Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 20

Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 30 ára Rúna Dís ólst upp á Akranesi og keypti fyrir nokkrum árum æskuheimilið og býr þar nú. Hún vinnur í Norðurál. Helstu áhugamálin eru fjöl- skylduferðalög, heimil- ishundarnir og sjálfsvarnartækni sem hún æfir hjá Tý. Maki: Björn Árnason, f. 1990, vélvirki og vinnur í Norðurál. Dætur: Sóldögg Rún Ástþórsd., f. 2011, Ástrós Tara Ástþórsd., f. 2013, og Ísold Nótt Björnsdóttir, f. 2016. Foreldrar: Sigurey Guðrún Lúðvíks- dóttir, f. 1957, d. 2009, og Þorsteinn Jó- hannesson, f. 1953, vinnur í Vélsmiðjunni Norma í Vogum á Vatnsleysuströnd. Rúna Dís Þorsteinsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það skiptir öllu í samstarfi að menn virði skoðanir hver annars og nái samkomulagi um það sem máli skiptir. Að öðrum kosti talarðu fyrir daufum eyrum. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú er tímabært að hefjast handa við verkefni sem þú hefur lengi borið fyrir brjósti. Ekki hafa áhyggjur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft á meiri hvíld og einveru að halda. Heimurinn uppfyllir óskir þínar ef þú tjáir þær skilmerkilega. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Verðlaunin lenda alltaf hjá þeim sem eru ekki hræddir við að taka við þeim. Nú þarf að taka af skarið og komast að niðurstöðu í peningamálum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það getur verið erfitt að hemja til- finningarnar þegar rödd hjartans hljómar sterkt. Bíddu svo rólegur eftir úrslitunum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú átt auðvelt með að skilja aðra og því er þetta góður tími til að jafna deil- ur við gamlan vin. Enginn er fullkominn og heimurinn ferst ekki þótt eitthvað þurfi að sitja á hakanum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Kannski finnst þér eins og allur heim- urinn reiði sig á þig. Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar náttúrunnar með þínum nánustu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú gætir hitt einhvern á óvæntum vettvangi sem verður vinur þinn eða jafnvel nánari. Vertu opinn fyrir nýjum tækifærum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur mikinn sannfæring- arkraft og átt því auðvelt með að fá aðra á þitt band. Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skilning og umburðarlyndi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Njóttu heppni þinnar með góðri samvisku því þú átt ávinninginn skilið. Daginn ættirðu að nota í tilraunastarfs- semi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Finnist þér þú vera sam- bandslaus og þreyttur er kominn tími til að slaka á og hlusta á líkamann. Flas er ekki til fagnaðar og þér liggur ekki á. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur hagað málum svo, að allt virðist falla í réttar skorður. Sýndu því skoðunum annarra þá virðingu sem þú vilt að menn sýni þér. Fjölskylda Eiginmaður Höllu var Sveinn Þór- arinsson bóndi, f. 6.9. 1931, d. 11.11. 2013. Foreldrar hans voru hjónin Þórarinn Auðunsson, bóndi í Fag- urhlíð V-Skaft og Láguhlíð (Hlíð) Mosfellssveit, f. 15.5. 1892, d. 24.7. 1957 og Elín Guðbjörg Sveinsdóttir, húsfreyja í Fagurhlíð V-Skaft og Láguhlíð, f. 7.7. 1898, d. 29.12. 1993. Börn Höllu og Sveins eru 1) Þór- arinn, f. 3.8. 1957, prófessor við Há- skóla Íslands, kvæntur Kristjönu Gunnarsdóttur, f. 1959, deildarstjóra hjá velferðarsviði Reykjavík- urborgar. Þau eru búsett í Hafn- arfirði og börn þeirra eru: leikstjórn Eyvindar Er- lendsonar. Hún söng lengi í Söngkór Vill- ingaholtskirkju og Hörpukórnum á Selfossi og gekk í Kvenfélag Vill- ingaholtshrepps fljótlega eftir að hún flutti í Fló- ann. Hún varð formaður félagsins á árunum 1976 til 1982 og formaður stjórnar Sambands sunnlenskra kvenna (SSK) á árunum 1981 til 1986. Hún sat einnig í stjórn Kvenfélaga- sambands Íslands (KÍ) sem gjaldkeri árin 1991 til 1997. Á vegum KÍ fékk hún tækifæri til að ferðast víða um heim, m.a. til Kína í boði kín- verskra kvennasamtaka og til Suð- ur-Afríku á fund ACWW (Alþjóða- samband dreifbýliskvenna). Halla er heiðursfélagi bæði hjá SSK og KÍ. Um tíma tók Halla þátt í störfum fyrir Framsóknarflokkinn. Hún var m.a. um skeið í ritnefnd fyrir Þjóðólf sem samtök Framsóknarfélaganna í Suðurlandskjördæmi gáfu út og hún tók sæti á framboðslistum framsókn- armanna til Alþingis vorið 1987 og til Búnaðarþings árið 1990. Afkomendur Höllu eru nú orðnir alls 43. Hún eignaðist fjögur börn sem hafa fært henni 13 barnabörn og 26 barnabarnabörn. H alla Aðalsteinsdóttir fæddist 25. nóvember 1935 í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. For- eldrar hennar fluttu vestur árinu áður með þrjú eldri systkini Höllu. Aðalsteinn faðir henn- ar vann að stofnun Reykjanesskóla og var fyrsti skólastjóri skólans árið 1934. Þegar Halla er níu ára flytur fjölskyldan suður. Hún gekk í skóla í Reykjavík og Kópavogi en lýkur sinni barnaskólagöngu á Brúarlandi í Mosfellssveit. Hún er síðan tvo vetur í Kvennaskóla í Reykjavík og útskrif- ast þaðan vorið 1954. Veturinn eftir fer hún í Lýðháskóla í Þýskalandi. Þegar hún kemur heim aftur, sum- arið 1955, fer hún að vinna á síman- um á Brúarlandi í Mosfellssveit. Árið 1956 giftist hún Sveini Þórarinssyni og þau taka við búi foreldra hans um áramótin 1957 og búa þar með kýr, kindur og hænur og rækta rófur og kartöflur. Þegar þéttbýlið fór að þrengja að búskap í Mosfellssveitinni árið 1969 flytja þau með fjögur börn að Kolsholti 1 í Flóanum í gamla Vill- ingaholtshreppnum. Sveinn fellur frá árið 2013 og í kjölfar þess flytur Halla á Selfoss, þar sem hún býr núna. Með búskapnum fór Halla að kenna við Villingaholtskóla árið 1984 og átti það að vera til bráðabrigða því tilfinnanlega vantaði kennara. Hún ílentist hins vegar í kennarastarfinu og kenndi bæði við Villingaholtsskóla og Þingborgarskóla í fullu starfi sem leiðbeinandi en síðan sem kennari. Haustið 1997 hóf hún nám við Kenn- araskóla Íslands í fjarkennslu, með kennslunni, og lauk þar námi með kennsluréttindum í grunnskóla í árs- byrjun 2001. Frá árinu 2004 kenndi hún við Flóaskóla, sem var samein- aður skóli Villingaholts- og Þingborg- arskóla og Gaulverjaskóla. Síðustu árin sá hún um forfallakennslu við Flóaskóla, en hún lét af störfum vorið 2007. Halla tók virkan þátt í ýmiss konar félagsstarfsemi. Ung tók hún þátt í leiklistarstarfi Ungmennafélagsins Aftureldingar í Mosfellssveit. Vet- urinn 1970 tók hún þátt í leiklist- arsýningu Ungmennfélaganna í Fló- anum í verkinu Nýársnóttinni í a) Sveinn, f. 1979, maki Dagný Franklínsdóttir, f. 1977. Þeirra börn eru Jök- ull, f. 2005; Þóranna, f. 2008, og Franklín, f. 2015. b) Edda Sólveig, f.1994. 2) Aðalsteinn, f. 10.1. 1959, bóndi í Kolsholti 1 í Flóahreppi, kvæntur Kol- brúnu J. Júlíusdóttur bónda, f. 1961. Börn þeirra eru: a) Hallfríður Ósk, f. 1980, maki Jón Valgeir Geirsson, f. 1975. Þeirra börn eru: Kolbrún Katla, f. 2001; Hjalti Geir, f. 2006, og Ásta Björg, f. 2010. b) Sig- mar Örn, f. 1983, maki Sandra Dís Sigurðardóttir f. 1986. Þeirra börn eru: Aldís Tanja, f. 2005; Arnór Leví, f. 2007; Hrafnkell Hilmar, f. 2010, og Rakel Ýr, f. 2015. c) Erla Björg, f. 1987, maki Krist- inn Matthías Símonarson, f. 1984. Börn þeirra eru: Steinunn Lilja, f. 2013, og Íris Harpa, f. 2016. 3) Elín Bjarnveig, f. 3. janúar 1960, bóndi í Egilsstaðakoti í Flóahreppi, maki Einar Hermundsson bóndi, f. 1955. Börn þeirra eru: a) Guðbjörg Hulda, f. 1981, í sambúð með Þor- steini Traustasyni, f. 1977. Börn Guð- bjargar eru Ólafur Veigar, f. 2008 og Eva Ísey, f. 2015. b) Þorsteinn Logi, f. 1982, maki: Cathy Krentel, f. 1990. Þeirra börn eru: Elín Dóra, f. 2014, og Hermundur Karl, f. 2018. Barn Halla Aðalsteinsdóttir bóndi og kennari – 85 ára Listræn kvenfélagskona í Flóanum Börnin Halla með börnum sínum í Hlíð. Frá vinstri: Elín Bjarnveig, Halla, Þórarinn, Aðalsteinn og Alda Agnes. Afkomendur Halla á orðið marga afkomendur og hér eru Halla og Sveinn með afkomendur sína í Kolsholti. 30 ára Andri Valur fæddist í Keflavík, ólst upp á Stöðvarfirði en býr núna á Egils- stöðum. Andri Valur er vélamaður hjá Yl. Helstu áhugamál hans eru skotveiði, jeppa- mennska og vélsleðar. Hann fer reglu- lega á fjöll á jeppum sem hafa verið stækkaðir og breytt með vinum sínum. Maki: Kolbrún Sif Grétarsdóttir, f. 1991, bókari. Börn: Heiðrós Hulda, f. 2014, og Bergrós Harpa, f. 2017. Foreldrar: Jóhanna Guðveig Sólmund- ardóttir, f. 1965, húsmóðir og Páll Björnsson, f. 1964, fv. vörubílstjóri. Þau búa á Stöðvarfirði. Andri Valur Pálsson Til hamingju með daginn Reykjavík Aron Berg Robertasson fæddist 2. janúar árið 2020 á kvenna- deild Landspítalans í Reykjavík. Hann vó 3.450 gr. og var 51 sm langur. Aron kom í heiminn kl. 4:55 að morgni. For- eldrar hans eru Robertas Radcenko og Karen Björg Jóhannsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.