Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni. Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Umræður eru hafnar um nýjaneða mjög endurnýjaðan þjóð- arleikvang í Laugardal sem for- ráðamenn íþróttanna telja að sé fyr- ir löngu orðinn tímabær.    Pawel Bartoszek,forseti borgar- stjórnar, vill að aðrir þættir sem tengjast íþróttaiðkun og keppnisgreinum annars staðar í borginni séu frá upp- hafi teknir inn í myndina.    Taka má undir að sjálfsagt sé aðhorfa til annarra þátta sem eru á ferðinni og tengjast íþróttamann- virkjum, eins og þeirra sem Pawel nefnir og eru þá ekki tæmandi taldir.    Einhverjir kynnu að tortryggjaþað og segja það þekkta aðferð láta áhugamenn á sama sviði bítast um bitana. Slíkt hefði oft gefist yfir- völdum vel og tryggt að miklu síðar en ella væri í verkin ráðist.    En hitt liggur fyrir að fjármunireru takmarkaðir, ekki síst vegna fyrirhyggjuleysis borgaryf- irvalda.    Annað sem forseti borgarstjórnarnefnir til sögu eru þær for- sendur sem talsmenn þjóðar- leikvangs gefa sér um þær tekjur sem myndu að nokkru réttlæta að farið yrði í dýrari lausnir en ella.    Í rauninni má ætla að útspil, einsog það sem frá Pawel kom, sé til þess fallið að tryggja að endanleg ákvörðun um þetta mikilvæga mál verði reist á traustari grundvelli en ella væri.    Því ættu allir að geta fagnað. Pavel Bartoszek Spennandi verk og dýrt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Í dag hefst 16 daga átak gegn kyn- bundnu ofbeldi, jafnt hér á landi og á heimsvísu. Stendur átakið til 10. desember og er því ætlað að vekja athygli á þeirri staðreynd að ofbeldi gegn konum er útbreiddasta mann- réttindabrot í heiminum. Markmiðið er að hvetja til umræðu og vitund- arvakningar um að samfélagið standi saman gegn kynbundnu of- beldi og knýja á um afnám þess. Í ár beinist átakið að áhrifum Co- vid-19 á kynbundið ofbeldi. Sorop- timistaklúbbur Akureyrar, Zonta- klúbbur Akureyrar og Zonta- klúbburinn Þórunn hyrna eru á meðal þeirra sem kynnt hafa átakið. „Aðgerðir til að ná tökum á far- aldrinum valda félagslegri ein- angrun og spenna og álag eykst út af áhyggjum af heilsu, öryggi og fjár- hagslegri afkomu. Konur einangrast á heimilum með gerendum og eiga erfitt með að leita sér aðstoðar til að komast í burtu því stuðningskerfið er rofið. Þetta eru kjöraðstæður fyr- ir drottnun og ofbeldi fyrir luktum dyrum og skuggafaraldur faraldurs- ins,“ segir m.a. í tilkynningu um átakið. Bent er á að bæði konur og karlar verði fyrir kynbundnu ofbeldi en konur og stúlkur eru samt yfirgnæf- andi meirihluti þeirra sem verða fyr- ir slíku ofbeldi. „Það var áður um- borið í skjóli einkalífsins en er nú viðurkennt sem ein af verstu birting- armyndum kynjamisréttis. Kyn- bundnu ofbeldi er viðhaldið af fé- lagslegum viðmiðum og staðalímyndum sem mismuna á grundvelli kyns og veikja stöðu kvenna og stúlkna,“ segir enn frem- ur í tilkynningunni og vitnað til þess að SÞ hvetji ríkisstjórnir heims til að hafa aðgerðir gegn kynbundnu of- beldi sem lykilþátt í viðbragðsáætl- unum sínum gegn Covid-19. 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi  Átakið beinist að áhrifum Covid-19  Útbreiddasta mannréttindabrotið Jón Eiríksson í Fagra- nesi á Reykjaströnd í Skagafirði, gjarnan nefndur Drangeyjar- jarl, lést á hjúkrunar- deild Heilbrigðisstofn- unar Norðurlands á Sauðárkróki í fyrri- nótt, 91 árs að aldri. Jón var fæddur 8. jan- úar 1929 á Grófargili í Skagafirði, sonur hjónanna Eiríks Sig- mundssonar og Birnu Jónsdóttur. Fjögurra ára gamall flutti hann með foreldrum sínum að Reykjum á Reykjaströnd og fáum árum síðar að Fagranesi. Þar átti hann heima allt upp frá því. Ungur fór Jón til náms við Hér- aðsskólann að Laugarvatni en sneri að námi þar loknu aftur á heima- slóðir sínar nyrðra. Saman keyptu Jón og Sigmundur bróðir hans Fagranesjörðina árið 1949, sem Jón eignaðist síðar alla. Þar rak hann lengi blandað bú, allstórt á mæli- kvarða fyrri tíðar. Hann gegndi ennfremur margvíslegum trún- aðarstörfum í sínu samfélagi, sat í hreppsnefnd Skarðshrepps, héraðs- nefnd og mætti þá fleira tiltaka. Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Viggósdóttir (f. 1940) og eignuðust þau fimm börn. Þau eru Eiríkur, Sigurjón, Viggó, Sigmundur og Alda. Seinni kona Jóns var Hólmfríður Heiðbjört Agnars- dóttir (1944-1997). Börn þeirra eru Sigfús Agnar, Björn Sig- urður, Ásta Birna, Brynjólfur Þór og Jón Kolbeinn. Jón byrjaði snemma að sækja í Drangey, seig þar í björg eftir eggjum og veiddi fugl á fleka í marga áratugi. Það var svo árið 1990 sem hann byrjaði með skipulagðar ferðir í Drangey, en þar og við Reyki á Reykjaströnd kom hann upp bryggjustúf og lendingaraðstöðu. Á næstu árum fór hann með þúsundir ferðamanna í eyna og var af því gjarnan í máli fólks nefndur Jón Drangeyjarjarl. Ferðir þessar skópu honum nafn og var hann út- nefndur ferðafrömuður ársins 2007 af útgáfufélaginu Heimi. Auk þess var Jón þekktur sem hagyrðingur og átti leikandi létt með vísnagerð. Andlát Jón Eiríksson Drangeyjarjarl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.