Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Landhelgisgæslan í þröngri stöðu  Ákvörðun ekki verið tekin um lög gegn verkfalli flugvirkja  Leita allra leiða til að tryggja öryggi  Uppsöfnuð viðhaldsþörf  Ráðherra segir lög um verkfallsrétt flugvirkja ekki samrýmast verkfalli Ragnhildur Þrastardóttir Veronika Steinunn Magnúsdóttir Allra leiða verður leitað til að tryggja öryggi, sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmála- ráðherra er hún var spurð í gær hvort til greina kæmi að leita liðsauka hjá Dönum, ef engar þyrl- ur Landhelgisgæslunnar yrðu til taks sökum verkfalls flugvirkja. Staðan í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæsl- unnar var rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í gær en ekkert samkomulag náðist á fundi samninga- nefnda flugvirkja og ríkisins hjá ríkissáttasemj- ara í fyrradag. Frá og með miðnætti í kvöld verður engin þyrla til taks hjá Landhelg- isgæslunni vegna viðhalds TF-GRO yfir tvo daga, fimmtudag og föstudag, óháð því hvernig gengur í kjaravið- ræðum. Að loknum ríkisstjórnar- fundi í gær sagði Áslaug í samtali við mbl.is að ekki væri hægt að tryggja að þyrl- an yrði starfandi í vikunni vegna uppsafnaðrar viðhalds- þarfar. Forgangsverkefni væri að tryggja að ör- yggisþjónusta Landhelgisgæslunnar væri virk. Sagði Áslaug að nokkrir kostir kæmu til greina til þess að tryggja öryggi en staðan væri þröng, þar sem Landhelgisgæslan hefði sinnt mikilvægri þyrlubjörgun á Norður-Atlantshafi og tryggja þyrfti að svo yrði áfram. „Við megum ekki tefla öryggi almennings eða sjófarenda í tvísýnu með því að þyrlurnar séu ekki virkar vegna verkfalls. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um að stíga inn í enda er það mik- ið og alvarlegt inngrip og verður ekki gert nema brýna nauðsyn beri til. Við bindum enn vonir við að það náist samningar,“ segir Áslaug. Þá bendir hún á að lög um verkfallsrétt flug- virkja samrýmist verkfallinu ekki nægilega vel. „Þegar lögin um verkfallsrétt þessara flug- virkja eru skoðuð þá er verkfallið ósamrýmanlegt markmiði löggjafans þegar þau lög voru sett þar sem kveðið var á um það að verkfallsréttur ætti ekki að vera fyrir þá sem gætu komið í veg fyrir eðlilega björgun og þjónustu Landhelgisgæsl- unnar.“ Eina flughæfa þyrla Gæslunnar var kölluð til síðdegis í gær að beiðni lögreglunnar á Suður- landi og síðan aftur á sjötta tímanum vegna vinnuslyss í sama umdæmi. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarð- eðlisfræði, gagnrýndi ástandið í pistli á Facebook- síðu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands í gær. Óásættanlegt væri að skipulag mála væri með þeim hætti að grundvallarþættir í öryggiskerfi landsins væru undirorpnir verkfalli. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er brjálað að gera,“ sagði Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur, í gær. Þá var 230 úthlutað fjölbreyttum mat og öðrum nauðsynjum. Von var á ámóta mörgum eða fleirum í út- hlutunina í dag. Einnig var úthlutað í síðustu viku en Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur starfar allt árið. Anna sagði að ásóknin hafi aukist. Nú er Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að undirbúa úthlutanir í desember. „Við verðum að hafa enn fleiri daga í desember en við erum vanar að hafa vegna samkomutakmarkan- anna,“ sagði Anna. Fólk sækir um aðstoð á heimasíðu Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur (maedur.is) og skráir þar nafn, kennitölu og tölvu- póstfang. Mæðrastyrksnefnd sendir svo upplýsingar í tölvupósti um hve- nær viðkomandi getur komið og sótt matarúthlutunina. „Þetta er fólk á öllum aldri, alveg frá 18 ára og upp úr. Það kemur margt fullorðið fólk,“ sagði Anna. Henni hefur komið á óvart hve margt hefur komið af ungu fólki, bæði ein- staklingum og fjölskyldufólki. Aukin aðsókn á árinu „Við höfum fundið almennt fyrir aukinni aðsókn síðustu mánuði mið- að við sömu mánuði í fyrra,“ sagði Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. Hjálpar- starfið veitir aðstoð í formi inneign- arkorta í verslunum eða með inn- leggi á bankakort. Nú er verið að taka við umsóknum um jólaaðstoð svo umfangið liggur ekki enn fyrir. Fólk er beðið að sækja um aðstoð á heimasíðunni (help.is). Sé það ekki mögulegt getur það komið fyrstu dagana í desember. Farið er yfir um- beðnar upplýsingar og svo eru um- sækjendum send kort eða þeir geta sótt þau. Stuðningur miðast við fjöl- skyldustærð og aðstæður. Taka hefur þurft tilliti til sam- komutakmarkana í faraldrinum og er úthlutuninni nú dreift á fleiri daga en áður í samráði við félagsráðgjafa Hjálparstarfs kirkjunnar. Hjálparstofnanir finna fyrir aukinni spurn eftir aðstoð  Úthlutunardögum fjölgað vegna samkomutakmarkana Sinfóníuhljómsveit Íslands og Daní- el Bjarnason hafa verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir hljómdisk sinn, Concurrence, í flokknum besti hljómsveitarflutningur. Þar að auki hefur Hildur Guðna- dóttir tónskáld, sem hlaut Grammy- verðlaun fyrr á þessu ári, aftur verið tilnefnd og nú til tvennra verðlauna, annars vegar fyrir tónlist sína við stórmyndina Jókerinn og hins vegar fyrir verkið „Bathroom dance“ úr sömu mynd. Aðstandendur verð- launanna tilkynntu þetta í gær. Á diskinum Concurrence flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands ný verk undir stjórn Daníels Bjarnasonar eftir fjögur íslensk tónskáld, þau Önnu Þorvaldsdóttur, Hauk Tóm- asson, Maríu Huld Markan Sigfús- dóttur og Pál Ragnar Pálsson. Ein- leikarar með hljómsveitinni eru Sælunn Þorsteinsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson. Diskurinn er annar í röðinni af þremur í samstarfi Sinfóníunnar og bandarísku útgáfunnar Sono Lum- inus, þar sem hljómsveitin flytur alls 14 ný íslensk hljómsveitarverk undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Occ- urrence, sem er lokadiskur þeirrar útgáfuraðar, er væntanlegur í jan- úar 2021. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur einu sinni áður verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitarflutning, árið 2009. Sinfónían tilnefnd til Grammy  Daníel og Hildur einnig tilnefnd Aðventuvagn Þjóðleikhússins var við Skógarbæ og skemmti heimilismönnum Hrafnistu í sinni fyrstu ferð í vetur í gær. Vagninn verður á ferð- inni með skemmtidagskrá í desember, þar sem hópur listamanna Þjóðleikhússins keyrir um á sérútbúnum bíl og skemmtir landsmönnum til þess að stytta þeim biðina þar til leikhúsið verður opnað á ný. Farandleikhópurinn heimsækir dval- arheimili, heimili eldri borgara og aðra staði þar sem fólk er innilokað vegna faraldursins. Fyrir utan húsin er flutt tuttugu mínútna skemmti- dagskrá sem yljar fólki á erfiðum tímum. Aðventuvagninn heimsækir einangraða hópa Morgunblaðið/Eggert Þjóðleikhúsið á faraldsfæti í aðdraganda jóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.