Morgunblaðið - 25.11.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 25.11.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Bæjarlind 4, Sími: 510 7900, www.fastlind.is Byggingaraðili: Hönnun: LIND FASTEIGNASALA KYNNIR NÝJAR OG GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR VIÐ SKÓGARVEG 6-8 Í FOSSVOGSDALNUM Í REYKJAVÍK GLÆSILEGAR NÝJAR ÍBÚÐIR Vandaðar innréttingar, myndavéladyrasími, gólfhiti. Sér þvottahús í flestum íbúðum. Öll hjónaherbergi með fataherbergi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en flísar verða á votrýmum. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Timbur-álgluggar. Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Stærð: 73,7-163,9 m2 Herbergi: 2-4 Verð frá: 47.900.000 kr. Afhending er áætluð í lok árs 2021 og vor 2022. LÁRA ÞYRI EGGERTSDÓTTIR Löggiltur fasteignasali B.A. í lögfræði 899 3335 lara@fastlind.is Nánari upplýsingar veitir: Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Eftir þessa tvo fundi tel ég að Flat- eyringar séu rólegir yfir vetrinum. Það verða mögulega rýmingar en fólk veit þá hvernig það á að bera sig að. Hér er verið að vinna að und- irbúningi snjóflóðavarna. Vonandi fáum við tímalínu um framkvæmdir sem fyrst svo fólk geti áttað sig á stöðunni,“ segir Helena Jónsdóttir, verkefnisstjóri nýsköpunar og þró- unar á Flateyri. Hafnarstjóri Ísa- fjarðarbæjar áætlar að tjón hafn- arinnar, einstaklinga og trygginga- félaga vegna snjóflóðsins í janúar nemi eitt til tvö hundruð milljónum króna. Haldnir hafa verið tveir íbúa- fundir um snjóflóðamál á Flateyri að undanförnu. Sá fyrri var á vegum ofanflóðasjóðs. Þar voru kynntar at- huganir á snjóflóðavarnargörðunum og mögulegum endurbótum á þeim. Einnig uppfært hættumat og aukið eftirlit. Kom fram að hönnuðir snjó- flóðavarnargarðanna eru að end- urhanna þá í ljósi reynslunnar í jan- úar þegar flóð féllu yfir garðana og á íbúðarhús og runnu í höfnina. Mikið tjón varð þar. Ekki varð manntjón í snjóflóðunum nú. Undirbúningur tekur tíma Á seinni fundinum sem Ísafjarð- arbær stóð fyrir í fyrrakvöld fóru fulltrúar viðbragðsaðila yfir aðgerð- ir sem gripið hefur verið til, svo sem um uppfært hættumat og rýmingar- áætlun, og Vegagerðin kynnti vinnu við athuganir á aðgerðum vegna snjóflóðahættu á Flateyrarvegi. Veginum var lokað oft síðastliðinn vetur vegna snjóflóða og snjóflóða- hættu. Helena segir að Vegagerðin sé vel á veg komin með að velja lausnir en þegar tillögur liggja fyrir þurfi að fá fjárveitingar til fram- kvæmda. Helena segir að snjóflóðaeftirlit hafi mjög verið bætt á Flateyri þannig að vöktun verði betri í vetur en verið hefur. Segir hún að góð vinna hafi verið unnin á ýmsum sviðum en vissulega séu það von- brigði að ekki hafi verið hægt að veita upplýsingar um það hvenær framkvæmdir við varnir geti hafist. Upplýst hafi verið að eftir að ákveð- ið hefur verið hvaða leiðir verði farnar í vörnum taki eitt og hálft ár að undirbúa verklegar fram- kvæmdir. Verja þarf höfnina Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarhafna, hefur tekið saman yfirlit um tjón hafn- arinnar vegna snjóflóðanna. Það hefur numið rúmum 19 milljónum króna, án virðisaukaskatts, og greiddi náttúruhamfaratrygg- ingasjóður rúmar níu milljónir af því. Hann getur þess í skýrslu sinni að heildartjónið sé mun meira þegar talið er með tjón sem einstaklingar, fyrirtæki og tryggingafélög þeirra hafa orðið fyrir vegna snóflóðsins sem féll á höfnina. Áætlar hann að það getið verið á bilinu eitt til tvö hundruð milljónir króna. Hafnarstjórinn leggur áherslu á að byggður verði varnargarður til að koma í veg fyrir að snjóflóð geti fallið í höfnina og vísar til sam- þykktar hafnarstjórnar um það efni. Þar segir að búa verði svo um hnút- ana að atvinnutæki og einstaklingar geti áhyggjulaust verið með eigur sínar í og á höfninni. Fáum vonandi tímalínu á varnir  Verkefnastjóri telur að Flateyringar séu rólegir yfir vetrinum  Vöktun snjóflóðahættu hafi verið aukin stórlega  Hafnarstjórinn áætlar að tjón við höfnina hafi numið á annað hundrað milljónum Morgunblaðið/RAX Flateyri Aðkoman á hafnarsvæðinu á Flateyri var nöturleg eftir snjóflóðin í janúar. Fjöldi báta skemmdist. Helena Jónsdóttir Guðmundur M. Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.