Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 4
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á hugavert er að greina hvern- ig markaðurinn fyrir sjáv- arafurðir hefur breyst á þessu ári. Rúnar Björg- vinsson, framkvæmdastjóri Íslensks sjávarfangs í Kópavogi, segir áhyggjuefni hve mikil aukning hefur orðið í útflutningi á heilum fiski til verkunar erlendis. Þá hafi kórónu- veirufaraldurinn haft þau áhrif að orðið er flóknara og dýrara að koma ferskum afurðum til erlendra kaup- enda. Íslenskt sjávarfang er með tvær starfsstöðvar: í Kópavogi er fersk- fiskfiskvinnsla fyrirtækisins og starfa þar um hundrað manns, en frá árinu 2015 hefur félagið einnig staf- rækt fiskvinnslu á Þingeyri þar sem áherslan er á frystar afurðir. Fiskvinnslur skortir hráefni Rúnari hugnast ekki sú þróun sem orðið hefur í útflutningi á óunnum fiski og er nú svo komið að fisk- vinnslur sem reiða sig á að geta keypt hráefni á markaði eru margar í erfiðri stöðu. „Þetta hefur höggvið skarð í þennan hóp fyrirtækja sem mörg hver hafa verið starfandi um langt skeið, rutt brautina í útflutn- ingi ferskra afurða og veitt fjölda fólks atvinnu. Hvert á fætur öðru hafa þessi fyrirtæki lagt upp laup- ana og dýrmæt störf horfið með þeim.“ Reiknast Rúnari til að í kringum 60.000 tonn af bolfiski hafi verið flutt óverkuð úr landi á síðasta fisk- veiðiári. „Fyrir það magn gætu fisk- vinnslurnar skapað þúsundir starfa með afleiddum störfum. Eitt er svo að missa þessi störf, og annað að með hverju fyrirtækinu sem hættir rekstri tapast markaðir fyrir ís- lenskan fisk því erlendar vinnslur selja fiskinn sem íslenskan og skaða stundum gæðaímynd íslenska fisks- ins.“ Seljendur tapa á einsleitari markaði Bendir Rúnar á að íslenskir fiskverk- endur sitji ekki við sama borð og koll- egar þeirra í Evrópu og því ekki hægt að segja að þróunin sé afleiðing eðli- legrar hagræðingar á frjálsum mark- aði. „Fiskurinn er t.d. ekki allur að fara til láglaunasvæða í Austur- Evrópu og endar töluvert magn í Hollandi þar sem Evrópusambandið greiðir keppinautum okkar háa stofn- styrki. Er eðlilegt að spyrja hvort ís- lensk stjórnvöld eigi ekki að grípa til aðgerða til að hamla þessum útflutn- ingi ef hann er afleiðing inngripa af hálfu Evrópusambandsins sem skekkja eðlilega samkeppni.“ Spurður hvernig Rúnar myndi vilja útfæra inngrip á markaðinum segist hann ekki vera með svarið, en að ýmsar leiðir séu færar. „En áður en við förum að eyða orku í það að hugsa hvaða leið væri best að fara þarf að vera tryggt að vilji sé til þess hjá stjórnvöldum að gera eitthvað í mál- inu.“ Rúnar bætir því við að ekki sé heldur um það að ræða að erlendu kaupendurnir yfirbjóði sjálfstæðu fiskvinnslurnar á fiskmörkuðum. „Mikið af þeim fiski sem seldur er óverkaður úr landi fer framhjá mark- aði og hafa innlendu vinnslurnar því ekki tækfæri til að kaupa hráefnið. Raunar er hætt við að ef þessi þróun fær að halda áfram þá muni verð á fiskmörkuðum fara lækkandi enda fækkar kaupendum þegar fisk- vinnslur þurfa að hætta rekstri því þær geta ekki tryggt sér nægt hrá- efni. Þetta gerir markaðinn einsleit- ari svo að hallar á seljendur og viðbú- ið að fiskverð leiti niður á við.“ Ferðalag fisksins lengra og dýrara Í dag er starfsemi fyrirtækisins helg- uð framleiðslu á þorska-, ufsa- og ýsuafurðum. Fyrirtækið verkaði áður makríl en Rúnar segir að þar hafi framboðið verið of sveiflukennt og hyggilegra að sérhæfa reksturinn í hinum tegundunum þremur. „En þrátt fyrir að vinna aðeins með þrjár fisktegundir erum við með mjög fjöl- breytta vöruflóru og framleiðum hátt í 300 vörunúmer. Við getum brugðist hratt við öllum breytingum og orðið við öllum óskum kaupenda, sem hefur hjálpað okkur að stíga ölduna í þeim ólgusjó sem fylgt hefur kórónuveiru- faraldrinum.“ Sú röskun sem varð á farþegaflugi í faraldrinum þýddi að flóknara var að koma ferskum afurðum til kaup- enda. Segir Rúnar að flutningskostn- aðurinn hafi hækkað mikið og sá kostnaðarauki lent nær alfarið á herðum framleiðenda. „Flutninga- fyrirtækin hafa fundið aðrar leiðir til að koma fiskinum á áfangastað og þó farþegaflug vestur um haf liggi niðri hefur fragtvélum verið bætt við og einnig er hægt að koma ferskum fiski með fragtflugi til Bandaríkjanna með viðkomu í Evrópu. Gallinn er sá að þetta getur lengt ferðatímann og miklu betra að senda ferskar afurðir með beinu flugi svo þær hafi lengra hillullíf.“ Liturinn á ufsanum hentar ekki stórmörkuðum Rúnar segir hægt að skipta mark- aðinum í þrjá hluta: stórmarkaði, veitingahús og hótel. „Hótelmark- aðurinn hefur nánast gufað upp og hefur það ekki síst bitnað á sölu á ufsa. Hafa birgðir af frystum ufsa- afurðum safnast upp af þeim sökum því ufsinn selst ekki eins vel í stór- mörkuðum.“ Ástæðan fyrir því að neytenda- markaður sýnir ufsa takmarkaðan áhuga er líklega sú að ufsinn hefur á sér brúnan lit áður en hann er eld- aður. „Fyrir vikið getur hann virkað fráhrindandi í frystiborðum versl- ana og neytendur áhugasamari um þær tegundir sem eru skjannahvít- ar. Hjá hótelunum kemur liturinn ekki að sök enda ufsinn orðinn fal- lega hvítur þegar búið er að elda hann.“ Eftirspurnin á veitingahúsamark- aði hefur verið sveiflukennd og greinir Rúnar merki nýs samdrátt- arskeiðs í kjölfar nýrrar hrinu hertra smitvarna víða um Evrópu. Á móti kemur mikil aukning í sölu til stórmarkaða á bæði frystum og ferskum afurðum. „Fólk heldur áfram að borða og vill fá fiskinn sinn en gallinn er sá að þó svo að neyt- endamarkaður hafi að hluta til bætt upp fyrir hrunið sem varð í sölu til veitingastaða þá er það veitinga- geirinn sem hefur verið best borg- andi markaðurinn fyrir sjávaraf- urðir.“ Sitja ekki við sama borð og evrópskir fiskverkendur Vöxtur í útflutningi á óverkuðum fiski kann að ógna gæðaímynd íslenskra sjávarafurða. Lítil sala er á ufsa eftir mikla niðursveiflu í hótelgeira. Morgunblaðið/Eggert Rúnar Björgvinsson segir þá röskun sem orðið hefur á flugsamgöngum flækja útflutning á ferskum fiski og auka kostnað. Morgunblaðið/Golli Það gæti skapað vandamál ef fiskur veiddur á Íslandsmiðum er verkaður erlendis, gæðunum mögulega ábótavant og fiskurinn síðan seldur sem íslensk vara. 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.