Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 22
GPG Seafood skipar mikilvægan sess í atvinnulífinu á Norðurlandi eystra og furðar framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins sig á því að fleiri hundruð tonna byggðakvóti hafi verið tekinn af Húsvíkingum.
Vonar að veiran komi
ekki til Húsavíkur
Gunnar segir hins vegar september og
október oft rólegan árstíma í veiðum.
„Þannig að það er kannski lán í óláni
að markaðirnir eru ekki á fleygiferð
líka. Síðan hefur almennt aukist mjög
hratt í veiðum og vinnslu um miðjan
október. […] Okkar helsti tími í salt-
fisknum er eftir áramót inn á markaði
í Portúgal og á Spáni, svo vonandi
verður vinnslan og markaðir á góðu
róli eftir áramótin. Það er eitthvað
verið að framleiða fyrir ítalska mark-
aðinn með jólaneysluna í huga, en svo
er maður að heyra að það sé töluvert
til af birgðum af saltfiski meðal annars
í Noregi og víðar, sem menn héldu að
myndi seljast hraðar og fyrr, en það
virðist ekki alveg hafa gengið eftir.
Við erum þokkalega brattir þrátt
fyrir allt saman. Það er víða þungt
hljóð á mörkuðum. Okkar kúnnar hafa
verið að bregðast við með því að beina
afurðum meira inn í smásöluna [eins
og gerðist í vor þegar sala í smásölu
sjávarafurða jókst þegar samdráttur
varð í sölu til veitingahúsa]. Sem betur
fer þarf fólk að borða og þá þurfum við
að hafa góðan fisk til að bjóða því.“
Þá segir framkvæmdastjórinn mik-
ilvægan þátt í að takast á við þær
áskoranir sem eru framundan vera
mannauðinn. „Það eru spennandi
tímar framundan en það er alltaf ein-
hver óvissa, en hér er gott starfsfólk í
vinnslunum og góðir sjómenn – við er-
um með þrjá báta á fullu. Þó það komi
kannski upp einhverjir hnökrar er
þetta allt mjög öflugt fólk sem leysir
úr málunum. Mörg búin að vera starf-
andi í mörg ár og með mikla reynslu,
þau hafa séð erfiða og bjarta tíma í
þessu.“ Hann útskýrir að tekið hafi
verið upp sérstakt verklag til að gæta
sóttvarna og aðkoma í starfstöðvarnar
hafi verið takmörkuð. „Við vonum
bara að veiran komi ekki til Húsavík-
ur.“
Kominn á gólfið
Gunnar kveðst þekkja sjávar-
útvegsgeirann vel þrátt fyrir að hann
komi af mölinni. „Það skemmtilega við
þetta er að ég byrjaði í sjávarútvegi
1996 í Sölumiðstöð hraðfrystihúsa og
var þar nokkur ár. Síðan var ég nátt-
úrlega í fjármálaiðnaðinum að vinna
að fjármálum fyrir sjávarútveginn og
þekki inn á greinina, en nú er maður
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
G
unnar kveðst alls ekki sjá
eftir ákvörðuninni.
„Gunnlaugur [Karl
Hreinsson, eigandi GPG]
bauð mér þetta starf eftir
að Páll [Kristjánsson] færði sig um
set, þá bauð hann mér þetta og mað-
ur stökk á þetta. Gaman að fara í
eitthvað nýtt og gott að búa hérna,“
segir Gunnar.
„Það sem kom mér á óvart var að
erlendu markaðirnir voru líflegri en
maður hélt,“ segir Gunnar. Hann
segir það sé farið að hægja aðeins á
mörkuðum nú, eftir að fregnir fóru
að berast af frekari útbreiðslu kór-
ónuveirufaraldursins. „Það er farið
að loka veitingastöðum víða aftur og
farið að herða aðgerðir, þannig að
það er óvissa tengd því. Hins vegar
erum við líka að vinna léttsöltuð flök
á Raufarhöfn og þau eru að rúlla
reglulega út á markaðinn. Í þurrk-
aða fisknum fer hann reglulega út
til Nígeríu. Síðan er það saltfisk-
urinn sem við erum að vinna einnig
núna inn á Ítalíu og Spán, það er
þyngri staða þar en oft áður á haust-
in og helsta ástæðan er að Covid sé
að ýkja þetta, eins og nýlegar fréttir
frá Barcelóna segja okkur þar sem
ákveðið var að loka öllum veit-
ingastöðum.“
kominn á gólfið. Í morgun var verk-
stjórinn veikur og þá þurfti maður að
hlaupa hérna niður í vinnsluna og
koma henni í gang,“ segir Gunnar og
hlær. „Maður lærir alltaf eitthvað nýtt
á hverjum degi. Það er margt að ger-
ast fyrir nýjan mann. Maður vissi nú
alltaf að þetta væri mjög lifandi grein
og skemmtileg.“
Þá segir hann allt aðra upplifun að
vera með beina aðkomu að verðmæt-
unum sem verið er að skapa. „Maður
áttar sig ekki sjálfkrafa á því hvað það
eru mikil verðmæti í einum fiski. Þetta
eru fleiri þúsundkallar og það þarf að
passa upp á það að meðhöndla hvern
fisk vel. Núna snýst einmitt allt um að
auka stöðugt öll gæði alveg frá veiðum
og í gegnum vinnsluna til að auka
sölulíkur á afurðinni.“
Það er ýmislegt sem kemur á óvart
þegar maður kynnist aðstæðum betur
að sögn Gunnars. „Það sem meðal
annars hefur verið skrýtið fyrir svona
aðkomumann eins og mig er að upp-
götva að það er enginn byggðakvóti á
Húsavík. Af því að við fórum yfir tvö
þúsund manna markið í íbúafjölda var
fjögur til fimm hundruð tonna
byggðakvóti bara tekinn í burtu á sín-
um tíma.“
Telur hann einmitt ástæðu núna til
þess að skoða hvort hægt sé að ráð-
stafa auknum kvóta til svæðisins til að
styrkja atvinnustigið. Bendir Gunnar
á að heldur lítil starfsemi sé á Bakka
og að verulegur samdráttur hafi orðið
í ferðaþjónustu. „Öll umsvif í bænum
hafa minnkað mjög mikið. Mér finnst
þurfa að bregðast við með einhverri
aðstoð.“
Styrkja heimabyggð
Það er vissulega ákveðin áskorun að
stýra fyrirtæki sem er með starfsemi
á fleiri stöðum að sögn Gunnars og
kveðst hann reglulega koma við á
starfsstöðvum fyrirtækisins, en sem
betur fer er hægt að nýta fjarskipta-
tæknina til að leysa úr málum og
tryggja samskiptin enda vegalengd-
irnar ekki sambærilegar og innan höf-
uðborgarsvæðisins. „Það eru 150 kíló-
metrar inn á Raufarhöfn. Maður
hoppar ekki upp í bíl til að taka einn
fund,“ segir Gunnar og hlær en GPG
er með starfsstöðvar á Húsavík, Rauf-
arhöfn og á Bakkafirði.
Hann segir bjart framundan þrátt
fyrir óvissu á mörkuðum. „Við erum
búin að vera að byggja upp fína
vinnslu á Raufarhöfn og höldum því
áfram. Á Bakkafirði erum við búin að
vera að fjárfesta töluvert undanfarið
og ætlum að byggja það enn frekar
upp. Bakkafjörður er hluti af átakinu
brothættar byggðir og við ætlum að
gera okkar besta í því að styrkja
byggðina með öflugri vinnslu og út-
gerð á svæðinu. Síðan á Húsavík erum
við að keyra saltfiskvinnsluna og
þurrkunina eins mikið og við getum.
Við viljum halda áfram að byggja
fyrirtækið upp og styrkja heima-
byggð.“
Von er á nýjum línubát frá Vík-
ingbátum um áramótin, að sögn
Gunnars. Nýi báturinn er talinn skila
meiri veiðigetu og betri aflameðferð
og mun þetta auka hráefnisöryggi.
„Allt þetta vonumst við til að styrki
okkar rekstur og byggðir á hverjum
stað fyrir sig sem og styrki heildina
hjá okkur í GPG Seafood.“
Mikilvægt að búa yfir öflugum mannauði
Ljósmyndir/Hafþór Hreiðarsson
Það kom mörgum sem
þekkja Gunnar Gíslason
á óvart að hann skyldi
flytja ásamt fjölskyldu
sinni til Húsavíkur eftir
að hafa búið alla ævi á
Seltjarnarnesi, en hann
var nýverið ráðinn í
starf framkvæmda-
stjóra GPG Seafood og
tók til starfa við upphaf
nýs fiskveiðiárs, fyrsta
september.
Gunnar Gíslason segir stefnt
að því að styrkja fyrirtækið enn
frekar og efla heimabyggð.
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum