Bæjarins besta - 29.08.1990, Blaðsíða 5
BÆJARINS BESTA
5
Skarfa-
tíðin
komin
Nú þegar gæsaveiðin
stendur sem hæst eru
sumir veiðimenn farnir
að huga að svartfugla-
og skarfaveiðum. Svart-
fuglaveiðitíminn hefst
laugardaginn 1. septem-
ber en byrja mátti að
veiða díla- og toppskarf
þann 20. ágúst eða um
leið og gæsina. Mikið er
af svartfugli í ísafjarðar-
djúpi og einnig í Arnar-
fírði um þessar mundir
og skarfurinn er kominn
úr Breiðafírðinum í
stórum hópum.
DEKURBÍLL
Til sölu er Toyota Landcruiser II,
árgerð 1987. Ekinn 51.000 km. Bein sala.
Upplýsingar gefur Denni
ísíma 3041 eða 3462 á kvöldin.
58 manns á aldrinum 4 til 74 ára veiddu 186 marhnúta
MARHNÚTURINN er sennilega að verða einn vinsæl-
asti fiskurinn hér á Vestfjarðakjálkanum eins og dæmi
hafa sannað. Súgfirðingar hafa haldið marhnútaveiðikeppni
Þrjú ár í röð og eiga heiðurinn að þessari skemmtilegu
keppni. En það hlaut að koma að því að fleiri staðir kæmu í
kjölfarið og þann 20. júií síðast liðinn héldu Tálknfirðingar
sína fyrstu marhnútaveiðikeppni.
Keppendur í fyrstu marhnútaveiðikeppninni sem haldin var
á Tálknafirði. Þeir voru 58 talsins á aidrinum 4 til 74 ára.
Ljósm. Krístjana Andrésdóttir Tálknafirði.
Það var Ungmennafélag
Tálknfirðinga sem hélt
keppnina og gaf jafnframt
öll verðlaunin. Alls tóku 58
manns þátt í keppninni og
voru keppendur á aldrinum
4 ára upp í 74 ára.
Alls veiddust 186 mar-
hnútar í keppninni sem fór
fram í ágætis veðri á Tálkna-
fjarðarhöfn. Aldurforseti
keppninnar var Steinunn
Finnbogadóttir en hún kunn
hafa mætt með forláta kúst-
skaft sem veiðistöng. Sá sem
veiddi flesta marhnúta var
Guðni Ingvarsson, 15. stk, 2.
sæti Indriði Guðjónsson, 14.
stk, og í 3. sæti Helga og
Valur.
Stæsta marhnútinn veiddi
Helgi Þórhallsson, 690 gr. 2.
sæti, Sandra Guðmundsdótt-
ir, 570 gr. og í 3. sæti varð
Andrés Heiðarsson, 550 gr.
I’að væri gaman að heyra frá
fleirum stöðum hér vestra ef
að marhnútaveiðikeppnir
yrðu haldnar í sumar.
ATVINNA
Óskum eftir að ráða fólk
til starfa í kjötvinnslu
við pökkun og fleira.
Ennfremur vantar okkur
mann til að sjá um
útkeyrslu og fleira.
Nánari upplýsingar gefur
verkstjóri í síma 4006
eftir hádegi.
MIMSQ
SUNDSTRÆTI 36 — PÓSTHÓLF 140 — 400 ÍSAFJÖRÐUR
Kjötvinnsla
Póstur og sími
Laust starf
Laus er til umsóknar 50% staða
næturvarðar við símstöðina á ísafirði.
Nánari upplýsingar veitir
stöðvarstjóri.
Stöðvarstjóri.
Tálknafjörður:
Yestfirðir:
Marhnútaveiðikeppni
haldin á Tálknafirði