Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 16
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is V ið erum að sjá ákveðin merki meðal annars í íbúaþróuninni. Þegar maður tengir þessa íbúaþróun við atburði sem hafa verið að eiga sér stað frá því var hafist handa við að koma þessu fiskeldi á koppinn, þá sér maður að íbúafjöld- inn sem var í frjálsu falli frá 1998 fer að breytast og íbúum fer að fjölga því atvinnutækifærin eru fleiri. Það er ekki hægt að fullyrða að hægt sé að rekja alla breytinguna til fiskeldisins en það er ljóst að fiskeldið setti af stað ákveðinn snjóbolta sem gerði það að verkum að íbúafjöldinn jókst og er stöðugt að aukast. Við sjáum mjög stórar breytingar bara á þessu ári sem er ótrúlega skemmtilegt,“ segir Re- bekka. Hún segir töluverðan fjölda starfa hafa orðið til í sveitarfélaginu við til- komu fiskeldisins, bæði bein störf og afleidd störf og vísar til þess að nú þegar eru um 120 bein störf í fiskeldi í Vesturbyggð auk 30 starfa hjá Kalþör- ungafélaginu. „Ekki síst verða til fjöl- breyttari atvinnutækifæri. Þetta er þannig atvinnugrein að það þarf fólk með mismunandi bakgrunn. Það eru fleiri sem flytja hingað og setjast að og skapast grundvöllur fyrir ýmiss konar þjónustu.“ Þá hefur aldurssamsetning íbúanna breyst mikið enda er yngra fólk að setjast að í Vesturbyggð í síauknum mæli, en því fylgja hæglega áskoranir að sögn bæjarstjórans. „Ungu fólki fylgja oft mörg börn sem er mjög ánægjulegt, en það hefur verið áskor- un fyrir sveitarfélagið að taka við börnum í leikskóla og grunnskóla. Þetta eru samt allt mjög jákvæð verk- efni að leysa úr.“ Kallar á fjárfestingar Spurð hvort viðsnúningurinn hafi ekki haft jákvæð áhrif á tekjur sveitarfé- lagsins svarar Rebekka því játandi. „Jú, við sjáum kannski ýktustu breyt- inguna á hafnarsjóði sem var í áratugi rekinn með tapi.“ Þá hefur afkoma hafnarsjóðs undanfarin ár verið með ágætum en hún bendir á að tekju- samdráttur hefur orðið vegna kór- ónuveirufaraldursins enda komu reglulega skemmtiferðaskip til Vest- urbyggðar. Fiskeldið heldur þó að mestu áfram að skila sínu. „Svo höfum við séð auknar útsvar- stekjur, en þær hafa ekki ekki aukist í takt við íbúaþróunina. Það er atriði sem við erum að vakta vel í þeim til- gangi að átta okkur betur á því hvað er um að vera þar. Við erum ekki með neina skýringu á þessu,“ segir hún. Atvinnuuppbygging og íbúafjölgun kallar óneitanlega á aukna fjárfestingu í innviði sveitarfélagsins útskýrir bæj- arstjórinn. „Við fórum í það með Eflu- verkfræðistofu að vinna innviðagrein- ingu fyrir sveitarfélagið og var hún unnin í samvinnu við hafsækin fyrir- tæki á svæðinu. Þá var ekki bara verið að skoða hafnaraðstöðu heldur einnig svæði fyrir íbúabyggð, vegi, öll kerfi eins og fráveitukerfi, rafmagn og fleira. Þetta gagn nýtist okkur gríð- arlega vel í því að setja upp áætlanir fyrir sveitarfélagið þannig að eðlileg þróun [fiskeldis]fyrirtækjanna geti gengið sem best, en auðvitað er fyrir lítið sveitarfélag mjög flókið og erfitt að fara í kostnaðarsamar og umfangs- miklar fjárfestingar. Þetta reynir oft á forgangsröðunina.“ Húsnæðisskortur Fram kom í greiningunni að miðað við framtíðaráfrom fyrirtækja í sveitarfé- laginu verða engar lausar lóðir á hafn- arsvæðinu á Patreksfirði og Bíldudal, en á Bíldudal stefnir einnig í skort á leguplássi og almennu athafnasvæði. Lagt er meðal annars til að hafin verði vinna við að endurskipuleggja hafn- arsvæðið á Patreksfirði og að sett verði í gang vinna við landfyllingu á hafnarsvæðinu á Bíldudal. Þá er einn- ig talin þörf á að auka framboð lóða undir athafnasvæði og skilgreina stærri iðnaðarsvæði nærri byggða- kjörnunum. Framboð lóða undir íbúðarhúsnæði er talið nægilegt hins vegar er skortur á íbúðarhúsnæði sem kallar á bygg- ingu fjölbreyttra íbúða innan byggða- kjarnanna, jafnframt er talin þörf á að flýta þurfi uppbyggingu ofanflóða- mannvirkja í sveitarfélaginu þar sem svæði sem kunna að nýtast sem lóðir undir íbúðahúsnæði eru að hluta til á hættusvæðum. Það er hins vegar ekki einfalt mál að skyndilega ætla að hefjast handa, segir Rebekka. „Fyrir sveitarfélög eins og okkar þar sem var áður lang- varandi niðursveifla, skapaðist veruleg uppsöfnuð viðhaldsþörf á mörgum stöðum. Það þarf grettistak að komast áfram en það hefur tekist vel til þessa í samstarfi við fyrirtækin.“ Svo reynir auðvitað á innviði sem er á forræði ríkisins segir bæjarstjórinn og vísar til samgöngumálanna. Við er- um með eina sláturhúsið fyrir eldisfisk á Bíldudal og afurðirnar þurfa að kom- ast af svæðinu á markað. Við erum kannski í ágætri stöðu með tilliti til þess að við erum með ferjuna yfir Breiðafjörð til þess að aðstoða okkur sérstaklega yfir vetrartímann þegar færð getur spillst mjög hratt, það er mikið af fjallvegum á svæðinu. En ástand veganna er mjög bágborið og þrátt fyrir ýmsar framkvæmdir sem standa yfir þá þarf meira að koma til.“ Löggjöfin ekki í takt „Það eru ýmsar áskoranir í lagaum- hverfinu sem sett hefur verið upp fyrir sveitarfélögin og fiskeldið. Mikið af þeim ákvæðum sem sveitarfélögum er gert að starfa eftir, eins og í hafn- arlögum, eru samin fyrir sjávarútveg og fiskeldi er allt annars eðlis. Þetta er eitthvað sem þarf að lagfæra, því fisk- eldið er komið til að vera,“ segir Re- bekka sem telur fulla ástæðu til þess að fara í heildræna skoðun á lagaum- hverfi sveitarfélaga með tilliti til áhrifa hafsækinnar starfsemi sem ekki er hefðbundinn sjávarútvegur. Þá sé það einnig í hag fiskeldisfyrirtækjanna að lagaramminn sé skýr, að sögn bæjar- stjórans. „Ég hef líka talað fyrir því að það yrði horft heildstætt á greinina þegar um er að ræða gjaldtöku, hvort sem það er af hálfu sveitarfélaga eða ríks- ins, þannig að umhverfi fyrirtækjanna væri þannig að þetta myndi ganga upp. Það vantar heildarsýn og vonandi verður farið markvisst í að laga þessa þætti,“ segir hún og svarar því játandi er hún er spurð hvort sveitarfélög þar sem fiskeldi fer fram ættu að fá aukna hlutdeild í gjaldtökunni. „Við töluðum fyrir því þegar frum- varpið um fiskeldið var til umfjöllunar og hugmyndir um fiskeldissjóð lá fyrir þinginu. Vesturbyggð gagnrýndi þetta töluvert á þeim tíma. Þá vorum við að fást við gríðarlega kostnaðarsöm fjár- festingaverkefni og bentum á að fyr- irkomulagið í Noregi er öðruvísi þar sem meirihluti tekna af þessari starf- semi rennur í auknum mæli til svæð- anna þar sem fiskeldið er, meðal ann- ars í þeim tilgangi að standa undir kostnaði sem fylgir uppbyggingu. Þetta endaði þannig að komið var á fiskeldissjóði þar sem sveitarfélagið mitt þarf að berjast við önnur sveit- arfélög um að fá einhverja fjármuni í uppbyggingu. Það hefur ekki komið reynsla á þetta og óvitað hversu miklir fjármunir er um að ræða, en við hefð- um heldur kosið að sjá þetta gert með öðrum hætti,“ segir bæjarstjórinn. Rebekka segir heilt á litið hefur fiskeldið haft jákvæð áhrif á Vest- urbyggð. „Þessi mikla atvinnu- uppbygging hefur haft mikil og já- kvæð áhrif á íbúaþróun og krafturinn sem þessu öfluga fólki fylgir er gríð- arlegur. Lífið í fiskeldisþorpunum er gott, þar er allt í botni!“ 16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Vesturbyggð  Í Vesturbyggð býr 1.021 og eru í sveitarfélaginu tveir byggðakjarn- ar, Bíldudalur og Patreksfjörður. Tvö eldissvæði eru í Vestur- byggð, Arnarfjörður og Patreks- fjörður, og starfa þar eldisfyrir- tækin Arnarlax og Arctic Fish. Á Bíldudal er þjónustuhöfn fyrir fiskeldi í Arnarfirði og eina slátur- húsið fyrir eldisfisk á Vest- fjörðum. Á Patreksfirði er þjónustuhöfn fyrir fiskeldi í samnefndum firði og er unninn eldislax fyrir eldis- fyrirtækin í samstarfi við fisk- vinnsluna Odda hf. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rebekka Hilmarsdóttir segir að mikilli uppbyggingu fylgi jákvæðar áskoranir, því sé mikilvægt að tryggja hlutdeild sveitarfélaga í tekjum af fiskeldi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Laxaslátrun fyrir Arnarlax á Bíldudal. Fjöldi starfa hefur orðið til á svæðinu vegna aukinna umsvifa fiskeldisins. Fiskeldi sneri hnignun í sókn Fiskeldi hefur haft verulega jákvæð áhrif á Vest- urbyggð. Ekki bara hefur langvarandi hnignunar- skeið verið stöðvað heldur bendir allt til áframhald- andi uppbyggingar og horfir sveitarfélagið fram á skort á íbúðarhúsnæði. Bæjarstjórinn Rebekka Hilmarsdóttir lítur framtíðina björtum augum. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.