Morgunblaðið - 24.10.2020, Síða 17
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 17
VEIST ÞÚ hvað er í kerinu þínu?
Halda vel styrk og lögun = öruggara vinnuumhverfi til sjós og lands
Draga ekki í sig vökva og óhreinindi = aukið matvælaöryggi hráefnisins
Halda þyngd sinni út líftímann = réttari vigtun afla úr auðlindinni
iTUB býður upp á PE einangruð ker sem eru að fullu endurvinnanleg
VELDU RÉTT!
www.itub-rental.com
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
jávarafurðaráð Noregs
(Norges Sjømatråd) birti í
byrjun mánaðarins mark-
aðsáætlun fyrir árið 2021
en ráðið annast markaðsþróun og
stuðning við útflutning frá Noregi
og er fjármagnað með útflutnings-
skatti sem allar norskir útflutnings-
aðilar sjávarafurða verða að greiða.
Fram kemur á vef ráðsins að
áætlanir gera ráð fyrir að ráðstafað
verði um 266 milljónum norskra
króna, jafnvirði fjögurra milljarða
íslenskra króna, í markaðssetningu
norskra sjávarafurða á næsta ári.
Sérstök áhersla er sögð lögð á hefð-
bundna markaði vegna áhrifa kór-
ónuveirufaraldursins.
„Því fyrr sem við afgreiðum
áætlun næsta árs, því betri grund-
völl höfum við til að ná fullum ár-
angri með því að útflytjendur og
greinin í heild nái að nýta markaðs-
starf sjávarafurðasráðsins í takti
við eigin markaðssetningu. Meg-
inmarkaðir okkar, svo sem Frakk-
land, Portúgal, Japan og Bretland,
eru í forgangi á næsta ári. En við
verðum að vera sveigjanleg, svo að
markaðsstarf okkar sé stöðugt að-
lagað þeim áskorunum sem heims-
faraldurinn hefur í för með sér,“
segir Børge Grønbech, forstöðu-
maður alþjóðlegrar starfsemi ráðs-
ins.
Hann útskýrir að það sé mikil-
vægt að dreifa kröftum ráðsins
ekki of mikið. Því sé áhersla lögð á
að styrkja norskar afurðir á þeim
mörkuðum sem þær hafa staðið
sterkar í gegnum tíðina, en þetta
segir Grønbech sé í samræmi við
óskir geirans í Noregi.
Ræða áhrif á kaupvilja
Mestu fjármununum mun vera veitt
til markaðsstarfs í Frakklandi eða
23 milljónir norskra króna, jafn-
virði 346 milljóna íslenskra króna.
Þá mun markaðsstarfið á Spáni
kosta tæplega 210 milljónir ís-
lenskra króna og 286 milljónir ís-
lenskra króna í Þýskalandi.
Tilkynningin um áherslur á hefð-
bundna meginmarkaði Norðmanna
kemur í skugga þess að ákveðnir
ýsu- og þorskstofnar í Noregi
stefna í að missa MSC-vottun á
næsta ári. Meðal þess sem var á
dagskrá ráðstefnu norska sjávaraf-
urðaráðsins á þriðjudag var hvaða
áhrif það mun hafa á kaupvilja að
missa vottunina. Það má því gera
ráð fyrir að einhverjar áhyggjur
eru þar ytra um hvaða áhrif þetta
kann að hafa á samkeppnisstöðu
norskra útgerðarfyrirtækja.
MSC-vottun er veitt veiðar-
færum og fiskistofnum samkvæmt
alþjóðlega viðurkenndum staðli
Marine Stewardship Council. Þá
hefur sérstakt MSC-merki fest sig í
sessi og seljendur vottaðra sjávar-
afurða verða þess varir að margir
kaupendur hafa markað sér þá
stefnu að kaupa einungis fisk sem
kemur með vottun um sjálfbærar
og ábyrgar veiðar, auk þess sem
vottunin virðist skila sér í betra
verði.
Rennur út í apríl
Í fyrra var tilkynnt að þorskstofnar
í Norðursjó myndu missa MSC-
vottun í kjölfar snöggrar hnignunar
stofnsins sem er talinn í veikri
stöðu. Jafnframt var í desember
þorskkvóti í Norðursjó skorinn nið-
ur um 40%, en þorskveiðar Norð-
manna í Norðursjó eru aðeins um
1,5% af heildarmagni þorskveiða
þeirra.
Nú bætist við að þorsk- og ýsu-
stofnar sem eru innan 12 sjómílna
frá ströndum Noregs kunna að
missa MSC-vottunina 26. apríl á
næsta ári, að því er fram kemur á
vef norskra sjávarútvegssamtaka,
Norges Fiskarlag. Þar segir að í
fyrra hafi verið hafin vinna við að
endurnýja vottunarskírteini fyrir
þorsk og ýsu en eins og er staðan í
umsóknarferlinu nú þannig að allt
bendi til þess að strandstofnarnir fá
ekki vottun, að sögn Tor Bjørklund
Larsen, umhverfisráðgjafa Norges
Fiskarlag.
Norskur þorskur kann að missa MSC-vottun
Morgunblaðið/Eggert
Það er spurning hvort íslenskur þorskur mun njóta samkeppnisforskots ef hinn norski missir sjálfbærnisvottunina.
Markaðsstofa norskra
sjávarafurða hyggst
leggja áherslu á hefð-
bundna markaði í
skugga þess að sam-
keppnisstaða kann að
skerðast þegar afurðir
verða óvottaðar.