Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.11. 2020 LÍFSSTÍLL deild, eða „knitwear“, en þau sögðust sjá styrkleika í möppunni minni sem hentuðu í þá deild. Fyrstu viðbrögðin voru þau að ég varð pínu móðguð. Mér fannst það lummó að fara í prjónahönnun, verandi Íslendingur með hug- mynd um lopapeysu í kollinum, eins og það sé það eina sem er prjónað. En ég ákvað að slá til eftir smá umhugsun. Mig hafði lang- að að finna mér sérhæfingu og ákvað að hlusta og taka mark á þessum ráðlegg- ingum, enda eru kennarar skólans meðal fremstu sérfræðinga heims í fatahönnun. Ég fann á fyrsta degi að ég var á réttum stað og heill- aðist af heimi prjónsins. Málið er að megnið af því sem maður klæð- ist er prjónað, því prjón getur verið svo fjölbreytt. Allt niður í fíngerðar sokkabuxur og upp í þykkar kápur. Þannig að síðan þá hef ég verið að prófa mig áfram með prjónið.“ Made in Reykjavík Kiosk Grandi er í einu rými gömlu verbúð- anna í Grandagarði 35. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja og hafið blasir við hinum megin götunnar. „Ég hef verið mjög hugsi um umhverfis- mál og hvernig ég gæti lagt mitt af mörkum sem hönnuður. Ég hef verið að vinna með framleiðslufyrirtækjum hér heima og vinn mikið með íslensku ullina, þótt ég hafi ekki einskorðað mig við hana. Hún er ekki endi- lega þekkt fyrir að vera notuð í margt ann- að en lopapeysur nú til dags en eiginleikar hennar henta mjög vel í yfirhafnir. Ég ákvað því að skora á sjálfa mig og þróa nýja vöru sem væri jafnframt fullunnin í Reykjavík. Það er vitundarvakning í leið- inni, en línan heitir Made in Reykjavík og er til sýnis núna í Hönnunarsafni Íslands á sýningu sem heitir 100% ull. Ég frum- sýndi línuna þar og með vídeófrumsýn- ingu á Trendnet en ekki var hægt að hafa tískusýningu sökum Covid,“ segir hún. Magnea segir viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar og margir sem kíkja við í Kiosk Granda. „Greinilegt er að fólk hefur saknað Kiosk. Svo er ekki verra að fólk vill í dag styrkja innlendan rekstur, hönn- un, veitingastaði og listafólk.“ Kápurnar koma bæði í stuttu og síðu. Ljósmyndir/Írís Dögg Einarsdóttir Töff kápa í myntulit. Ullarkápa í svörtu er sparileg og flott. Ullin hentar í fleira en lopa- peysur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.