Bæjarins besta - 29.08.1990, Blaðsíða 2
2
BÆJARINS BESTA
Lögreglan a Isafirði kom gagngert yfir á Flateyri til að Ioka
„samkvæminu“ en þeir urðu frá að hverfa.
stöðva skemmtanahaldið
með valdi því við vorum bara
tveir. Fyrirmælin voru höfð
að engu, þannig að þeir aðil-
ar sem áttu þarna hlut að máli
þurfa að standa fyrir máli
sínu.“
Hvenær eru síðustu forvöð
um að sækja utn dansleyfi?
„Samkvæmt reglugerðum
um skemmtanahald að þá
skal tilkynna það til lög-
reglustjóra með viku fyrir-
vara. Hins vegar vegna að-
stæðna í þessu umdæmi að
þá er nú stundum erfitt að fá
hljómsveitir og slíkt, að þá
hef ég fært þessa viku yfir á
miðvikudaginn fyrir
skemmtun.
Þannig að síðustu forvöð
er fyrir kl. 17:00 á miðviku-
dögum fyrir skemmtun og
það er eingöngu vegna að-
stæðna sem við höfum flutt
þetta svona suður.“ sagði
Jónas Eyjólfsson, yfirlög-
regluþjónn að lokum.
Hljómsveitin Grétar á
gröfunni hélt dansleik í
kassageymslu Hjálms h.f.
„Þetta verður kært. Þeir sóttu ekki um dansleyfí
á tilskyldum tímau segir Jónas Eyjólfsson.
þeir fengu ekki skemmtana-
leyfi. Þetta kostaði það að ég
varð að fara á aukavakt og
það eina sem ég gerði var að
gefa þeim fyrirmæli um að
stöðva þetta ólöglega
skemmtanahald."
Var þetta ólöglegt?
„Já, vegna þess að það
þarf lögreglustjóraleyfi þeg-
ar um skemmtanahaid er að
ræða eftir kl. 23:30 á kvöld-
in. Þetta voru hljómleikar og
það var dansað þarna. Þetta
var dulbúinn dansleikur.“
Verður þetta mál kœrt?
„Að sjálfsögðu. Þetta mál
verður rannsakað. Ég er
óhress með þetta, ef menn
fara ekki að fyrirmælum. Ég
hafði ekki mannafla til að
Jónas Eyjólfsson, yfirlög-
regluþjónn.
HLJÓMSVEITIN Grétar á gröfunni ætlaði að halda
kveðjudansleik fyrir aðdáendur sína á síðustu helgi á
Flateyri en lögreglan á Ísafirði synjaði þeim um dansleyfið
því það var ekki sótt um dansleyfið á tilskyldum tíma. Þá tóku
meðlimir hljómsveitarinnar það til bragðs að halda stofnfund
aðdáenda Grétars á gröfunni og átti hann að fara fram í
kassageymslu fiskvinnslufyrirtækisins Hjálms h.f.
Fundurinn byrjaði klukk-
an 23:00 á laugardagskvöld-
ið og var múgur og marg-
menni á staðnum. Áður
hafði kassageymslan verið
lagfærð og tekið til fyrir
fundargesti. Brettum og
fiskikössum var staflað upp
og stólar og borð sett í sal-
inn, sem reyndar er mun
stærri en Félagsheimili Flat-
eyringa.
Því næst hóf hljómsveitin
að leika lög og upp úr því
hrúgaðist hópur fólks inn í
salinn og hóf að dansa og
skemmta sér. Þá mætti lög-
reglan á svæðið í þeim til-
gangi að stöðva „fundinn“
sem var orðinn hinn fjörug-
asti. Það tókst hins vegar
ekki.
Þá fór lögreglan og ræsti
út einn af eigendum hússins
til að stöðva fundinn. Eig-
andinn fór niður eftir og eftir
viðræður við fundarhaldara
varð hann frá að hverfa og
lét hann það afskiptalaust.
Lögreglan var á Flateyri um
nóttina en skipti sér ekki
frekar af fundargestum þá
nótt.
Allt fór þetta friðsamlega
fram og allir skemmtu sér
vel fram eftir morgni í kassa-
geymslunni. Að sögn Stein-
þórs Kristjánssonar, skrif-
stofumanns Hjálms h.f. var
sótt um dansleyfi á fimmtu-
dagsmorgun en þá synjaði
lögreglan þeim um dansleyfi
sökum mannaskorts.
Á Flateyri eru tveir hér-
aðslögregluþjónar og að
sögn Steinþórs hafði lögregl-
an ekki samband við þá um
að vera við löggæslustörf
þetta kvöld. Fundinn sóttu á
milli 90 og 100 manns sem
eins og áður sagði var hinn
fjörugasti.
BB hafði samband við
Jónas Eyjólfsson, yfirlög-
regluþjón og spurði hann
hvort sótt hefði verið um
dansleyfi á tilskyldum tíma.
„Nei, þeir sóttu ekki um
dansleyfi á réttum tíma. Þeg-
ar þeir sóttu um leyfið var
búið að ráðstafa þeim mann-
afla sem fyrir hendi var og
Um 100 manns sóttu stofnfund aðdáenda Grétars á gröfunni
sem fór fram í kassageymslu Hjálms h.f. á Flateyri.
Ráðstefna um orku- og umhverfismál,
ferðamál og stefnumál Kvennalistans.
Samtök um kvennalista efna til ráðstefnu í Félagsheimilinu
á Þingeyri 1. og 2. sept. n.k.
Daqskrá: Laugardagur 1. sept.
kl. 13.00 Ráðstefnan sett.
kl. 13.10 Dr. Bragi Árnason, prófessor flytur erindi um
nýja möguleika í orkufrekum iðnaði.
- Fyrirspurnir og umræður. -
kl. 16.00 Kristín Einarsdóttirog Þórhildur Þorleifsdóttir
ræða um þingmál og stefnumál Kvennalistans.
kl. 17.00 Kristín Halldórsdóttirformaður Ferðamálaráðs,
talar um framtíð í ferðaþiónustu.
Sunnudagur2. sept.
kl. 10.00 Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingurfjallar um hug-
myndafræði Kvennalistans og sögu kvennabaráttunar.
Hægt er fá svefnpokagistingu í Grunnskólanum og seldar verða
léttar máltíðir. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 29. ágúst til Sigríðar í síma
94-3236, eða Aðalbjargar í síma 94-3263.
Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu Kvennalistans í Reykjavík
í síma 91 -13725 milli kl. 14 og 18.
Flateyri: