Bæjarins besta - 29.08.1990, Side 3
Þingeyri:
BÆJARINS BESTA
3
ísafjörður:
Frá félags-
starfí aldraðra
FÉLAGSSTARFIÐ var
líflegt síðastliðinn vetur
konurnar voru duglegar að
mæta þrátt fyrir leiðinlegt
veðurfar. Herrarnir hafa ekki
enn fengið aðstöðu fyrir sínar
tómstundir en það verður
vonandi bætt úr því fljót-
lega og opnast þá möguleikar
fyrir smíðar o.fl.
Ýmis félagasamtök voru
með skemmtanir og þökkum
við þeim af alhug fyrir. Eins
þökkum við þeim félögum í
Bolungarvík sem tóku svo
myndarlega á móti okkur í
maí, innilega fyrir.
Ég vil þakka öllum sem
hafa aðstoðað okkur, sér-
staklcga harmonikkufélag-
inu sem hafa spilað hér á
hverju balli, einnig Tónlist-
arskólanemum og ýmsum
góðum aðilum sem hafa lagt
lóð á vogaskálarnar.
Nú er félagsstarfið að hefj-
ast að nýju. í félagsstarfinu
vinna Anna Reykdal, Gerð-
ur Pétursdóttir, Steingerður
Ingadóttir, Olga Hagen og
Elísabet Jóhannesdóttir. Við
reynum að gera okkar besta,
en erum að sjálfsögðu opnar
fyrir nýjum tillögum og auð-
vitað verða alltaf breytingar
með nýju fólki.
Föndrið byrjar þriðjudag-
inn 4. september kl. 13:30 til
16:30 Spilin miðvikudaginn
5. september kl. 16:15 til
17:00 Allir eldri borgarar
velkomnir. Vonumst eftir
góðri þáttöku.
Umsjónarm. félagsstarfs.
Anna Reykdal.
Hlutabréf til sölu
Til sölu er hlutabréfaeign bæjar-
sjóðs ísafjarðar í Hraðfrystihúsinu
hf., Hnífsdal og íshúsfélagi ísfirð-
inga hf.. Tilboð sendist undirrituð-
um, sem gefur nánari upplýsingar ef
óskað er.
Tryggvi Guðmundsson hdl.
Hafnarstræti 1, ísafirði.
Sími: 94-3244.
Samtök um
kvennalista
með ráðstefnu
SAMTÖK um Kvenna-
lista ætla að halda ráð-
stefnu á Þingeyri 1. og 2.
september. Aðalmálin verða
nýjar leiðir í orkufrekum
iðnaði - framtíð ferðaþjón-
ustu - kvenréttindabarátta í
Ijósi sögunnar og stefnumál
Kvennalistans.
Pað er dr. Bragi Árnason
prófessor, sem flytur erindi
um það sem hann kallar
„Nýjar leiðir í orkufrekum
iðnaði.“ Kristín Halldórs-
dóttir formaður ferðamála- j
ráðs talar um framtíð í ferða- j
þjónustu og Kristín |
Astgeirsdóttur, sagnfræðing-
ur ræðir um sögu kvenrétt-
indabaráttunnar.
Einnig verða þingkonur
Kvennalistans á staðnum og
ræða þingmál og stefnumál
Kvennalistans. Fyrirspurnir
og frjálsar umræður verða
eftir hverju erindi. Ráðstefn-
an verður haldin í Félags-
heimilinu á Þingeyri og hefst
hún kl. 13:00 á laugardag.
Ráðstefnan er öllum opin.
Fréttatilkynning
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
☆ ☆
| Spákona jj
☆ ☆
Spákonaer
% stödd á ísafirði. *
* Upplýsingar og tíma- *
☆ ☆
* pantanir í síma 4673. *
☆ ☆
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆