Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
HÖRKUSPENNANDI MYND
BYGGÐI Á SANNRI SÖGU.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Tíunda bókin í hinum vinsæla bókaflokkiPeter Madsen, Goðheimum, er nú loksinskomin út á íslensku, 27 árum eftir að húnkom fyrst út á frummálinu, dönsku.
Hvernig á því stendur að biðin varð svona löng veit
ég ekki en fagna því að útgáfu syrpunnar sé áfram
haldið.
Líkt og í fyrri bókum segir af helstu persónum
norrænnar goðafræði og Loki hinn lævísi aðal-
persónan að þessu sinni. Segir í byrjun af kynnum
Sifjar og Þórs en Sif var þá ekkja og Þór ungur,
ódæll og skegglaus. Þór tekst ekki að heilla Sif
enda óheflaður mjög í framkomu og veðjar Loki
því, í kvikindisskap sínum, að Sif muni falla fyrir
honum áður en sól hnígur til við-
ar. Til sönnunar muni hann færa
Þór lokk úr hári hennar. Sif vill
ekki sjá Loka og klippir hann þá
af henni allt hárið í svefni og
færir Þór einn lokkanna fögru.
Þór kemst að hinu sanna og til
að forða sér frá barsmíðum fer
Loki á fund smíðadverganna
Ívaldasona og biður þá að búa til
hár úr gulli á Sif eða gabbar þá
til þess, öllu heldur, og hefur svo af þeim fleiri dýr-
gripi með veðmáli þar sem hann beitir einnig
brögðum. Loki hittir svo á heimleiðinni dverginn
Brokk, bróður Sindra sem er öðrum dvergum
fremri í smíði. Brokkur veðjar við Loka að þeir
bræður geti búið til betri gripi en þá þrjá sem hann
hafði af Ívaldasonum. Skal einn ása vera dómari í
því veðmáli. Þróast mál þannig að Þór er beðinn um
að dæma um hvor gripurinn sé betri, gullhaddur
Sifjar eða hamarinn Mjölnir og velur hann auðvitað
hamarinn. Og þar sem Loki lagði höfuð sitt að veði
vill Brokkur nú fá höfuðið. Tekst Loka með tungu-
lipurð sinni að bjarga eigin höfði og það naumlega.
Þessi útgáfa myndasagnahöfundarins Peters
Madsen af sögunni um gullhadd Sifjar er í grófum
dráttum eins og sú upphaflega úr goðafræðinni
þótt Madsen taki sér skáldaleyfi hér og þar. Í upp-
hafi bókar rifja Þór, Sif og Loki upp fyrstu kynni
þeirra hjóna Þórs og Sifjar sem er skemmtileg hug-
mynd og ber þeim ekki saman um atburðarásina í
fyrstu. Þór segir Sif ekki hafa sýnt honum áhuga en
Sif segir því öfugt farið. Þá er það skemmtileg hug-
mynd hjá Madsen að láta Loka ítrekað byrja frá-
sögnina af ferð sinni í dvergheima því Þór og Sif
grípa ítrekað fram í fyrir honum og leiðrétta lyga-
laupinn.
Ekki þarf að fjölyrða um teikningar og teiknistíl
Madsen, hann er lifandi og skemmtilegur og gætir
teiknarinn að því að brjóta reglulega upp uppsetn-
ingu síðnanna með stórri og óinnrammaðri teikn-
ingu sem minni rammar flæða yfir að hluta til.
Sumar síður eru formfastari með tíu römmum eða
fleirum og teikningarnar eru fallega litaðar.
Skemmtilegastar, myndlistarlega séð, eru síðurnar
þar sem dökkur bakgrunnur fyllir síðuna og ramm-
arnir eru settir ofan á.
Þetta er tíunda Goðheima-bók Madsens og
greinilegt að myndasagnaformið liggur vel fyrir
honum. Fyrir aðdáendur Goðheima, og þeir eru án
efa margir, er bókin skyldueign en hentar líka þeim
sem þekkja ekki til bókaflokksins þar sem hver
saga er sjálfstæð og krefst ekki þekkingar á þeim
fyrri. Að lokum ber að nefna ágæta þýðingu Bjarna
Frímanns Karlssonar.
Spaugileg Sagan af Gjöfum guðanna er spaugileg í meðförum teiknarans Peters Madsen. Hér hittir
Loki dverginn Brokk sem reynist honum erfiður viðureignar.
Æ sér gjöf
til gjalda
Myndasaga
Goðheimar 10 - Gjafir guðanna bbbbn
Teikningar og texti eftir Peder Madsen. Saga skrifuð af
Hans Rancke, Per Vadmand og Henning Kure. Um litun
sá Jesper Ejsing. Bjarni Frímann Karlsson þýddi.
Iðunn, 2020. Innbundin, 48 bls.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
BÆKUR
Þjóðminjasafn Ís-
lands og Háskóli Ís-
lands standa fyrir
málþingi undir yfir-
skriftinni Fræða-
mót í dag milli kl.
11.00 og 16.30. Þar
verður sjónum
beint að „áhrifum
loftslagsbreytinga
á safnastarf og þeim áskorunum og
tækifærum sem söfn standa frammi
fyrir tengdum þessari yfirvofandi
vá“. Rætt verður hvernig söfn geti
tekist á við samfélagslega kröfu um
aukna sjálfbærni og jafnframt stuðl-
að að upplýstri umræðu um lofts-
lagsbreytingar og afleiðingar
þeirra. Málþingið fer að þessu sinni
fram gegnum fundarkerfið Teams,
en hlekk á fundinn má nálgast á vef
Þjóðminjasafnsins. Meðal þeirra sem
ávarpa fundinn eru Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður og Jón
Atli Benediktsson, rektor Háskóla
Íslands.
Málþingið Fræða-
mót haldið í dag
Margrét
Hallgrímsdóttir
Vatnslitafélag Íslands hefur opnað
sýninguna Andstæður í Listasal
Mosfellsbæjar. Í tilkynningu frá fé-
laginu kemur fram að Vatnslita-
félag Íslands sé nýstofnað og öflugt
félag um 200 vatnslitamálara. „Fé-
lagsmönnum var boðið að senda inn
verk og valdi sjálfstæð dómnefnd
erlendra listamanna þau verk sem
til sýnis verða á Andstæðum. Sýnd
verða 64 verk eftir 47 listamenn.“
Listasalur Mosfellsbæjar er stað-
settur inn af Bókasafni Mosfells-
bæjar og er opinn á afgreiðslutíma
þess, kl. 12-18 á virkum dögum og
12-16 á laugardögum. Sýningin
stendur til 20. desember. Gestum
ber að bera grímu og gæta að fjar-
lægðarmörkum.
Andstæður með
64 verk í Listasal
Litadýrð Mynd eftir Guðbrand Magnússon.