Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 22

Morgunblaðið - 24.10.2020, Side 22
GPG Seafood skipar mikilvægan sess í atvinnulífinu á Norðurlandi eystra og furðar framkvæmdastjóri fyrir- tækisins sig á því að fleiri hundruð tonna byggðakvóti hafi verið tekinn af Húsvíkingum. Vonar að veiran komi ekki til Húsavíkur Gunnar segir hins vegar september og október oft rólegan árstíma í veiðum. „Þannig að það er kannski lán í óláni að markaðirnir eru ekki á fleygiferð líka. Síðan hefur almennt aukist mjög hratt í veiðum og vinnslu um miðjan október. […] Okkar helsti tími í salt- fisknum er eftir áramót inn á markaði í Portúgal og á Spáni, svo vonandi verður vinnslan og markaðir á góðu róli eftir áramótin. Það er eitthvað verið að framleiða fyrir ítalska mark- aðinn með jólaneysluna í huga, en svo er maður að heyra að það sé töluvert til af birgðum af saltfiski meðal annars í Noregi og víðar, sem menn héldu að myndi seljast hraðar og fyrr, en það virðist ekki alveg hafa gengið eftir. Við erum þokkalega brattir þrátt fyrir allt saman. Það er víða þungt hljóð á mörkuðum. Okkar kúnnar hafa verið að bregðast við með því að beina afurðum meira inn í smásöluna [eins og gerðist í vor þegar sala í smásölu sjávarafurða jókst þegar samdráttur varð í sölu til veitingahúsa]. Sem betur fer þarf fólk að borða og þá þurfum við að hafa góðan fisk til að bjóða því.“ Þá segir framkvæmdastjórinn mik- ilvægan þátt í að takast á við þær áskoranir sem eru framundan vera mannauðinn. „Það eru spennandi tímar framundan en það er alltaf ein- hver óvissa, en hér er gott starfsfólk í vinnslunum og góðir sjómenn – við er- um með þrjá báta á fullu. Þó það komi kannski upp einhverjir hnökrar er þetta allt mjög öflugt fólk sem leysir úr málunum. Mörg búin að vera starf- andi í mörg ár og með mikla reynslu, þau hafa séð erfiða og bjarta tíma í þessu.“ Hann útskýrir að tekið hafi verið upp sérstakt verklag til að gæta sóttvarna og aðkoma í starfstöðvarnar hafi verið takmörkuð. „Við vonum bara að veiran komi ekki til Húsavík- ur.“ Kominn á gólfið Gunnar kveðst þekkja sjávar- útvegsgeirann vel þrátt fyrir að hann komi af mölinni. „Það skemmtilega við þetta er að ég byrjaði í sjávarútvegi 1996 í Sölumiðstöð hraðfrystihúsa og var þar nokkur ár. Síðan var ég nátt- úrlega í fjármálaiðnaðinum að vinna að fjármálum fyrir sjávarútveginn og þekki inn á greinina, en nú er maður Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is G unnar kveðst alls ekki sjá eftir ákvörðuninni. „Gunnlaugur [Karl Hreinsson, eigandi GPG] bauð mér þetta starf eftir að Páll [Kristjánsson] færði sig um set, þá bauð hann mér þetta og mað- ur stökk á þetta. Gaman að fara í eitthvað nýtt og gott að búa hérna,“ segir Gunnar. „Það sem kom mér á óvart var að erlendu markaðirnir voru líflegri en maður hélt,“ segir Gunnar. Hann segir það sé farið að hægja aðeins á mörkuðum nú, eftir að fregnir fóru að berast af frekari útbreiðslu kór- ónuveirufaraldursins. „Það er farið að loka veitingastöðum víða aftur og farið að herða aðgerðir, þannig að það er óvissa tengd því. Hins vegar erum við líka að vinna léttsöltuð flök á Raufarhöfn og þau eru að rúlla reglulega út á markaðinn. Í þurrk- aða fisknum fer hann reglulega út til Nígeríu. Síðan er það saltfisk- urinn sem við erum að vinna einnig núna inn á Ítalíu og Spán, það er þyngri staða þar en oft áður á haust- in og helsta ástæðan er að Covid sé að ýkja þetta, eins og nýlegar fréttir frá Barcelóna segja okkur þar sem ákveðið var að loka öllum veit- ingastöðum.“ kominn á gólfið. Í morgun var verk- stjórinn veikur og þá þurfti maður að hlaupa hérna niður í vinnsluna og koma henni í gang,“ segir Gunnar og hlær. „Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi. Það er margt að ger- ast fyrir nýjan mann. Maður vissi nú alltaf að þetta væri mjög lifandi grein og skemmtileg.“ Þá segir hann allt aðra upplifun að vera með beina aðkomu að verðmæt- unum sem verið er að skapa. „Maður áttar sig ekki sjálfkrafa á því hvað það eru mikil verðmæti í einum fiski. Þetta eru fleiri þúsundkallar og það þarf að passa upp á það að meðhöndla hvern fisk vel. Núna snýst einmitt allt um að auka stöðugt öll gæði alveg frá veiðum og í gegnum vinnsluna til að auka sölulíkur á afurðinni.“ Það er ýmislegt sem kemur á óvart þegar maður kynnist aðstæðum betur að sögn Gunnars. „Það sem meðal annars hefur verið skrýtið fyrir svona aðkomumann eins og mig er að upp- götva að það er enginn byggðakvóti á Húsavík. Af því að við fórum yfir tvö þúsund manna markið í íbúafjölda var fjögur til fimm hundruð tonna byggðakvóti bara tekinn í burtu á sín- um tíma.“ Telur hann einmitt ástæðu núna til þess að skoða hvort hægt sé að ráð- stafa auknum kvóta til svæðisins til að styrkja atvinnustigið. Bendir Gunnar á að heldur lítil starfsemi sé á Bakka og að verulegur samdráttur hafi orðið í ferðaþjónustu. „Öll umsvif í bænum hafa minnkað mjög mikið. Mér finnst þurfa að bregðast við með einhverri aðstoð.“ Styrkja heimabyggð Það er vissulega ákveðin áskorun að stýra fyrirtæki sem er með starfsemi á fleiri stöðum að sögn Gunnars og kveðst hann reglulega koma við á starfsstöðvum fyrirtækisins, en sem betur fer er hægt að nýta fjarskipta- tæknina til að leysa úr málum og tryggja samskiptin enda vegalengd- irnar ekki sambærilegar og innan höf- uðborgarsvæðisins. „Það eru 150 kíló- metrar inn á Raufarhöfn. Maður hoppar ekki upp í bíl til að taka einn fund,“ segir Gunnar og hlær en GPG er með starfsstöðvar á Húsavík, Rauf- arhöfn og á Bakkafirði. Hann segir bjart framundan þrátt fyrir óvissu á mörkuðum. „Við erum búin að vera að byggja upp fína vinnslu á Raufarhöfn og höldum því áfram. Á Bakkafirði erum við búin að vera að fjárfesta töluvert undanfarið og ætlum að byggja það enn frekar upp. Bakkafjörður er hluti af átakinu brothættar byggðir og við ætlum að gera okkar besta í því að styrkja byggðina með öflugri vinnslu og út- gerð á svæðinu. Síðan á Húsavík erum við að keyra saltfiskvinnsluna og þurrkunina eins mikið og við getum. Við viljum halda áfram að byggja fyrirtækið upp og styrkja heima- byggð.“ Von er á nýjum línubát frá Vík- ingbátum um áramótin, að sögn Gunnars. Nýi báturinn er talinn skila meiri veiðigetu og betri aflameðferð og mun þetta auka hráefnisöryggi. „Allt þetta vonumst við til að styrki okkar rekstur og byggðir á hverjum stað fyrir sig sem og styrki heildina hjá okkur í GPG Seafood.“ Mikilvægt að búa yfir öflugum mannauði Ljósmyndir/Hafþór Hreiðarsson Það kom mörgum sem þekkja Gunnar Gíslason á óvart að hann skyldi flytja ásamt fjölskyldu sinni til Húsavíkur eftir að hafa búið alla ævi á Seltjarnarnesi, en hann var nýverið ráðinn í starf framkvæmda- stjóra GPG Seafood og tók til starfa við upphaf nýs fiskveiðiárs, fyrsta september. Gunnar Gíslason segir stefnt að því að styrkja fyrirtækið enn frekar og efla heimabyggð. 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.