, frá hugmyndinni og þá rúllaði þetta af stað,“ segir Vala Kristín Ei- ríksdóttir leik- kona, en hún leikur annað aðalhlutverkið í leikritinu Oleanna eftir bandaríska leik- skáldið David Mamet, sem frum- sýnt verður í Borgarleikhúsinu næstkomandi föstudag, 18. sept- ember. „Þessi uppsetning er í raun hug- arfóstur Ólafs Darra og hann lék hitt aðalhlutverkið á móti mér í æf- ingaferlinu þar sem Hilmir Snær leikstýrði okkur. Þegar covid skall á fór allt í biðstöðu en þegar leik- húsið var opnað aftur var Óli kom- inn með aðrar skuldbindingar. Hilmir Snær steig þá inn í hlutverk hans. Það hefði ekki verið hægt að fá neinn annan, því það tekur tíma að koma sér inn í verkið,“ segir Vala og bætir við að hún hafi upp- lifað ákveðna sorg við að sjá á eftir Ólafi Darra. „Við vorum í raun búin að vera eins og litlir spenntir krakkar yfir þessu leikriti, þetta er óskastykkið okkar beggja. Ég tek samt fram að mér er engin vorkunn, Hilmir Snær er frábær mótleikari.“ Sekt og sakleysi, og valdið Í tvíleiknum Oleanna leikur Vala tvítuga stúlku sem er háskólanemi og mætir á skrifstofu hjá kennara sínum til að leita hjálpar vegna námsins. Kennarinn er tuttugu ár- um eldri en hún, virtur og nýtur velgengni og á von á stöðuhækkun. Samskiptin á skrifstofunni þróast smám saman í ógnvænlega átt og valdajafnvægið snýst við. „Þetta verk segir frá samskiptum og átökum milli kennara og nem- anda, milli karls og konu sem eru ekki af sömu kynslóð, koma ekki úr sömu stétt og hafa ekki sömu valda- stöðu. Forsendur þeirra í lífinu eru mjög ólíkar. Þetta er snilldarverk sem talar inn í stóra samhengið, höfundurinn stillir upp tveimur manneskjum sam eiga ólíkra hags- muna að gæta og hafa mjög ólíkan bakgrunn en eru að reyna að tala saman og skilja hvort annað. Hvort um sig reynir að fá skilning hins. Verkið fjallar um hvernig við hlust- um á orð annarra út frá okkar eigin forsendum, hvað við leyfum okkar að segja út frá því hver við er- um og hver staða okkar er. Þetta verk fjallar líka um sekt og sakleysi og skilnings- leysi, í raun um tvo upplifunarheima af sömu að- stæðum. Höfundurinn sagði sjálfur um þetta verk í einhverju viðtali að ef leikhúsgestur gengi út af verkinu og héldi með annarri hvorri mann- eskjunni í verkinu, þá hefði viðkom- andi rangt fyrir sér. Við höfum reynt að hafa það sem okkar leiðar- ljós í uppsetningunni. Við viljum heiðra þetta viðhorf höfundar, af því tvær hliðar eru á sama pen- ingnum og allir hafa sitthvað til síns máls. Ég veit vel að ýmis mál eru úti í samfélaginu þar sem sekt fer ekki á milli mála, en í þessu tiltekna verki reynir höfundur að feta þessa flóknu línu þar sem erfitt er að segja hvað er rétt og hvað er rangt. Persónurnar í verkinu eru breyskar manneskjur sem eru að reyna að vernda sig. Verkið fjallar líka um vald og valdleysi, og hvernig það getur snúist við.“ Gunnar settist í stól Hilmis Aðeins tveimur vikum fyrir frum- sýningu tók Hilmir Snær við hlut- verki Ólafs Darra og fór þá úr stóli leikstjóra. Gunnar Gunnsteinsson tók við leikstjórninni, en hver er nálgun leikstjóranna, sem eru þá í raun tveir? „Við þurftum að æfa þetta allt upp á nýtt, en við reyndum að hafa að leiðarljósi það sem við vorum bú- in að finna að virkaði í leikstjórn- inni. Á einhverjum tímapunkti vor- um við hætt að reyna að endurtaka eitthvað sem var og fórum inn í eitthvað sem er. Gunnar steig inn í þetta á okkar forsendum, hann er ekki að reyna að setja verkið upp með nýjum hætti, hann reynir að elta það sem við lögðum upp með og hann minnir okkur á það sem við ætluðum okkur að gera.“ Brá þegar las verkið fyrst Leikritið Oleanna var sett upp á Íslandi fyrir 25 árum en þá fóru Elva Ósk Ólafsdóttir og Jóhann Sigurðarson með hlutverkin. Þegar Vala er spurð hvernig verkið hafi elst og hvort það hafi staðist tímans tönn og eigi erindi í dag segir hún það heldur betur vera svo. „Mér brá í raun rosalega þegar ég las þetta verk fyrst, því það talar beint inn í samtímann, það er eins og höfundurinn hafi vitað hvað myndi gerast eftir tuttugu og fimm ár. Þetta verk talar beint inn í um- ræður og byltingar síðustu ára. Ég held að verkið hristi meira upp í okkur núna en þegar það kom fyrst fram fyrir tveimur og hálfum ára- tug, og þá er ég ekki aðeins að tala um hina stóru Metoo-byltingu á heimsvísu, heldur líka allar þær réttindabaráttubylgjur sem hafa átt sér stað nýlega.“ Hið hárfína í samskiptum Þegar Vala er spurð hvort verkið hafi breytt viðhorfum hennar eða vakið hana til umhugsunar játar hún því. „Heldur betur, það hefur varpað ljósi á hið smáa og hárfína í mann- legum samskiptum, sem við getum ekki sett fingur á en lætur okkur samt líða á einhvern ákveðinn hátt. Þá er ég að tala út frá því að vera ung kona, rétt eins og sú sem ég leik í þessu leikriti. Stundum er eitthvað örfínt í viðmóti einhvers sem við mætum og við getum ekki beðið viðkomandi að hætta því, af því það er ekki hægt að benda á það, það er eitthvað sem við skynj- um. Viðkomandi getur verið alveg blindur á að hann sé að tala niður til manns og upplifir sig fullkom- lega saklausan. Við getum fyrir vik- ið ekki sagt að viðkomandi mann- eskja sé sek, því þetta snýr að upplifunarheimi annarrar mann- eskju sem verður fyrir því.“ Ljósmynd/Grímur Bjarnason Átök Vala og Hilmir Snær í hlutverkum sínum í leikritinu Oleanna, en þar takast á nemandi og háskólakennari. Talar beint inn í byltingar síðustu ára  Oleanna frumsýnt í Borgarleikhúsinu næsta föstudag » Þetta verk fjallar líkaum sekt og sakleysi og skilningsleysi, í raun um tvo upplifunarheima af sömu aðstæðum. Listasafn Reykjavíkur auglýsir nú eftir þátttakendum fyrir gjörning listakonunnar Gígju Jónsdóttur, „Nánd í þremur þáttum“ sem verð- ur hluti af dagskrá sýningarinnar Haustlaukar II sem opnuð verður 24. september og lýkur 18. október. Gígja J leitar eftir pörum á öllum aldri til þess að taka þátt í fimm mínútna gjörningi sem mun eiga sér stað í almannarými laugardag- inn 26. september kl. 15 og á netinu miðvikudaginn 30. september kl. 20. „Þátttakendur eru beðnir um að mæta á ákveðinn stað laugardaginn 26. september kl. 14.30, gjörningur- inn mun fara fram hálftíma síðar. Fyrir seinni gjörninginn eru þátt- takendur beðnir um að taka þátt í æfingu þriðjudaginn 29. september kl. 20.00 heiman frá sér á internet- inu. Gjörningurinn fer svo fram daginn eftir, miðvikudaginn 30. september kl. 20.00 – á internet- inu,“ segir í tilkynningu. Áhuga- samir eru beðnir um að hafa sam- band við Gígju með tölvupósti á netfangið gigjajons@gmail.com. Þátttakendur óskast fyrir gjörning Munnar Kynningarmynd fyrir gjörning. Anna Halldórs- dóttir tónlist- arkona kemur í sagnakaffi í Borgarbóka- safninu í Gerðu- bergi kl. 20 í kvöld og segir sögur í tónum og tali. Anna hefur sent frá sér þrjár hljómplötur með eigin tónlist og hlaut Íslensku tón- listarverðlaunin fyrir plötu sína Villta morgna sem besti nýliðinn og var valin í að hita upp fyrir tónlist- armanninn Sting þegar hann heim- sótti Ísland árið 1997. Anna bjó og starfaði í New York í 15 ár og vann þar að tónlist, hljóð- mynd fyrir kvikmyndir og heimild- armyndir, segir í tilkynningu og hefur hún einnig unnið að fimm kvikmyndaverkefnum um Mong- ólíu. Anna hefur samið tónlist fyrir tvær leiksýningar í Þjóðleikhúsinu og vann einnig tónlist og hljóðmynd fyrir leikhópinn Reykjavík En- semble sem nýlega var valinn Lista- hópur Reykjavíkur 2020. Anna mætir í sagnakaffi í Gerðubergi Anna Halldórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.