Morgunblaðið - 25.11.2020, Page 23

Morgunblaðið - 25.11.2020, Page 23
MEISTARADEILDIN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Fjögur lið tryggðu sér í gær sæti í 16-liða úrslit- um Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þrátt fyrir að enn séu tvær umferðir eftir af riðlakeppninni. Spennan verður lítil í E-riðli því Chelsea og Sevilla skoruðu bæði sigurmörk í uppbótartíma í 2:1-útisigrum og tryggðu sér sæti í útslátt- arkeppninni. Olivier Giroud kom inn á sem vara- maður hjá Chelsea og var hetjan því hann skor- aði sigurmark á fyrstu mínútu uppbótartímans gegn Rennes. Hjá Sevilla var Munir El Haddadi hetjan með sigurmark á fimmtu mínútu uppbót- artímans gegn Krasnodar í Rússlandi. Chelsea og Sevilla eru með 10 stig en Krasnodar og Ren- nes eru aðeins með eitt stig hvort. Síðustu tvær umferðirnar verða sömuleiðis lít- ið spennandi í G-riðli eftir að stórliðin Juventus og Barcelona tryggðu sér efstu tvö sætin. Juven- tus marði Ferencváros frá Ungverjalandi á heimavelli, 2:1. Álvaro Morata skoraði sig- urmarkið á annarri mínútu uppbótartímans. Cristiano Ronaldo skoraði fyrra markið og er hann markahæstur allra í keppninni með 131 mark. United þarf eitt stig Spennan verður töluvert meiri í H-riðli þar sem Manchester United vantar aðeins eitt stig til að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni eftir 4:1- sigur á Basaksehir á heimavelli. Með sigrinum hefndi United fyrir 1:2-tapið gegn sama liði á úti- velli. Bruno Fernandes átti enn og aftur góðan leik og skoraði tvö mörk. Paris SG hélt sér á lífi í riðlinum með 1:0-sigri á Leipzig á heimavelli þar sem Neymar skoraði sigurmarkið úr víti strax á 11. mínútu. Með tapi hefði Parísarliðið, sem lék til úrslita á síðustu leiktíð, nánast verið úr leik. Þess í stað er liðið með sex stig, eins og Leipzig. United er á toppnum með 9. Í F-riðli sáu magnaðir markaskorarar til þess að liðin sín kæmust í góða stöðu í efstu tveimur sætunum. Erling Braut Haaland skoraði tvö mörk fyrir Dortmund í 3:0-sigri á Club Brugge á heimavelli og Ciro Immobile gerði tvö mörk fyrir Lazio í 3:1-sigri á Zenit. Dortmund er á toppnum með 9 stig og Lazio í öðru sæti með 8, fjórum stigum á undan Club Brugge. Haaland er búinn að skora tíu mörk í síðustu átta leikjum í keppn- inni og alls 17 mörk í 12 leikjum á tímabilinu. Þá hefur hann skorað 16 mörk í 12 leikjum í Meist- aradeildinni, en enginn hefur skorað eins mikið í eins fáum leikjum í keppninni. Fjögur lið tryggðu sig áfram  Chelsea, Sevilla, Juventus og Barcelona öll komin áfram í 16-liða úrslit  United þarf eitt stig  Paris SG hélt sér á lífi  Haaland sjóðandi heitur AFP Tvenna Portúgalinn Bruno Fernandes skoraði tvö mörk fyrir Manchester United gegn Basaksehir. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu mætir Slóvakíu 26. nóv- ember og Ungverjalandi 1. desem- ber í síðustu leikjum liðsins í undankeppni EM. Fara báðir leikir fram á útivelli. Íslenska liðið má ekki æfa hér á landi vegna sóttvarnareglna og ferðaðist því til Slóvakíu á sunnu- dag. Liðið þarf hins vegar að ferðast til Austurríkis til að æfa fyrir leikinn við slóvakíska liðið. Fékk liðið aðstöðu hjá austurríska félaginu Hundsheim og þar æfði liðið í gær. sport@mbl.is Landsliðið æfir í Austurríki Morgunblaðið/Eggert Undankeppni Elín Metta Jensen, miðherji landsliðsins. Erlendir fjölmiðla þreytast ekki á að fjalla um Skagamanninn unga Ísak Bergmann Jóhannesson og framtíð hans á knattspyrnuvell- inum. Mirror fjallaði um það á dög- unum að Juventus gæti gert Norr- köping tilboð í janúar. Ísak er aðeins 17 ára en hefur vakið mikla athygli og starfsmenn Norrköping hafa sagt frá því að fulltrúar margra stórliða hafi kom- ið og fylgst með Ísak í Svíþjóð. Sportsmail hélt því fram að Ísak væri metinn á tæpa 2 milljarða ís- lenskra króna um þessar mundir. Verðmiðinn hækkar hratt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eftirsóttur Ísak Bergmann er mikið til umfjöllunar erlendis.  Knattspyrnudeild Fjölnis gekk í gær frá samningum við tvo sterka leik- menn en Dofri Snorrason gerði tveggja ára samning við félagið og Andri Freyr Jónasson þriggja ára samning. Dofri er uppalinn hjá KR en hefur leik- ið með Víkingi Reykjavík síðustu sjö tímabil. Hann hefur leikið 138 leiki í efstu deild og skorað í þeim fjögur mörk og þá á hann 34 leiki í B-deild þar sem hann hefur skorað níu mörk. Andri Freyr er framherji sem er uppal- inn hjá Aftureldingu og hefur leikið með Mosfellsbæjarfélaginu allan fer- ilinn, alls 79 leiki í 1. og 2. deild og 11 leiki í bikar þar sem hann hefur skorað 49 mörk.  Jack Grealish, fyrirliði enska knatt- spyrnuliðsins Aston Villa, er efstur á óskalista Peps Guardiola, stjóra Man- chester City, samkvæmt frétt breska blaðsins Independent. Grealish, sem er 25 ára gamall, hefur vakið mikla athygli hjá Aston Villa síð- an félagið komst aftur upp í ensku úr- valsdeildina vorið 2019 og lék með enska landsliðinu gegn Íslandi á dög- unum. Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur fimm í átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.  Gunnar Einarsson hefur verið ráð- inn þjálfari 1. deildar liðs Víkings frá Ólafsvík í knattspyrnu en hann hefur samið við félagið til tveggja ára. Hann tekur við af Guðjóni Þórðarsyni sem tók við liðinu í júlímánuði og gerði samning út tímabilið. Gunnar er 44 ára gamall og lék á sín- um tíma með KR og Val þar sem hann varð alls fjórum sinnum Íslandsmeist- ari en einnig með Víkingi R. og Leikni R. undir lok ferilsins. Alls spilaði hann 208 deildaleiki hér á landi, þar af 143 í úrvalsdeildinni, á árunum 1995 til 2012. Hann þjálfaði Akranesliðið Kára í 2. deild karla á síðasta tímabili en hef- ur áður þjálfað Leikni í Reykjavík árið 2012 og yngri flokka hjá Val.  Formúlu-1-ökuþórinn Lewis Hamil- ton verður sæmdur riddaratign á næstu vikum og verður því sir Lewis Hamilton framvegis. BBC greinir frá því að Boris Johnson, forsætisráð- herra Bretlands, hafi beitt sér fyrir því að Hamilton yrði sleginn til riddara. Hamilton, sem er einungis 35 ára gamall, er sigursælasti formúlu-1- ökumaður frá upphafi en hann tryggði sér heimsmeistaratitilinn í keppninni um þarsíðustu helgi þegar hann kom fyrstur í mark í Tyrklandskappakstr- inum. Var þetta fjórði heimsmeist- aratitill Hamiltons í röð og hans sjö- undi á ferlinum en aðeins Michael Schumacher státar einnig af sjö heimsmeistaratitlum í formúlu-1. Þá hefur enginn ökumaður í formúlu-1 unnið fleiri keppnir en Bretinn eða 94 alls og enginn hefur verið oftar á rás- pól en Hamilton eða 97 sinnum. Riddaranefnd Bret- landseyja hefur þótt treg til að veita íþróttafólki sem er enn að keppa riddara- tign en mun gera undantekningu í tilfelli Hamiltons. Eitt ogannað Freyr Alexandersson, fráfarandi aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, hafnaði tilboði frá dönsku meisturunum í Midtjylland síðasta vetur. Freyr vildi ekki láta af störfum hjá KSÍ á þeim tíma enda átti landsliðið möguleika á að komast í lokakeppni EM. „Ég fór í viðræður við þá og fannst þetta ofboðslega spennandi en á þeim tíma vorum við að fara með landsliðinu í umspil í mars. Hvorki Midtjylland né KSÍ höfðu áhuga á að ég myndi sinna hvoru tveggja og ég gat ekki yfirgefið landsliðið á þeim tíma,“ sagði Freyr í samtali við Vísi. Íslenski landsliðsmaðurinn Mika- el Anderson leikur með Midtjylland og komst liðið á dögunum í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu og er í riðli með Liverpool, Ajax og Atalanta. Freyr er staddur í Katar þar sem hann verður aðstoðarþjálfari Al- Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið og með því leikur landsliðsfyr- irliðinn Aron Einar Gunnarsson. Morgunblaðið/Eggert Katar Aron Einar Gunnarsson og Freyr eru nú samstarfsmenn hjá Al-Arabi. Freyr hafnaði freistandi tilboði frá Danmörku Keppnistímabilinu er lokið hjá GR- ingnum Guðmundi Ágústi Kristjáns- syni á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Guðmundur hafnaði í 46. sæti á stigalista mótaraðarinnar en keppnistímabilið var óvenjulegt vegna heimsfaraldursins eins og í mörgum öðrum íþróttagreinum. Keppni fór þó af stað aftur nú í haust og því tókst að ljúka tíma- bilinu en hlé var gert í marga mán- uði fyrr á árinu. Guðmundur Ágúst heldur keppnisrétti sínum á móta- röðinni á næsta ári. Áskorenda- mótaröðin er sú næststerkasta í Evrópu og er haldið úti af sömu að- ilum og Evrópumótaröðinni. Góður árangur á Áskorendamótaröðinni gefur tækifæri á Evrópumótaröð- inni. Fimm efstu kylfingarnir á stigalistanum fengu keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta tíma- bili. Í gegnum tíðina hafa verið 15 til 20 sæti í boði en því var breytt í þetta skipti þar sem tímabilið var óvenjulegt. Guðmundur hafnaði í 16. sæti á lokamótinu á dögunum. Haraldur Franklín Magnús, einn- ig úr GR, keppti á Áskorendamóta- röðinni á árinu en komst ekki inn í lokamótið. Hann hafnaði í 85. sæti og er einnig með keppnisrétt á næsta ári. Haraldur fór upp um tutt- ugu sæti á listanum á lokaspretti tímabilsins. Haraldur var að ljúka sínu fyrsta keppnistímabili á móta- röðinni en Guðmundur öðru. Besti árangur Guðmundar á mótaröðinni á árinu var 5. sæti og einungis Birgir Leifur Hafþórsson hefur gert betur af íslenskum kylf- ingum í karlaflokki . kris@mbl.is Guðmundur í 46. sæti á mótaröðinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 46. sæti Guðmundur Ágúst Krist- jánsson komst inn á lokamótið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.