Morgunblaðið - 24.10.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 24.10.2020, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ essi bók er sprottin úr íslensk- um sjávarútvegi en segja má að mikilvægi sjávarútvegs hérlendis og þekking á þess- ari atvinnugrein geri það að skyldu okkar að miðla þeim fróðleik til ann- arra í heiminum,“ segir Ásta Dís Óla- dóttir, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, en hún ritaði bókina ásamt Ágústi Einarssyni, fyrrverandi prófessor og rektor við Háskólann á Bifröst. Bókin byggist á rannsóknum þeirra Ástu Dísar og Ágústs og fjallar meðal annars um breytingar sem hafa orðið í sjávarútvegi á und- anförnum árum og áratugum og þær leiðir sem færar eru í greininni hvað varðar aukna sjálfbærni, hagkvæmari veiðar, vinnslu og fiskeldi, að sögn Ástu Dísar. „Markmiðið var að skrifa fræðibók sem myndi nýtast til kennslu og sem almennt fræðirit um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja og sjávarútveg í heild sinni hér á landi og erlendis. […] Sýnt er hvernig bæta má árangur fyrirtækja og landa á þessum sviðum, meðal annars með tækninýjungum og þar er Ísland mjög framarlega í heiminum. Bókin er ætluð þeim sem starfa í sjávar- útvegi, stefnumótendum í greininni, fræðimönnum, háskólanemum og öll- um þeim sem áhuga hafa á þróun sjávarútvegs til framtíðar,“ útskýrir hún. Spurð hvernig það kom til að ákveðið var að gefa bókina út, svarar Ásta Dís: „Þetta byrjaði þegar ég var fengin til þess að endurvekja kennslu í rekstri í sjávarútvegi við Háskóla Ís- lands. Þegar ég kem inn 2017 hafði þetta ekki verið kennt síðan Ágúst gerði það, mörgum árum áður. […] Í samtali við ýmsa aðila hér á landi og erlendis kom í ljós að það voru eig- inlega engar bækur á ensku til sem nálgast sjávarútveginn í víðara sam- hengi. Þannig raunar kom þessi hug- mynd að útskýra hvað við höfum ver- ið að gera í sjávarútvegi í samanburði við aðrar þjóðir.“ Betri stjórnun veiða og aukið eldi Hún segir mikilvægi sjálfbærni og tækniframfarir í veiðum og vinnslu gegna lykilhlutverki í bókinni. „Eitt af því sem skiptir afar miklu máli í dag er sjálfbærni, að nýta auðlindir jarðar þannig að þær standi komandi kyn- slóðum til boða í ekki minna umfangi en núverandi kynslóðum. Við verðum að fara vel með það sem við höfum í höndunum og nýta hvern fisk ef svo má segja til hins ýtrasta. Flök og bit- ar eru verðmæt afurð en í dag eru það ekki síður hliðarafurðir, prótín og ensím sem skipta máli og skila verð- mætum. Ég nota stundum í kennsl- Veiðar munu ekki standa undir stöðugri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í haust kom út ný bók um sjávarútveg og fisk- eldi í alþjóðlegu sam- hengi í ljósi fæðuöryggis framtíðarinnar og ber hún heitið Fisheries and Aquaculture: The Food Security of the Future. „Við verðum að fara vel með það sem við höfum í höndunum og nýta hvern fisk ef svo má segja til hins ýtrasta.“ G U N N A R JÚ L A R T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.