Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Tangar, Fljótsdalshérað, ásamt tilheyrandi fylgifé og hlutdeild í sameign og lóðarréttindum, fnr. 217-2459, þingl. eig. Nesnúpur ehf, gerðarbeiðandi Hýsi - Merkúr hf., mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 14:00. Bakkagerði, Fljótsdalshérað, ásamt tilheyrandi fylgifé og hlutdeild í sameign og lóðaréttindum., fnr. 217-2184, þingl. eig. Nesnúpur ehf, gerðarbeiðandi Hýsi - Merkúr hf., mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 15:00. Miðgarður 13, Fljótsdalshérað, fnr. 228-2492, þingl. eig. Sigurður Steinar Pálsson, gerðarbeiðendur Framtíðin lánasjóður hf. og Aur app ehf., mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 16:00. Sýslumaðurinn á Austurlandi 23. nóvember 2020 Tilkynningar Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 19. nóvember sl. að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 vegna vindorkugarðs í landi Garpsdals í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin felst í því að allt að 4,37 km2 landbúnaðarland er breytt í skilgreint iðnaðarsvæði til vindorunýtingar. Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð verða til sýnis í Stjórnsýsluhúsi Reykhólahrepps á Reykhólum og hjá Skipulagsstofnun, frá miðvikudeginum 25. nóvember til miðvikudagsins 20. janúar 2021. Skipulagsgögnin eru einnig á vefsíðu Reykhólahrepps www.reykholar.is. Athugasemdafrestur vegna ofangreindrar tillögu er til 20. janúar 2021 og skal athuga- semdum vinsamlegast skilað til skrifstofu Reykhólahrepps í Stjórnsýsluhúsinu við Maríutröð á Reykhólum eða með tölvupósti í netfangið: skipulag@dalir.is, merkt Garpsdalur-Breyting á Aðalskipulagi. Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi. Bækur Bækur til sölu Ljóðabók Jóns Þorlákssonar, Bægisá. Alfreð Flóki, teikningar, Um Grænland að fornu og nýju, Árbækur Espolíns 1. - 12. útg. Ævisaga Árna Þórarinssonar 1 - 6, Aldafar og örnefni í Önundarfirði, Gestur Vest- firðingur 1 - 5, Stjórnartíðindi 1885 til 2000, 130. bindi, Mann- talið 1703. Kollsvíkurætt, Ponzi 18. og 19. öldin, Fjallamenn, Hæstaréttardómar 1920 - 1960, 40. bindi, Þjóðsögur Jóns Árna- sonar. Kvennablaðið 1. - 4. ár, Bríet 1895, Ódáðahraun 1 - 3, Fritzner orðabók 1 - 4, Flateyjar- bók 1 - 4, Ferðabók Eggerts og Bjarna 1981, Íslenskir Sjávar- hættir 1 - 5, Sýslumannaævir 1 - 5, Tímrit Verkfræðinga Íslands 1 - 20 ár, Tímarit hins íslenska Bókmenntafélags 1 - 25, Ársskýrsla sambands íslenskra Rafveitnaa 1942 - 1963. Hín 1. - 44. árg., Skýrsla um Lands- hagi á Íslandi 1 - 5, Töllatungu- ætt 1 - 4, Síðasti musterisridd- arinn Parceval, Austantórur 1 - 3, Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn, Nína, Ferðabók Þ. TH., 1- 4, önnur útgáfa. Fólkð í firði- num 1 - 3, Ættir Austfirðinga 1 - 9, Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, Landfræðisaga Íslands 1 - 4, Lýsing Íslands 1 - 4, plús minn-ingarbók Þ. HT., Almanak hins Íslenska Bók- menntafélags 1875 - 2006, 33. bindi, Inn til fjalla 1 - 3, Fremra Hálsætt 1- 2, Kirkjuritið 1. - 23. árg., Bergsætt 1 - 3, V-Skafeftell- ingar 1 - 4. Uppl. í síma 898 9475 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílar Nýr Svartur Mitsubishi Outlander á Black Friday tilboði ! Vetrardekk og mottu sett fylgir. 5 ára ábyrgð. Flottasta typa. Verðtilboð kr. 5.690.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Smá- og raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Bústaðakirkja Við bjóðum upp á hressandi göngutúr frá Bústaða- kirkju um nær umhverfi kirkjunnar. Við hittumst safnaðarheimilis- megin og löbbum af stað kl. 13. Klæðum okkur eftir veðri og munum mannbroddana eða góða skó. Hlakka til að sjá ykkur, Hólmfríður djákni. Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri eru í samráði við leiðbeinendur. Kaffikrókurinn, handavinnan og samveran í dag er eingöngu fyrir íbúa Skólabrautar. Hámarksfjöldi 10 manns. Munum grímuskylduna og aðrar sóttvarnir. ✝ Margaret RossRitter Wolfe fæddist í William- sport, Pennsylv- aníu í Bandaríkj- unum, 18. júlí 1924. Hún lést 13. nóv. 2020. Foreldrar henn- ar voru Charles Daniel Wolfe kaup- sýslumaður, f. 1. apríl 1904, og Car- oline Ritter Wolfe, bóndi og rit- ari, f. 11. jan. 1906, d. 11. jan. 1990. Bróðir Margaretar samfeðra var Daniel C. Wolfe, f. 26. sept. 1926, d. 8. jan. 2001, giftur June Marley, f. 20. jan. 1929 og áttu þau sjö börn. Bróðir Margaretar sammæðra var William W. Faust, f. 11. júní 1939, giftur Barböru Faust, f. 1. apríl 1948. Margaret giftist 23. júní 1946 Bent Hilman Sveini Scheving Thorsteinsson, f. 12. jan. 1922, d. 7. jan. 2015. Foreldrar Guð- rún Sveinsdóttir, f. 1. mars 1892, d. 18. ág. 1967, frá Hrauni á Skaga og Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, f. 11. feb. 1890, d. 23. apríl 1971, lyfsali. Bent og Margaret eignuðust sjö börn: 1) Gunnar Bent, f. 13. apríl 1947, börn: a) Bent Pétur, f. 1972, börn: Úlfur Brúnó, f. frá Pennsylvania Hospital Scho- ol of Nursing árið 1945 og sér- námi í skurðstofuhjúkrun og svæfingum frá University of Pennsylvania árið 1946. Eftir úrskrift hóf Margaret störf barnaspítala í Philadelphiu. Margaret flutti til Íslands 1948 og starfaði lengst af á Landspítalanum og síðar Landa- kotsspítala fram til ársins 1986 auk þess að sinna heimili og börnum. Margaret var í kven- félagi Dómkirkjunnar og félagi í Oddfellowreglunni. Hún las mikið og hafði gaman af alls kyns handverki og handavinnu. Naut þess mikið að fara í leikhús og í óperuna og hlusta á klass- íska tónlist. Margaret og Bent höfðu alla tíð mikið yndi af ferðalögum, útivist, golfi og sundi. Bent og Margaret stofn- uðu ýmsa styrktarsjóði til rann- sókna, m.a. á sviði lyfja-, lækn- isfræði og félagsvísinda. Útför Margaretar fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 25. nóvember 2020, kl. 11. Vegna fjöldatakmarkana verð- ur aðeins nánasta fjölskylda við- stödd en streymt verður frá at- höfninni á: https://youtu.be/l-wKMIncp9Y Virkan hlekk á streymi má einnig nálgast á: https:/www.mbl.is/andlat 2003, Aría Alex- andra, f. 2013 og Óskar, f. 2019, b) Margrét, f. 1975, börn: Móeiður Svala, f. 1997, Elís Móses, f. 2011, c) Gunnar, f. 1983. 2) Súsan Auður, f. 1. sept. 1950, d. 15. ág. 2014. Dætur: a) Vala, f. 1984, synir: Sylvester, f. 2014 og Sixten, f. 2017, b) Tenna, f. 1986, börn: Nellie, f. 2015 og Pelle, f. 2018. 3) Carole Ann, f. 22. mars 1952, sonur: Brjánn, f. 1980, börn: Gabríel Rökkvi, f. 1997, Saga Ann, f. 2014 og Lovísa Ann, f. 2019. 4) Guðrún Margrét, f. 28. mars 1958, dótt- ir: Margrét Rún, f. 1995. 5) Ósk Sólveig, f. 20. júlí 1960, börn: a) Páll, f. 1980, börn: Ástmar Óli, f. 2000, Sara, f. 2008 og Finnur f. 2018, b) Súsan Ósk, f. 1988, son- ur: Óliver, f. 2018, c) Gísli Valur, f. 1990, d) Þórður Páll, f. 1992, d. 1992. 6) Þorsteinn, f. 26. júlí 1961, synir: a) Atli Bent, f. 1984, b) Benedikt Myroslav, f. 1993, c) Patrick Jens, f. 1997. 7) Ástríður Þóra, f. 16. ág. 1970, gift Karli Trausta Einarssyni. Margaret ólst upp í Williams- port og á bóndabýli fjölskyld- unnar. Hún lauk námi í hjúkrun Mig langar að minnast móður minnar, Margaret, sem var alltaf svo góðhjörtuð og hjálpsöm. Sem barn leitaði ég oftast til hennar. Það er mér sérstaklega minnis- stætt hversu viðkvæm hún var. Eitt sinn þegar átti sér stað árekstur fyrir utan heimili okkar á Öldugötu 17 hljóp hún út grátandi með fleiri en eitt handklæði og annað til að reyna að veita þeim slösuðu fyrstu hjálp. Hún fann ævinlega til með fólki og vildi ávallt hjálpa, hún vildi ekkert óréttlæti og reyndi ævinlega að gera öllum vel. Hún var hreinskil- in og sagði einfaldlega það sem henni fannst. Ég hef aldrei haft neitt vit á saumaskap, en mikið óskaplega gat hún saumað af vettlingum, sokkum og púðum og áklæði utan á stóla og hvaðeina. Í dag held ég upp á allt það sem mamma saum- aði. Hún móðir mín átti það til að elda eftir amerískum uppskriftum eins og t.d. muffins og ameríska snúða. Þessir snúðar þóttu mjög góðir, og nokkrir vinir mínir komu reyndar sérstaklega í heimsókn til að fá svona snúða! Hún hafði mörg önnur áhugamál eins og t.d. bók- menntir, svo og tók þátt í ýmsum félagsstörfum. Ég er henni mjög þakklátur fyrir allt það sem hún gerði fyrir mig og syni mína, og á hún þakkir skilið fyrir það. Megi Guð blessa minningu hennar. Þorsteinn Sch. Thorsteinsson. Ég heyri hlýjan hlátur dauft í gegnum veggi og seinni tíma bíl- ferðir nálægt Öldugötu. Minning- arnar þaðan eru fáar og fennt hef- ur yfir margar þeirra. Síðustu daga hafa þó nokkrar rifjast upp, þótt ég hafi verið mjög ungur. Ég sé skuggann af þér seinna ljóslif- andi í Efstaleiti gegnum eldhús- gluggann á aðfangadag. Nú heyri ég vel í þér. Klukkan er bara fimm en það er allt á fullu. Þú gefur þér samt tíma til að stoppa og taka á móti mér með þínu einstaka brosi og hlýju sem umlék þig alltaf. Ég finn strax hvað ég er velkominn, og ég finn hvað þér annt um að ég finni það. Ég sé glitta í ömmusnúð út undan mér og get ekki beðið. Áttaði mig ekki á því fyrr en ég átti börn sjálfur hversu mikil vinna hefur örugglega verið fyrir þig á svona stundum. En ekki bara af því ég var barn og/eða barnlaus sjálfur. Ástæðan var sú að þú sýndir aldrei bug á sjálfri þér. Þú raunverulega naust þess að hafa okkur hjá þér og láta öll- um líða vel. Sjálflaus gestrisni og þjónustulund sem hvaða fimm stjörnu hótel í heimi yrði stolt af. Þú kunnir svo vel að gefa öllum af þér. Enginn fór frá ömmu og afa án þess að finnast hann raunveru- lega skipta máli. Þú sást til þess, og það skipti mig persónulega meira máli en ég get útskýrt hér. Það var tómlegt í Hafnarfirð- inum í fyrstu eftir að afi kvaddi, en fljótlega hætti ég að leita að því sem var farið. Samtölum okkar fækkaði eftir því sem árin liðu, en urðu þeim mun dýrmætari fyrir vikið. Erfiðisvinnu þinni var lokið, en þú varst ekki lengi að fylla hús- ið aftur af hlátri og hlýju. Ég hafði svo innilega gaman af því að við gáfum okkur alltaf smá tíma í inn- lenda og bandaríska pólitík ásamt trúmálum. Ég mun sakna þessara samtala svo mikið. Ég hefði viljað spjalla mun meira við þig um kosningarnar í Bandaríkjunum. Það er svo margt sem hægt er að gera betur og breyta þegar maður horfir til baka en slíkar hugsanir hafa ekkert vægi. Þakklætið sem þú kenndir mér vegur hins vegar þungt. Það var þér líkt að hafa áhyggjur af okkur á dánarbeði þínum, og vera þakklát fyrir að við værum hjá þér. En í dag er ég þakklátur fyrir þig. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir hvað þér tókst vel að ala upp mömmu mína. Án hennar, eins og hún er vegna þín, væri ég ekkert. Ég er þakklátur fyrir hversu góð- an tíma þið áttuð saman upp á síð- kastið. Ég er þakklátur fyrir að Saga Ann mín var mikið með og kynntist þér vel. Hún var auðvitað skírð í höfuðið á mömmu, sem var svo reyndar skírð í höfðið á gam- alli vinkonu þinni. Takk fyrir að segja mér söguna á bak við það allt saman. Ég er þakklátur fyrir hversu alla tíð góð og forvitin um Gabríel minn þú varst. Ég er þakklátur fyrir faðmlagið sem þú sendir Vísu Ann minni kvöldið sem ég kvaddi þig. Ég er líka þakklátur fyrir að hafa fengið til baka ljóð og kerti sem ég gaf þér. Meira en 20 ár síðan, en þú pass- aðir svo vel upp á allt. Ég ætla að kveikja á kertinu fyrir þig á aðventunni með börn- unum mínum og hugsa til þín. Góða nótt elsku brosmilda, hlýja, stóra og sterka amma mín. Brjánn Árnason. Margaret Ross Scheving Thorsteinsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÖRLYGS HÁLFDANARSONAR bókaútgefanda, Jaðarleiti 4. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns og starfsfólki Landspítala í Fossvogi og Grensás fyrir hlýhug og góða umönnun. Þóra Þorgeirsdóttir Þorgeir Örlygsson Iðunn Reykdal Hálfdan Örlygsson Guðbjörg Geirsdóttir Arnþór Örlygsson barnabörn og barnabarnabörn Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.